Samgöngustofa tók í dag þátt í forvarnardegi ungra ökumanna á Akranesi sem haldinn var í FVA.
Dagurinn hófst þannig að allir nemendur skólans komu saman á sal og hlustuðu á þrjá fyrirlestra. Auk Samgöngustofu var Lögreglan og Neyðarlínan með erindi. Í lok dagsins var sviðsett slys eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni. Þar mátti sjá viðbragðsaðila bregðast við slysi, slökkviliðið t.d. klippti hurð af bíl til þess að ná í einstaklinga sem voru þar fastir inni. Það þurfti mikla samvinnu ólíkra viðbragðsaðila til að allt gengi vel upp sem það gerði. Það var einnig frábært að einn slökkviliðsmaðurinn var í krana og sá yfir allan vettvanginn og lýsti fyrir nemendum hvað væri í gangi. Eftir þetta fóru allir aftur inn á sal, fengu pulsur frá skólanum og viðbragðsaðilar tóku saman það sem hafði gerst úti á vettvangi og hvaða lærdóm má draga af deginum.
Virkilega lærdómsríkur dagur að baki, góð stemming var á deginum og ungmennin áhugasöm um þetta mikilvæga málefni.

