Á sumardaginn fyrsta fór fram fjölmennur Vorfagnaður bifhjólafólks í tilefni sumarsins. Megin markmið þessa fagnaðar er að hittast, rifja upp mikilvæg atriði hvað öryggi bifhjólafólks varðar og æfa sig á frábærum brautum Ökuskóla 3 og Kvartmíluklúppsins.
Talið er að u.þ.b. 200 manns hafi mætt og notið skemmtunar, veitinga og æfinga undir handleiðslu ökukennara og félaga í Kvartmíluklúppnum.
Samgöngustofa stóð að þessu í frábæru samstarfi við Ökukennarafélagið, Ökuskóla 3, Kvartmíluklúbbinn og Sniglana og eiga þessir aðilar miklar þakkir skildar fyrir frábæran dag.
Í föstudagskaffinu sýndum við í Öryggis- og fræðsludeild ný upp gerða heimasíðu, umferd.is. Heimasíðan hefur fengið alveg nýtt útlit og skipulag hennar hefur verið bætt og hún gerð aðgengilegri í notkun. Umferd.is er gagnabanki fyrir kennara til að auðvelda þeim að sinna umferðarfræðslu á hvaða skólastigi sem er.
Við nýttum einnig tækifærið og sýndum nýja innipúkabrúðu sem við létum framleiða til að gera umferðarfræðsluna ennþá skemmtilegri. Í gegnum árin verið mikil eftirspurn eftir innipúka brúðu en innipúkinn er karakter sem hefur frætt ungt fólk í rúm 20 ár um umferðarreglurnar í sögunum um Krakkana í Kátugötu. Hann er einstaklega skemmtilegur karakter og mörg börn elska hann. Í ár sendum við innipúka á alla leikskóla sem taka þátt í Umferðarskóla Samgöngustofu í þeim tilgangi að gera umferðarfræðsluna ennþá skemmtilegri en einnig til þess að þakka leikskólunum fyrir að taka þátt í Umferðarskólanum. Nú er það nefnilega þannig að skólarnir sjá nú um framkvæmdina sjálf en efnið til kennslunnar og leiðbeiningar má finna inná heimasíðunni okkar umferd.is. Með þessu móti komum við fræðslunni til mun fleirri leikskóla en við náðum áður.
Endilega kíktu á okkur inns í horninu á 3 hæð, stóra ganginum, ef þú náðir ekki að næla þér í innipúkabrúðu eða sendu okkur línu.
Samgöngustofa tók í dag þátt í forvarnardegi ungra ökumanna á Akranesi sem haldinn var í FVA.
Dagurinn hófst þannig að allir nemendur skólans komu saman á sal og hlustuðu á þrjá fyrirlestra. Auk Samgöngustofu var Lögreglan og Neyðarlínan með erindi. Í lok dagsins var sviðsett slys eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni. Þar mátti sjá viðbragðsaðila bregðast við slysi, slökkviliðið t.d. klippti hurð af bíl til þess að ná í einstaklinga sem voru þar fastir inni. Það þurfti mikla samvinnu ólíkra viðbragðsaðila til að allt gengi vel upp sem það gerði. Það var einnig frábært að einn slökkviliðsmaðurinn var í krana og sá yfir allan vettvanginn og lýsti fyrir nemendum hvað væri í gangi. Eftir þetta fóru allir aftur inn á sal, fengu pulsur frá skólanum og viðbragðsaðilar tóku saman það sem hafði gerst úti á vettvangi og hvaða lærdóm má draga af deginum.
Virkilega lærdómsríkur dagur að baki, góð stemming var á deginum og ungmennin áhugasöm um þetta mikilvæga málefni.
Ár hvert veitir Samgöngustofa styrk/styrki til ýmissa rannsóknarverkefna sem tengjast öryggi skipa, atvinnusjómanna, farþega og búnaðar um borð í skipum sem og verkefna sem snúa að heilsusamlegu umhverfi sjófarenda.
Gert er ráð fyrir að veita styrki til einstaklinga og/eða félaga sem koma með tillögur að lausnum í þessa átt. Heildarstyrkupphæðin hljóðar upp á 2.500.000 krónur að hámarki hvert ár og er öllum frjálst að sækja um.
Fyrir helgi fékk Samgöngustofa við önnur verðlaun fyrir www.uppabak.is í flokknum markaðsvefur ársins á SVEF verðlaununum sem veitt voru á föstudaginn. Við vorum enda kölluð upp á svið þar sem 2. sæti fékk sérstaka viðurkenningu í öllum flokkum. Í 1. sæti var onnujonuson.com sem Haraldur Þorleifsson, fyrrverandi eigandi Ueno, dýrasta vef- og hönnurfyrirtæki Íslandssögunnar, heldur úti. Það má segja að hann hafi verið að keppa í sinni eigin deild og því frábært að okkar vefur hafi verið bestur af öllum hinum.
