Föstudagslagið í boði Huldu

Það er hún Hulda Finnsdóttir sem velur föstudagslagið í þetta skiptið. Um val sitt segir hún:

Þetta lag minnir mig á gamla tíma þegar ég fór í interrail með vinkonum mínum um Evrópu.

Við byrjuðum að fara til Spánar og enduðum í Danmörku á tónleikum með Kanye West.

Þetta var alveg ógleymanleg ferð.

Ég skora á Andra þór fyrir næsta föstudag

Tökum höndum saman

Vinnueftirlitið hefur hleypt af stað nýrri herferð gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum undir yfirskriftinni #TökumHöndumSaman. Tilgangurinn er að hvetja vinnustaði til að grípa til aðgerða með forvörnum, fræðslu og markvissum viðbrögðum. Nýtt fræðsluefni og verkfæri hafa verið þróuð með það að markmiði að styðja við vinnustaði landsins í að fyrirbygga og bregðast við kynferðislegri áreitni í vinnuumhverfinu.

Mælum með að skoða heimasíðu átaksins.

https://youtu.be/4x5J8NIu-fQ

Öflug vitundarvakning um neikvæð áhrif kynferðislegrar áreitni hefur átt sér stað á undanförnum árum. Vinnueftirlitið vill leggja sín lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn þessari hegðun og hefur í samtarfi við samtök aðila vinnumarkaðarins, embætti landlæknis, Jafnréttisstofu og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hleypt af stað sérstakri aðgerðavakningu gegn kynferðislegri áreitni.

Með aðgerðavakningunni vill stofnunin hvetja vinnustaði til að gefa skýr skilaboð um að kynferðisleg áreitni sé ekki liðin og að brugðist verði við gerist þess þörf. Það er til mikils að vinna því kynferðisleg áreitni getur valdið starfsfólki heilsutjóni og haft neikvæð áhrif á árangur, framleiðni og orðspor vinnustaða.

Minnum á Stefnu og áætlun Samgöngustofu gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi, STE-0015 í CCQ.

Minnum einnig á Bendil, ábendingarhnapp CCQ, hann má opna hér á innri vefnum.

Í Bendli er hægt að senda inn ýmis konar ábendingar (sjá skjáskot). Hægt er að velja hvort ábending er send inn undir nafni eða naflaust.

Fræðsla í framhaldsskólum

Bjarklind að fræða í MH

Í janúar fórum við aftur af stað umferðarfræðslu í framhaldsskóla eftir langa pásu í kringum Covid. Bjarklind í öryggis- og fræðsludeild sér um að fara í framhaldsskólana og nú þegar hefur hún farið í FÁ, Kvennó og MH og fleiri fyrirlestrar hafa verið bókaðir á næstu vikum.

Í fræðslunni er farið yfir bílprófið, sekti og punkta og umferðaröryggi. Sérstök áhersla er lögð á að vera ekki í símanum undir stýri, beltanotkun og að keyra ekki undir áhrifum. Vel hefur verið tekið á móti okkur og ungmennin einstaklega áhugasöm um viðfagsefnið.

Tilkynning til skoðunarstofa vegna sprengingar

Samgöngustofa hefur sent skoðunarstofum ökutækja öryggistilkynningu vegna sprengingar í metangeymi bifreiðar 13. febrúar sl.

Í tilkynningunni kemur fram mikilvægi þess að herða eftirlit með eldsneytisþrýstigeymum fyrir metangas. Í skoðunarhandbók er krafa um að skoðaðar séu viðurkenningamerkingar og gildistímamerkingar á þrýstigeymum af þessu tagi. Í nýrri skoðunarhandbók ökutækja sem tekur gildi 1. mars nk., eru skoðunaratriði og dæmingar vegna þrýstigeymanna ítarlegri en verið hefur.

