Forvarnardagur ungra ökumanna

Samgöngustofa tók í dag þátt í forvarnardegi ungra ökumanna sem haldinn var í 88 húsinu í Reykjanesbæ. Auk Samgöngustofu var Lögreglan með erindi og einnig fulltrúi frá TM og Reykjanesbæ og svo var veltibíllinn á staðnum. Í lok dagsins var sviðsett slys eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni. Þar mátti sjá viðbragðsaðila bregðast við slysi, lögreglan fjarlægði manneskju úr bíl sem var ofurölvi og slökkviliðið klippti hurð af bíl til þess að ná í einstaklinga sem voru þar fastir inni. Góð stemming var á deginum og ungmennin áhugasöm um þetta mikilvæga málefni

Á bakvið tjöldin

Tökurnar sem farið var í á Keflavíkurflugvelli eru hluti af ljósmyndarverkefni Samgöngustofu. Markmið verkefnisins er að byggja upp ljósmyndabanka með myndum sem tengjast starfsemi stofnunarinnar. Starfsfólk Samgöngustofu getur nýtt þessar myndir í kynningarstarfi, á samfélagsmiðlum og annars staðar þar sem þörf er á faglegum ljósmyndum af starfseminni. Við þökkum starfsfólki sem tók þátt í þessu verkefni enn og aftur fyrir þátttökuna, virkilega skemmtileg stemming myndaðist í kringum það. Myndbönd voru tekin af stemmingunni á bakvið tjöldin í tökunum og fyrsta myndbandið er komið inn á samfélagsmiðlana okkar.

Hér má sjá fyrsta myndband af nokkrum sem sýnir frá tökudegi á Keflavíkurflugvelli.

Bifhjólafólk fagnar vorinu

Um helgina 17. og 18. stendur mikið til hjá bifhjólafólki með þátttöku Samgöngustofu – bæði norðan og sunnanlands. Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar og Tían standa fyrir Vorfagnaði bifhjólafólks á Akureyri á laugardag klukkan 14:00. Á sunnudag verður svo árlegur Vorfagnaður bifhjólafólks haldinn við Ökuskóla 3 í Hafnarfirði. Að því standa Sniglarnir, Kvartmíluklúbburinn, Ökuskóli 3 og Ökukennarafélagið ásamt Samgöngustofu. Dustað verður rykið af reynslu bifhjólafólks og lúnir liðir og viðbragð liðkað til svo auknar líkur séu á að allir geti átt öruggan og ánægjulegan akstur í sumar. Hér má sjá myndband frá vorfagnaði síðasta árs en talið er að um 300 manns hafi mætt þá.

Metþátttaka í Umferðarskólanum

Í ár voru það rúmlega 200 leikskólar sem tóku þátt í Umferðarskóla Samgöngustofu og skráðu til þátttöku rúmlega 4000 börn. Umferðarskólinn er hugsaður fyrir elsta hóp leikskólabarna en þar er m.a. fjallað um öryggi barna í bílum, hvernig best sé að fara yfir götu, hvar öruggast sé að hjóla og leika sér úti.

Það kostar ekkert fyrir leikskólana að taka þátt. Þeir leikskólar sem skrá sig til þátttöku fá sendar ítarlegar leiðbeiningar, glærur, handrit, myndir, viðurkenningarskjal og litabækur fyrir hópinn. Í ár fengu leikskólarnir einnig Innipúka brúðu til að gera umferðarfræðsluna ennþá skemmtilegri.

Forvarnardagur Menntaskólans að Laugarvatni

Samgöngustofa þátt í forvarnadegi fyrir unga ökumenn sem haldinn var í Menntaskólanum að Laugavatni rétt fyrir páska. Dagurinn byrjaði á umferðarfræðslu frá Samgöngustofu, lögreglu og 112 og lauk þannig að slys var sviðsett þar sem nemendur fengu að fylgjast með viðbragðsaðilum bregðast við slysi.

