Ísland í fremstu röð

Ráðherra okkar, Eyjólfur Ármannson, var staddur í Marrakesch nú á dögunum á alþjóðlegri ráðherraráðstefnu um umferðaröryggi, þeirri fjórðu í röðinni. Á síðustu ráðstefnu, sem fór fram í Stokkhólmi í febrúar árið 2020, skrifuðu ráðherrar undir yfirlýsingu þar sem ýmsu fögru var heitið, m.a. að fækka banaslysum um a.m.k. 50% frá árinu 2020 til 2030. Þar sem árið 2020 var á margan hátt skrítið vegna heimsfaraldurs Covid19 þá hefur verið miðað við meðaltal áranna 2017-2019 sem upphafspunkt.

Til að vera á réttri braut þyrftu lönd að vera búin að fækka látnum í umferðinni um 18,8% árið 2023 m.v. upphafspunktinn. Ísland er eitt af aðeins sjö ríkjum heimsins sem hefur náð þeim árangri og er árangur Íslands sá besti á heimsvísu (sjá mynd). Upphafspunktur Íslands (meðaltal 2017-2019) er 13,3 látnir en árið 2023 létust 8 manns á Íslandi sem er tæplega 40% fækkun. Til þess að ná þessum markmiðum árið 2030 mega ekki fleiri en 6 manns látast það ár í umferðinni.

Þar sem tölur yfir fjölda látinna í umferðinni eru lágar á Íslandi og sveiflur því miklar er rétt að taka þessum tölum með ákveðnum fyrirvara. Engu að síður er ánægjulegt að sjá Ísland fremst meðal jafningja þegar kemur að umferðaröryggismálum og alveg ljóst að við eigum góðan möguleika á að ná þessum markmiðum og hugsanlega vera eitt af fáum löndum sem það gera.