
Í þessari viku, dagana14. til 18. nóvember, er á landinu sendinefnd frá ESA og EMSA til að taka út búlk stöðvar, þar sem lausum farmi er landað. Áætlað er að taka út tvær stöðvar á Grundartanga, eina í Straumsvík og eina í Reyðarfirði.
Sendinefndin mun skoða hlítni Íslands við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/96/EB frá 4. desember 2001 um samræmdar kröfur og aðferðir að því er varðar örugga lestun og losun búlkaskipa, sem innleidd er á Íslandi með reglugerð 204/2004 um samræmdar kröfur og aðferðir að því er varðar örugga lestun og losun búlkaskipa.
Það er deild siglinga- og hafnaeftirlits sem hefur umsjón með úttektinni fyrir hönd Samgöngustofu.