Rafrænt bóklegt bílpróf

Stefnt er að því að hefja rafræna próftöku í bóklegum ökuprófum í B-flokki (almennt bílpróf) á allra næstu vikum.

Ávinningurinn af rafrænni próftöku er mikill. Til dæmis getum við hætt að prenta út próf og skera út svarlykla, erfiðara verður að svindla og yfirferðin verður sjálfvirk.

Samhliða því sem rafræn próf verða tekin upp verður farið í breytingar á uppsetningu prófanna. Núverandi fyrirkomulag er komið til ára sinna og kominn tími á að endurskoða það. Nýtt próf verður sett saman af 50 fullyrðingum sem svara á rétt eða rangt, í stað 30 krossaspurninga.

Þannig einföldum við uppsetninguna og minnkum líkur á að hún hafi áhrif á niðurstöður.

Próftökukerfið heitir FastTest og er einfalt í notkun fyrir próftaka. Frumherji mun áfram sjá um framkvæmd prófanna og rafræna kerfið mun líka auðvelda þeim framkvæmdina þar sem ekki þarf lengur að taka saman prófhefti og niðurstöðublöð. Próftakar taka prófin áfram hjá Frumherja.

Hér má sjá kynningu leyfisveitinga og ökunámsdeildar í föstudagskaffinu 5. apríl sl.