Samgöngustofa tilnefnd til sex verðlauna

Í gær var tilkynnt um tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, sem eru veitt til bestu auglýsinga ársins 2024. Hlaut Samgöngustofa sex tilnefningar. Föstudaginn 7. mars kemur svo í ljós hver uppskeran verður, þ.e. hvort við hljótum einhvern lúður.

Fimm af þessum tilnefningum voru fyrir herferðina Ekki taka skjáhættuna sem við stóðum fyrir með Sjóvá og er ein fyrir Sjáumst // Ekki herferðina sem við stóðum fyrir með 66°Norður. Erum við tilnefnd fyrir Skjáhættuauglýsinguna í flokkunum Herferð ársins, Prentauglýsingar, Kvikmyndaðar auglýsingar – styttri, Veggspjöld og skilti og PR (Almannatengsl). Sjáumst herferðin er svo tilnefnd í flokknum Stafræn auglýsing.

Svona verðlaun eru ekki bara hégómi því þetta sýnir okkur að þau verkefni sem við höfum farið í og þær aðferðir sem við höfum notað til að koma skilaboðum okkar á framfæri eru að virka. Auk þess er öll umfjöllun um slíkar viðurkenningar af hinu góða þar sem hún varpar ljósi á skilaboð auglýsinganna.