Ráðstefna um innviðafjárfestingar -upptaka

Þann 2. febrúar síðastliðinn var haldin ráðstefna á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða og innviðaráðuneytisins á Grandhóteli í Reykjavík um möguleika á samvinnuverkefnum hins opinbera og lífeyrissjóða við uppbyggingu innviða. Sérstök áhersla var á samgöngumannvirki og snérust flestir fyrirlestrarnir um þau. Mörg áhugaverð erindi voru flutt á ráðstefnunni og má nálgast upptöku af ráðstefnunni hér.

Frummælendur komu úr mörgum áttum hérlendis og erlendis. Innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson ávarpaði fundarmenn í upphafi og sat síðan ráðstefnuna til enda. Fleiri ráðuneytismenn voru á mælendaskrá, fulltrúar lífeyrissjóða, verktaka, sveitarfélaga og íslenskra og erlendra ráðgjafar- og fjármögnunarfyrirtækja. Meðal frummælenda var líka fyrrverandi stjórnarformaður Spalar, reynslunni ríkari af sjálfu umfjöllunarefni dagsins í framkvæmd.

Dagskrá ráðstefnunnar
Frétt um ráðstefnuna