Kynning um aðildarferli Íslands að Eurocontrol

Í síðustu viku hélt Hlín Hólm, deildarstjóri flugleiðsögu, flugvalla og flugverndar, kynningu hjá Eurocontrol um aðildarferli Íslands að stofnuninni. Um leið sagði hún frá mikilvægi flugs fyrir Ísland í ljósi landfræðilegrar stöðu þess. Kynningin var haldin fyrir fulltrúa (e. State Liaison Officers) sem aðildarríkjunum býðst að senda til starfa í nefndum og störfum innan Eurocontrol, til lengri eða skemmri tíma.

Hinn 1. janúar 2025 verður Ísland fullgilt aðildarríki að Eurocontrol, sem er Evrópustofnun um öryggi í flugleiðsögu. Aðildarviðræður hafa staðið yfir lengi, eða með hléum frá 2008, en haustið 2022 var skrifað undir aðlögunarsamning Íslands að Eurocontrol.