Það er fagnaðarefni þegar framhaldsskólar leggja mikinn metnað í umferðarfræðslu fyrir unga fólkið. Það er svo mikilvægt að ná til þeirra á þeim aldri þar sem mörg þeirra eru að taka bílprófið. Með degi sem þessum vonumst við til að auka skilning unga fólksins á mikilvægi þess að taka skynsamar ákvarðanir í umferðinni.

Svona flottir dagar verða ekki til án virkilega góðrar samvinnu margra ólíkra aðila. Við þökkum skólanum og viðbragðsaðilum fyrir frábært samstarf.

Forvarnadagar fyrir ungt fólk í umferðinni

Þetta árið hefur Samgöngustofa tekið þátt í forvarnadögum fyrir unga ökumenn á nokkrum stöðum um landið. Þátttaka Samgöngustofa var í formi umferðaröryggis fræðslu ásamt aðstoð við skipulagningu þar sem þess var þörf. 

Forvarnadagarnir byrja á umferðarfræðslu frá ólíkum aðilum og lýkur þannig að slys er sviðsett þar sem nemendur fá að fylgjast með viðbragðsaðilum bregðast við slysi.

Það er fagnaðarefni að fleiri framhaldsskólar séu farnir að leggja mikinn metnað í umferðarfræðslu fyrir unga fólkið. Það er svo mikilvægt að ná til þeirra á þeim aldri þar sem mörg þeirra eru að taka bílprófið. Með degi sem þessum vonumst við til að auka skilning unga fólksins á mikilvægi þess að taka skynsamar ákvarðanir í umferðinni.

Svona flottir dagar verða ekki til án virkilega góðrar samvinnu margra ólíkra aðila. Hverjir standa að deginum er ólíkt á hverjum stað fyrir sig en viðbragðsaðilar og skólinn leika þar aðalhlutverk. Við þökkum öllum þeim sem komu að forvarnadögunum í Akranesi, Borgarnesi, Reykjanesbæ og á Grundarfirði fyrir frábært samstarf.

Vegna umfjöllunar fjölmiðla um aðgang Samgöngustofu að sjúkraskrám

Í ljósi nýlegrar umfjöllunar fjölmiðla um aðgang Samgöngustofu að sjúkraskrám, vill stofnunin koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. Aðeins yfirlæknir flugsviðs Samgöngustofu hefur aðgang að sjúkraskrám og engir aðrir starfsmenn stofnunarinnar hafa haft eða hafa slíkan aðgang. Yfirlæknir flugsviðs Samgöngustofu vinnur eftir ströngum verklagsreglum og tilgangur skoðana í sjúkraskrá er að leggja mat á heilsufarsgögn umsækjanda um heilbrigðisvottorð fyrir flugliða og flugumferðarstjóra sem og læknaskýrslur fyrir öryggis- og þjónustuliða. Mikilvægt er að yfirlæknir hafi nauðsynleg gögn til þess að leggja mat á heilbrigði umsækjanda um heilbrigðisvottorð, um er að ræða mikilvægt flugöryggismál og mjög strangar kröfur gilda um heilbrigði flugliða, flugumferðarstjóra og þjónustu- og öryggisliða.

Vel heppnað umferðarþing

Á föstudaginn stóðum við fyrir umferðarþingi. Yfirskriftin var: Saman í liði – Samspil ólíkra vegfarendahópa. Fulltrúar ólíkra vegfarendahópa komu saman og greindu frá ólíkum áskorunum. Mikið var lagt uppúr því að umræður dagsins væru lausnamiðaðar og til þess fallnar að auka skilning og samvinnu í umferðinni.

Ríkissáttasemjari var með hugvekju í upphafi dags og setti tóninn fyrir daginn. Bæði með lausnamiðaðri aðferðafræði sinni en svo tók hann einnig lagið með Svandísi Svavarsdóttur Innviðaráðherra, við góðar undirtektir gesta. Í lok dags stýrði hann svo pallborðsumræðum þar sem fulltrúar vegfarendahópanna áttu gott samtal um lærdóm dagsins og mikilvæg næstu skref.

Að sjálfsögðu voru svo vöfflur á boðstólum eins og venja er þegar vel gengur hjá ríkissáttasemjara.  