Öryggistilkynningin beinir því til skoðunarstofa að við reglubundna skoðun verði þrýstigeymar fyrir metan skoðaðir sérstaklega vel, m.a. gildistími og mögulegur styrkleikamissir.

Öryggistilkynningar má finna hér á ytri vefnum okkar.




Kaupmannahafnarkaka

Hvað eru mörg K í því?

Í tilefni þess að ferðanefnd og Farsýslan kynnti í vikunni staðsetningu árshátíðar og fræðsluferðar 2023 – KAUPMANNAHÖFN – var boðið uppá dejlig danska súkkulaðiköku með morgunkaffinu í morgun.

Skráning er í gangi (til 3. mars) hjá Thelmu – sendið póst á thelma.d.haraldsdottir@samgongustofa.is

Föstudagslagið í boði Soffíu

Það er hún Soffía Gestsdóttir sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir hún:
Við sátum systurnar, spenntar með segulbandstækið á milli okkar. Sony tæki sem var besta græjan af öllum tækjum. Við höfðum fengið það í fermingargjöf (sameiginleg gjöf eins og hárblásarinn og margt fleira) nokkrar kasettur fylgdu með.

Lög unga fólksins voru að byrja í útvarpinu og þá var tekið upp. Það var vandasamt verk og ekkert mátti fara úrskeiðis. Þátturinn var á dagskrá 1958-1987. Þetta lag sem ég valdi þótti með því flottara og allir þekktu það og kunnu textann.

Kallað oft sorglega lagið af okkur vinkonunum. Við urðum fyrir miklum vonbrigðum þegar við sáum mynd af söngvaranum mörgum árum seinna.

En alltaf hægt að hlusta þarf ekkert að horfa.

Mæli með Huldu Finns í næstu viku

Fréttir af ráðningarmálum

Í dag fóru í loftið tvennar starfsauglýsingar.

Auglýst er eftir rafmagns sérfræðing í skipatækni og forritara.

Upplýsingar um ökutæki á island.is

Samstarfið við Stafrænt Ísland heldur áfram að gefa og nú eru ýmsar upplýsingar um ökutæki landsmanna komnar inn á island.is og í island.is appinu. Það sem ökutækjaeigendur geta gert/séð núna á island.is er:

  • Skoðað yfirlit og upplýsingar um ökutæki í sinni eigu/umráðum
  • Sótt eignastöðuvottorð og ferilskýrslu
  • Skoðað ökutækjaferilinn
  • Skráð nafnleynd á/af og flett upp í ökutækjaskrá (5 á dag).

Ýmis verkefni eru svo í farveginum með Stafrænu Íslandi sem hefur verið sagt frá áður eins og flutningur vefsins yfir á island.is og tenging við pósthólf island.is. Við munum flytja nánari fréttir af þeim verkefnum á næstu misserum.

Við hvetjum ykkur til þess að prufa að skrá ykkur inn á island.is og skoða upplýsingarnar um ykkar ökutæki og eins að hala niður islands.is appinu og skoða sömu upplýsinga þar.

Dæmi um upplýsingar um ökutæki í island.is appinu:






Árshátíðar- og fræðsluferð Farsýslunnar 2023 – Kaupmannahöfn

Ferðanefnd kynnti í dag skipulag árshátíðar og fræðsluferðar Farsýslunnar og Samgöngustofu 2023
Áfangastaður er Kaupmannahöfn dagana 28. sept til 1. okt.

Allar frekari upplýsingar hér:

Glærur frá kynningarfundi ferðanefndar

#Farsýslan #Kaupmannahöfn #SJÖÖBBBEEN #Árshátíð
#Fræðsluferð #Árshátíðar og fræðsluferð #Ferðanefnd

Slysatölur í umferð

Öryggis- og fræðsludeild hefur lokið við að skrá umferðarslys fyrstu tíu mánuði síðasta árs. Stefnt er að því að ljúka skráningu ársins snemma í apríl. Í gröfunum hér að neðan gefur að líta tölur fyrir heil ár síðustu ára ásamt spágildi fyrir árið 2022, byggt m.a. á fyrstu tíu mánuðum ársins.

