Slysaskýrsla 2023

Nú á dögunum gaf Samgöngustofa út slysaskýrslu ársins 2023. Góðu fréttirnar eru þær að aðeins 8 létust í umferðinni í fyrra og er það mjög góður árangur, bæði í sögulegu samhengi og í samanburði aðrar þjóðir. Erum við líklega í fyrsta sæti í Evrópu ásamt Noregi þegar kemur að látnum per höfðatölu. Við hins vegar notumst alltaf við fimm ára tímabil í alþjóðlegum samanburði vegna mikilla sveifla hjá okkur og höfum við síðustu fimm ár verið með fjölda látinna undir 10 á hverju ári. Það skilar okkur í þriðja sæti í Evrópu á eftir Noregi og Svíþjóð þegar kemur að fjölda látinna per höfðatölu yfir fimm ára tímabil. Að þessu öllu sögðu fer þetta ár auðvitað hræðilega af stað og erum við því lítið að hampa þessum árangri þessa dagana.

Einnig er gríðarlega jákvætt að sjá að slösuðum á rafhlaupahjóli fækkar úr 176 í 131 (26%) og alvarlega slösuðum  og látnum á rafhlaupahjóli fækkar úr 49 í 31 (37%) á milli ára. Hér viljum við meina að herferðin okkar (Ekki skúta upp á bak) og þjóðfélagsumræðan sem skapaðist í kjölfarið (t.d. Kompás þáttur þar um) hafi haft mikil áhrif. Einnig sjáum við í viðhorfskönnun okkar að þeim fækkar sem segjast nota þessi hjól undir áhrifum.

Að flestu öðru leyti kemur árið illa út. Látnir + alvarlega slasaðir voru 237 og hefur sú tala ekki verið hærri á þessari öld (var þó hærri árið 1999). Yfirmarkmið umferðaröryggisáætlunar segja að árið 2023 áttu látnir + alvarlega slasaðir ekki að fara upp fyrir 148 og erum við því 60% yfir markmiðum. Undirmarkmiðin koma að sama skapi illa út (sjá gröf að neðan) og eru þeir mælikvarðar nánast allir að hækka á milli ára.

Erlendu ferðamennirnir sem nú eru komnir aftur, erlendir ríkisborgarar sem búa hérlendis (og fer ört fjölgandi) sem og rafhlaupahjólin eiga vissulega þátt í þessari fjölgun en fjölgun slysa er það fjölbreytt að við þurfum klárlega að standa okkur betur í að ná niður slysum heilt yfir.

Hér má svo lesa skýrsluna í heild sinni.

Slysakortið hefur einnig verið uppfært og inniheldur nú öll slys ársins 2023. Hér er hægt að skoða slysakortið.

Hér að neðan eru gröfin sem sýna markmið og undirmarkmið umferðaröryggisáætlunar.