
Dirty Dozen er fræðsluefni sem Samgöngustofa hefur útbúið og tiltekur þá mannlegu þætti sem leitt geta til slysa í flugi og flugtengdri starfsemi og leggur til ráð um hvernig hægt er að fyrirbyggja slys af þeirra völdum. EASA hefur hrósað Samgöngustofu mikið fyrir efnið og hafa bæði Lufthansa og Airbus Helicopters beðið okkur um að fá að nota efnið í sínu innra starfi. Nú í vikunni fengum við fyrirspurn frá frönskum svæfingalækni sem bað um að fá að nota efnið í starfsþjálfun skurðlækna, skurðhjúkrunarfræðinga og svæfingarlækna. Væntanlega mun sá franski uppfæra myndefnið svo það tengist skurðlækningum frekar en flugi en mannlegu brestirnir eru þeir sömu alls staðar og leiðir til að koma í veg fyrir að þessir brestir leiði til slysa eru að langmestu leyti þær sömu í skurðlækningum og í flugi.
Auk þessa hefur Samgöngustofa verið að útbúa sambærileg spjöld fyrir siglingar og sjómennsku og kallast það verkefni 12 hnútar. Í desember munum við svo gefa út dagatöl ársins 2023, bæði með Dirty Dozen spjöldunum fyrir flugið og 12 hnúta spjöldunum fyrir siglingar og sjómennsku.