Í fyrra létust eða slösuðust alvarlega 200 manns. Ungu ökumennirnir eru að standa sig mun betur en árið áður og sömuleiðis virðast erlendir ríkisborgarar sem hér eru búsettir lenda í minni vandræðum í umferðinni en árið 2021.

Á hinn bóginn virðist ölvunarslysum fjölga aðeins og eins og við var að búast fjölgar hjólaslysum, einkum og sér í lagi slysum á rafhlaupahjólum.

Slösuðu erlendu ferðafólki fjölgar aðeins á milli ára en m.v. hver fjölgun þeirra var á landinu milli ára þá var hver og einn ferðamaður mun öruggari í fyrra en árið 2021 og talsvert öruggari en hann var fyrir Covid.

Hér má sjá hver þróunin hefur verið á slysum á rafhlaupahjólum ásamt slysum á öðrum gerðum hjóla.

Aukið öryggi smáfarartækja

Nýtt frumvarp um breytingar á umferðarlögum snýr að auknu öryggi smáfarartækja. Byggir það á tillögum starfshóps sem m.a. Samgöngustofa tók þátt í:

  • Nýr ökutækjaflokkur smáfarartækja verði innleiddur í umferðarlög. Miðað yrði við að smáfarartæki væru ekki hönnuð til hraðari aksturs en 25 km á klst. og að hjól yfir þeim mörkum væru óheimil í umferð.
  • Hlutlægt viðmið um áfengismagn í blóði ökumanna smáfarartækja.
  • Ökumenn smáfarartækja skyldu að lágmarki hafa náð 13 ára aldri og að yngri en 16 ára yrði gert skylt að nota hjálm.
  • Almennt bann lagt við því að breyta hraðastillingum aflknúinna smáfarartækja, léttra bifhjóla og rafmagnsreiðhjóla.
  • Akstur smáfarartækja í almennri umferð verði leyfður á vegum þar sem hámarkshraði er ekki meiri en 30 km á klst. að því gefnu að tillögur um ölvunarakstur og aldursmörk nái fram að ganga enda geti veghaldari lagt bann við umferð smáfarartækja á einstökum vegum eða vegarköflum þyki ástæða til þess.

Nánar má lesa um frumvarpið á vef Stjórnarráðsins.




Hlaðskoðunarmenn á ferð og flugi…

Rafn, Björn Vilberg og Þröstur

Þessi mynd var tekin 19. mars 2021 þegar hlaðskoðunarmennirnir (RAMP inspectors) Rafn, Björn Vilberg og Þröstur skoðuðu vél frá rússneska flugfélaginu Volga Dnepr sem hafði lent í Keflavík. Þessi skoðun var ein þeirra sem gerð er eftir ákveðinni forskrift frá EASA – Flugöryggisstofnun Evrópu.

Í fyrra fóru þeir í 34 skoðanir en í ár er líklegt að þær verði nálægt 50. Fjöldi skoðana fer eftir flugumferð á Íslandi. Flestar skoðanir eru framkvæmdar á Keflavíkurflugvelli, síðan Reykjavíkurflugvelli og nokkrar á Akureyri.

Hvað er hlaðskoðun?
Hlaðskoðun er skyndiskoðun sem ekki er tilkynnt um fyrirfram. Skoðanir eru að hluta til ákveðnar af Flugöryggisstofnun Evrópu en nokkrar flugvélar velur Samgöngustofa til skoðunar eftir ákveðnum reglum. Yfirleitt beinast augun að erlendum flugvélum sem lenda á Íslandi en nokkrar vélar sem skráðar eru hér eru einnig skoðaðar. Skoðanirnar beinast aðallega að ástandi flugvélarinnar, leiðsögu- og öryggisbúnaði, flugmönnum, handbókum, skjölum og tölvubúnaði.