Samgöngustofa fékk í dag þrjár tilnefningar til Lúðursins sem eru íslensku auglýsingaverðlaunin. Tilnefningarnar fengum við fyrir herferðirnar Sjáumst, sem unnin var í samstarfi við 66° Norður og Ekki skúta uppá bak, sem var í samstarfi við Vís. Auglýsingastofan Bien vann báðar herferðirnar með okkur.
Verðlauna afhendingin fer fram eftir viku og við bíðum spennt þangað til!
Eins og alþjóð veit hefur janúar verið mjög þungur og erfiður i umferðinni. Þessi mörgu alvarlegu slys taka virkilega á okkur sem vinnum að því á hverjum degi að gera það sem við getum til að draga úr umferðarslysum.
Það er vissulega margt sem þarf að bæta og laga í umferðinni en okkar áhersla hjá Samgöngustofu er að vinna með mannlega þáttinn sem skiptir svo miklu máli í umferðinni.
Okkur langaði vekja athygli á því innanhúss hvað við höfum verið að gera aukalega vegna þessara mörgu slysa. Við höfum m.a. bætt verulega í auglýsingar okkar á samfélagsmiðlum á vetrar fræðslumyndböndunum okkar. Einnig höfum við verið áberandi í fjölmiðlum að ræða um þessi slys og umferðaröryggi almennt.
Ekki liggur almennilega fyrir hvað gerðist í þessum slysum en klárt er að niðurstöður rannsókna munu kalla á frekari viðbrögð, hvort sem þau verða okkar eða annarra.
Ráðuneytisstjóri, forstjóri Vegagerðarinnar, ríkislögreglustjóri og Jón Gunnar forstjóri mynda saman umferðaröryggisráð en á þeim vettvangi eru dregnar sameiginlegar línur um hvað skuli gera í umferðaröryggismálum. Það ráð mun koma saman þegar niðurstöður rannsókna liggja fyrir og stilla saman strengi sína verðandi viðbrögð.
Með von um að febrúar færi okkur meiri birtu og betri fréttir úr umferðinni!
Hér er myndband úr nýjustu herferð Samgöngustofu og 66° Norður. Herferðin ber nafnið Sjáumst og er til þess fallin að vekja athygli á mikilvægi endurskinsmerkja. Markmiðið er einnig að gera endurskins merkin meira töff fyrir unga fólkið.
Samgöngustofa í samstarfi við 66° norður er að fara af stað með nýja endurskins herferð sem ber titilinn Sjáumst. Markmiðið er að höfða til unga fólksins og gera endurskinsmerki meira töff. Módelin í herferðinni eru áhrifavaldar á TikTok og munu fjalla um herferðina og endurskinsmerki á sínum miðlum.
Hér að neðan má sjá hvernig auglýsingarnar koma út í strætóskýlum en eins og sjá má er endurskinsmerki í auglýsingunni sem lýsist upp þegar keyrt er framhjá.
Við hvetjum ykkur til að kíkja á heimasíðu herferðarinnar www.sjaumst.is
Í hádeginu verður starfsfólki Samgöngustofu boðið uppá að næla sér í endurskinsmerki í matsalnum áður en þau fara í almenna dreifingu. Endurskinsmerkin sem við erum að gefa eru svartir límmiðar sem haldast best á hörðum flötum eins og töskum, barnavögnum og hjólum. Þau má einnig líma á föt og límið er þannig gert að það er lítil hætta á að það skemmi flíkur.
Núna rétt í þessu kom út nýtt myndband í jóladagatali Samgöngustofu á Instagram. Umfjöllunarefnið í myndbandinu er mikilvægi þess að sleppa símanum undir stýri. Við fengum Lögregluna með okkur í lið til þess að fjalla um þetta mikilvæga málefni.
Það er komið að stærsta vinningnum, en í honum er allt fyrir Karaoke partýið eða áramóta partýið. Í vinning er JBL Partybox 310 ferðahátalari að verðmæti ca. 100.000 kr, 2x hljóðnemar og 2x KFC máltíðir. Þessi vinningur er í boði KFC.
Hér er hlekkur á myndbandið, endilega takið þátt í leiknum og hjálpumst að við koma þessum mikilvægu skilaboðum til sem flestra.
Núna rétt í þessu kom út nýtt myndband í jóladagatali Samgöngustofu á Instagram. Umfjöllunarefnið í myndbandinu er mikilvægi þess að fara varlega á rafskútum. Við fengum m.a. Hjalta Má Björnsson yfirlækni bráðamóttöku Landspítala með okkur í lið til þess að fjalla um þetta mikilvæga málefni.
Hér er hlekkur á myndbandið, endilega takið þátt í leiknum og hjálpumst að við koma þessum mikilvægu skilaboðum til sem flestra.