Samgönguvika hófst í dag

Margir góðir viðburðir verða í Evrópskri samgönguviku sem hefst mánudaginn 16. september og stendur til 22. september, en þema vikunnar að þessu sinni er Almannarými – virkir ferðamátar.

Samgöngustofa samgönguvika 2024

Frá árinu 2002 hafa borg og bæjarfélög á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu til að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með vikunni á Íslandi.

Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.

Viðburðir verða haldnir á vegum félagasamtaka og sveitarfélaga, en nálgast má upplýsingar um dagskrá vikunnar á vef Stjórnarráðsins, á heimasíðum sveitarfélaganna, auk Facebook síðu vikunnar.

Samgöngustofa mun svo standa fyrir Umferðaþingi föstudaginn 20. september.

Vikan endar svo á Bíllausa deginum, 22. september, þegar almenningur er hvattur til þess að skilja bílinn eftir heima og til að auðvelda það verður frítt í landsbyggðarstrætó og í strætó á höfuðborgarsvæðinu.

Dagskrá Evrópskrar samgönguviku 2024

Forvarnardagur í Borgarnesi

Samgöngustofa tók í dag þátt í forvarnardegi ungra ökumanna á Akranesi sem haldinn var í Menntaskóla Borgarfjarðar.

Dagurinn hófst þannig að allir nemendur skólans komu saman á sal og hlustuðu á þrjá fyrirlestra. Auk Samgöngustofu var Lögreglan og Neyðarlínan með erindi. Í lok dagsins var sviðsett slys eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni. Þar mátti sjá viðbragðsaðila bregðast við slysi, slökkviliðið t.d. klippti hurð af bíl til þess að ná í einstaklinga sem voru þar fastir inni. Það þurfti mikla samvinnu ólíkra viðbragðsaðila til að allt gengi vel upp sem það gerði. Það var einnig frábært að einn slökkviliðsmaðurinn var í krana og sá yfir allan vettvanginn og lýsti fyrir nemendum hvað væri í gangi. Eftir þetta fóru allir aftur inn og gafst nemendum tækifæri til að ræða við viðbragðsaðila og aðra sem stóðu að deginum.

Virkilega lærdómsríkur dagur að baki og ungmennin áhugasöm um þetta mikilvæga málefni.

Hér er hægt að sjá myndband frá deginum.

Tökum vel á móti nýju fólki

Í júlí og ágúst hófu fjórir nýir starfsmenn störf hjá Samgöngustofu.

Árni Elvar Emilsson starfar sem skipaeftirlitsmaður og er staðsettur á 3. hæð.

Dagný Björnsdóttir starfar sem fulltrúi í skráningar og þjónustudeild og er staðsett á 1. hæð. 

Guðrún Birna Jóhannsdóttir starfar sem sérfræðingur í deild stjórnunarkerfa og alþjóðamála og er staðsett á 3. hæð.

Gyða Marín Bjarnadóttir starfar sem sérfræðingur í mannauðsdeild og er staðsett á 2. hæð.

Tökum vel á móti þeim 🙂

Frá vinstri: Gyða, Árni, Guðrún, Dagný

Umferðarþing 2024 – skráning

Opnað hefur verið fyrir skráningu á umferðarþingi Samgöngustofu. Að þessu sinni verður þema þingsins samspil ólíkra vegfarendahópa. Munu fulltrúar vegfarendahópa greina frá sínum fararmáta, hvað er gott við hann og hvaða áskorunum þau mæta. Er ætlunin að allir vegfarendahópar geri sér grein fyrir sérstöðu og áskorunum hvers annars og munu þá öll vonandi sýna hvert öðru betri skilning í umferðinni.

Ríkissáttasemjari mun taka þátt í deginum með okkur. Mun hann leggja línurnar fyrir daginn og er ætlunin að nýta hans aðferðarfræði við að ná árangri. Einnig mun hann stýra pallborði í lok þingsins.

Skráning fer fram hér.