Nýlega fengu hlaðskoðunarmenn einnig víðtækar heimildir til að láta flugmenn og alla aðra sem koma að fluginu, s.s. flugfreyjur/þjóna, flugvirkja, flugumsjónarmenn o.s.frv. gangast annars vegar undir áfengismælingu og hins vegar fíkniefnapróf. Þessar mælingar verða gerðar á nokkrum erlendum og íslenskum flugáhöfnum og öðrum sem koma að flugi á þessu ári.

Búninga-skiptimarkaður – Öskudagur

Öskudagurinn er 22. febrúar nk. og af því tilefni setjum við upp búningaskiptimarkað hér í Ármúlanum. Fatasláin verður staðsett á 2. hæð, miðrými – við Vörina.
Í skrefi 4 í grænu skrefunum er ein aðgerð sem snýr sérstaklega að skiptimörkuðum en með slíku framtaki gerum við okkar besta til að framlengja líftíma hlutanna okkar. Minnum einnig á fataverslanir Rauða krossins, Barnaloppuna, Góða Hirðirinn og aðrar sambærilegar verslanir sem bjóða upp á gott úrval af búningum á góðu verði.

Hafið samband við Thelmu eða Helgu í mannauðsdeild ef þið hafið spurningar 🙂

Notum rafmagnsbíla Samgöngustofu :)

Ný skoðunarhandbók ökutækja tekur gildi 1. mars

Ný skoðunarhandbók ökutækja tekur gildi þann 1. mars næstkomandi. Handbókin leysir af hólmi núverandi skoðunarhandbók sem tók gildi 1. maí 2017. Nýja handbókin er að langstærstu leyti sambærileg þeirri eldri hvað varðar skoðunaratriði, skoðunaraðferðir, tækjabúnað og dæmingar. Þó má finna áherslubreytingar, ný skoðunaratriði og nýja uppsetningu. Skoðunarhandbókin er byggð á reglugerð um skoðun ökutækja nr. 414/2021 og á tilskipun Evrópusambandsins nr. 2014/45, með síðari breytingum.

Meðal þeirra atriða sem breytast með nýrri skoðunarhandbók þann 1. mars eru:

  • Viðmið um virkni stöðuhemla á öllum ökutækjum eru hert þannig að það sem áður var lagfæring verður nú endurskoðun.
  • Óvirkir stöðuhemlar á stærri ökutækjum (bílum og vögnum) valda því nú að notkun þeirra verður bönnuð en var áður endurskoðun.
  • Eitthvað er um strangari dæmingar á ljósabúnað, fá þá endurskoðun í stað lagfæringar áður. Á þetta við um flest ljósker (háljós, stöðuljós, hliðarljós, breiddarljós og þokuljós). Tiltölulega auðvelt er fyrir umráðamenn ökutækja að ganga úr skugga um að ljós virki áður en farið er í skoðun. Við þessa breytingu á handbókinni er því ástæða til að hvetja umráðamenn til að gera það.
  • Algjörlega óvirk hemlaljósker (engin hemlaljós virka) verður nú akstursbann (var endurskoðun áður).
  • Eitthvað er um hertar dæmingar á hjólbarða, alvarlegar skemmdir eða sprungur valda nú notkunarbanni en var endurskoðun áður, og mikið slit á hjólbörðum stærri ökutækja er alltaf endurskoðun (en gat verið lagfæring í einhverjum tilvikum áður).
  • Í nýrri handbók verða betri upplýsingar fyrir skoðunarmenn af ýmsu tagi sem auka munu möguleika þeirra til að standa faglega að skoðun einstakra hluta ökutækisins.
  • Verklagi skoðunarstofanna við meðhöndlun breytinga á ökutækjum hefur verið breytt. Breyting þarf nú að vera bæði leyfileg og helst fullfrágengin til að hljóta samþykki skoðunarstofu.
  • Áréttaðar eru skyldur skoðunarmanna um að kynna niðurstöðu skoðunar vel fyrir eiganda (umráðamanni), sérstaklega þegar athugasemdir hafa verið gerðar við ástand ökutækisins.

