Ísland í 2. sæti hjá tímaritinu Autopista

Samkvæmt spænska tímaritinu Autopista er Ísland í öðru sæti yfir þau lönd þar sem öruggast er að aka (á eftir Noregi). Af því tilefni bað Mexíkóska sjónvarpsstöðin TV4 Guanajuato (í héraðinu Guanajuato í Mexíkó) um viðtal við Gunnar Geir til að spyrja hverju við þökkum þennan árangur og hvort aðrar þjóðir getir lært eitthvað af okkur.

Talað er yfir viðtalið á spænsku og því ekki víst að margir Íslendingar skilji hvað fer fram en það er gaman að þjóðir heimsins skuli taka eftir árangri okkar þegar kemur að öryggi í umferðinni. Gunnar Geir er “döbbaður” í viðtalinu og ef einhver hér innanhúss er sleip(ur) í spænskunni væri gaman að fá þýðingu 🙂

Viðtalið byrjar á mínútu 2:10:40 (smellið á myndina) :


Eða smellið á linkinn hér