Samstarf við Bylgjuna í sumar

Nú í sumar er Samgöngustofa í samstarfi við Bylgjuna og fleiri aðila um umferðaröryggisvitundarvakningu. Vefborðar með umferðaröryggisskilaboðum hafa verið birtir á visir.is og víðar og sömuleiðis hafa verið spilaðar stuttar auglýsingar á Bylgjunni þess efnis. Að auki fjallar dagskrárgerðarfólk Bylgjunnar, FM957 og X977 daglega um átakið og kemur þannig mikilvægum skilaboðum til skila í allt sumar.

Innipúka leikur

Á samfélagsmiðlum Samgöngustofu er í gangi leikur þar sem hægt er að vinna Innipúkabrúðu. Endilega takið þátt og bendið fólki á að taka þátt í kringum ykkur sem gæti langað í Innipúka.

Hlekkur á leikinn á Instagram

Hlekkur á leikinn á Tiktok

Hlekkur á leikinn á Facebook

Umferðarþing 2024

Samgöngustofa heldur Umferðarþing föstudaginn 20. september 2024 í Gamla Bíói.

Að þessu sinni verður þemað samspil ólíkra vegfarendahópa. Munu fulltrúar vegfarendahópa greina frá sínum fararmáta, hvað er gott við hann og hvaða áskorunum þau mæta. Er ætlunin að allir vegfarendahópar geri sér grein fyrir sérstöðu og áskorunum hvers annars og munu þá öll vonandi sýna hvert öðru betri skilning í umferðinni. Markmiðið er að gera umræðuna lausnamiðaða og því höfum við fengið ríkissáttasemjara með okkur í lið. Hann mun leggja línurnar fyrir daginn og er ætlunin að nýta hans aðferðarfræði við að ná árangri. Einnig mun hann stýra pallborði í lok þingsins.

Skjáhætta nýtt íslenskt orð?

Á dögunum fórum við af stað með herferðina “Ekki taka sjáhættuna” og þá var orðið skjáhætta fyrst kynnt til sögunnar. Nú er búið að skrá orðið skjáhætta sem nýyrði á vef Árnastofnunnar.

Orðið hefur verið í umfjöllun bæði á samfélagsmiðlum sem og hjá fjölmiðlum síðan herferðin fór af stað. Það verður því gaman að sjá hvort að það nái að festast í málinu.

Með því kjósa orðið inná síðu Árnastofnunar þá getur þú hjálpað okkur að koma orðinu á framfæri. Hér er hlekkur á síðuna, stuðningurinn yrði vel þeginn.

Ný herferð farin af stað

Samgöngustofa og Sjóvá eru farin af stað með nýja herferð sem ber heitið “Ekki taka skjáhættuna.” Hún minnir okkur á hvað það er fáránlegt að leyfa símanum að stela athyglinni frá akstrinum og stofna þannig öryggi okkar og annarra í hættu.

Á heimasíðu herferðarinnar má finna leiðbeiningar um hvernig er hægt að stilla snjallsíma á akstursstillingu. Það er ein leið til að hjálpa okkur að standast freistinguna að fara í símann undir stýri. Þegar síminn er stilltur á akstursstillingu þá kveikist sjálfkrafa á stillingunni þegar við erum að keyra og við fáum engar tilkynningar í síman. Þetta er ein leið til að hjálpa okkur að standast freistinguna.

Við hvetjum starfsfólk til að taka þátt í herferðinni með því að dreifa þessum mikilvæga boðskapi sem víðast og hvetja fólkið í kringum ykkur til að sleppa símanum og stilla símann á akstursstillingu.

Hér er hlekkur á heimasíðu herferðarinnar.

Ekki taka skjáhættuna

Samgöngustofa og Sjóvá eru að fara af stað með nýja herferð á morgun eins og kom fram í föstudagskaffinu síðasta föstudag. Herferðin ber heitið “Ekki taka skjáhættuna” og markmið hennar er að fá fleira fólk til að sleppa símanum undir stýri. Hún minnir fólk á hvað það er fáránlegt að leyfa símanum að stela athyglinni frá akstrinum og stofna þannig öryggi okkar og annarra í hættu. Samhliða herferðinni munum við vekja athygli fólks á því að í öllum snjallsímum er hægt að stilla símann á akstursstillingu sem er ein leið til að hjálpa okkur að standast freistinguna að fara í símann undir stýri.

