
Það er hún Ásta Björk sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir Ásta:
Ég vel lagið Red red wine með UB40. Við vinkonurnar tókum okkur stundum “langt“ (skróp) matarhlé í skólanum til að fara heim að lesa Ísfólkið. Þá var hlustað á UB40 á kassettu og þetta lag var í miklu uppáhaldi.
Ég skora á Soffíu J Gestsdóttur að koma með næsta föstudagslag 🙂