Isavia ohf. afhent starfsleyfi

Jón Gunnar afhendir Önnu Björk Bjarnadóttur starfsleyfið. Anna Björk er framkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar hjá Isavia ohf.

Sl. föstudag fékk Isavia ohf. afhent starfsleyfi sem veitandi flugumferðarþjónustu og mun veita flugturnsþjónustu í flugstjórnarsviði Keflavíkurflugvallar. Í flugumferðarþjónustu felst m.a. flugstjórnarþjónusta, viðbúnaðarþjónusta og flugupplýsingaþjónusta. Flugstjórnarsviðið nær 18 km. umhverfis Keflavíkurflugvöll og nær frá jörðu upp í 3.000 fet.

Hingað til hefur Isavia ohf. haft samning við dótturfyrirtæki sitt Isavia ANS um að veita þjónustuna en fyrirtækið hefur nú sótt um og fengið starfsleyfi sjálft. Isavia ohf. mun þó áfram verða í miklu samstarfi með og nota þjónustu dótturfyrirtækisins vegna nokkurra þátta eins og þjálfunar flugumferðarstjóra. Vottunarferlið hefur verið í undirbúningi allt síðastliðið ár.

Hægra megin við Jón Gunnar, Hlín og Þröst standa fulltrúar frá Isavia ohf.: Anna Björk Bjarnadóttir, Helga R. Eyjólfsdóttir og Júlía Guðbjörnsdóttir.