Í kvöld verður Þórhildur samskiptastjóri gestur í Kastljósi ásamt lögreglunni að ræða áhættuna sem fylgir símanotkun undir stýri. Þar verður herferðin einnig frumsýnt.

Við hvetjum starfsfólk til að taka þátt í herferðinni með því að dreifa þessum mikilvæga boðskapi sem víðast, að sleppa símanum undir stýri. Herferðinni má þó ekki dreifa fyrr en á morgun.

Slysaskýrsla 2023

Nú á dögunum gaf Samgöngustofa út slysaskýrslu ársins 2023. Góðu fréttirnar eru þær að aðeins 8 létust í umferðinni í fyrra og er það mjög góður árangur, bæði í sögulegu samhengi og í samanburði aðrar þjóðir. Erum við líklega í fyrsta sæti í Evrópu ásamt Noregi þegar kemur að látnum per höfðatölu. Við hins vegar notumst alltaf við fimm ára tímabil í alþjóðlegum samanburði vegna mikilla sveifla hjá okkur og höfum við síðustu fimm ár verið með fjölda látinna undir 10 á hverju ári. Það skilar okkur í þriðja sæti í Evrópu á eftir Noregi og Svíþjóð þegar kemur að fjölda látinna per höfðatölu yfir fimm ára tímabil. Að þessu öllu sögðu fer þetta ár auðvitað hræðilega af stað og erum við því lítið að hampa þessum árangri þessa dagana.

Einnig er gríðarlega jákvætt að sjá að slösuðum á rafhlaupahjóli fækkar úr 176 í 131 (26%) og alvarlega slösuðum  og látnum á rafhlaupahjóli fækkar úr 49 í 31 (37%) á milli ára. Hér viljum við meina að herferðin okkar (Ekki skúta upp á bak) og þjóðfélagsumræðan sem skapaðist í kjölfarið (t.d. Kompás þáttur þar um) hafi haft mikil áhrif. Einnig sjáum við í viðhorfskönnun okkar að þeim fækkar sem segjast nota þessi hjól undir áhrifum.

Að flestu öðru leyti kemur árið illa út. Látnir + alvarlega slasaðir voru 237 og hefur sú tala ekki verið hærri á þessari öld (var þó hærri árið 1999). Yfirmarkmið umferðaröryggisáætlunar segja að árið 2023 áttu látnir + alvarlega slasaðir ekki að fara upp fyrir 148 og erum við því 60% yfir markmiðum. Undirmarkmiðin koma að sama skapi illa út (sjá gröf að neðan) og eru þeir mælikvarðar nánast allir að hækka á milli ára.

Erlendu ferðamennirnir sem nú eru komnir aftur, erlendir ríkisborgarar sem búa hérlendis (og fer ört fjölgandi) sem og rafhlaupahjólin eiga vissulega þátt í þessari fjölgun en fjölgun slysa er það fjölbreytt að við þurfum klárlega að standa okkur betur í að ná niður slysum heilt yfir.

Hér má svo lesa skýrsluna í heild sinni.

Slysakortið hefur einnig verið uppfært og inniheldur nú öll slys ársins 2023. Hér er hægt að skoða slysakortið.

Hér að neðan eru gröfin sem sýna markmið og undirmarkmið umferðaröryggisáætlunar.

Vorfundur hjólreiðafólks

Í gær fór fram vorfundur hjólreiðafólks í Flugröst. Fundurinn var hugsaður sem vettvangur fyrir skoðanaskipti og deilingu upplýsinga er varðar hjólreiðar milli hjólreiðafólks og opinberra aðila. Reykjavíkurborg og Vegagerðin voru með erindi um þær framfarir sem orðið hafa á innviðum og vetrarþjónustu hjólreiðafólks og góðar umræður voru í kjölfarið um það sem betur má fara.