Nánari upplýsingar um helstu breytingarnar má nálgast á vef Samgöngustofu.





Kynning hjá Viking Björgunarbúnaði ehf.

Frá heimsókninni í Viking Björgunarbúnaði ehf. Myndir: Leifur Gústafsson

Um daginn fóru nokkrir starfsmenn siglingasviðs siglingarsviðs Samgöngustofu á kynningu hjá Viking Björgunarbúnaði ehf. Kynningin fór fram í Hafnarfirði í húsnæði Vikings.

Kynntur var nýr losunar- og sjósetningarbúnaður frá fyrirtækinu Hammar (CM Hammar AB)
Einnig var kynnt ný útgáfa af hylkjum fyrir gúmmíbjörgunarbáta þar sem hægt er að fylgjast með ástandi báta með einfaldri raka- og kolsýrumælingu hylkisins. Þannig þarf ekki að opna hylkin eins oft til að skoða ástand á bátum og fylgihlutum. Þessar nýjungar er ekki viðurkenndar á Íslandi í dag en hluti af framþróuninni.

Það er mikilvægt að fylgjast vel með þróuninni á búnaði í siglingum og heimsóknir eins og þessar eru mjög gagnlegar fyrir starfsfólk sviðsins.

Fleiri myndir frá heimsókninni:

Spennandi umferðarfræðsla í bíó

Napóleonsskjölin er ný íslensk mynd sem er nú sýnd í bíóhúsum landsins. Gaman að segja frá því að í einu atriði myndarinnar má sjá fræðslumyndband frá okkur í bakgrunni. Í atriðinu heyrist vel í Einari Magnúsi leggja okkur línurnar um það hvernig við eigum að fara að til að tryggja öryggi barnanna okkar í bílnum. Hvetjum ykkur til að kíkja eftir þessu ef þið farið og sjáið myndina!




Innleiðing ISO 27001

Í janúar var hófst innleiðingarferli vegna ISO 27001 (stjórnkerfi upplýsingaöryggis). Verkefnið verður unnið með Sigurjóni Árnasyni ráðgjafa, en hann mun leiða okkur í gegnum ferlið. Díana Björk og Lárus Long munu leiða verkefnið fyrir hönd stofnunarinnar og vinna náið með Sigurjóni.

Verkefnahópur hefur verið skipaður en hann samanstendur af:
Birgir Gunnarsson
Díana Björk Eyþórsdóttir
Guðbjörn Jensson
Hallgrímur Hannesson
Harpa Þuríður Böðvarsdóttir
Kolbeinn Arnarson
Kristín Helga Markúsdóttir
Lárus Long
Ólöf Friðriksdóttir
Sveinn Ólafsson

Haldin hafa verið tvö námskeið þar sem farið var yfir hvernig við greinum meginferla stofnunarinnar. Meginferlar hverrar deildar ættu að vera um tveir til þrír og lýsa helstu verkefnum eða hlutverki hverrar deildar. Á seinna námskeiðinu var farið í hvernig við áhættumetum ferla.

Næsta skref er því að skilgreina meginferli stofnunarinnar, mappa þau upp og gefa út í gæðahandbók. Áætlað er að innleiðingarverkefninu í heild ljúki í lok desember á þessu ári.

Kávitinn og Samgöngustofa

Nú í vikunni fengum við fræðsluerindi frá Janfréttisstofu; KÁvitann. Erindið var vel sótt af starfsfólki og góðar umræður sem fylgdu. Erindið er gott og þarft og mikilvægur liður í því að byggja upp góða vinnustaðamenningu.
Samgöngustofu á stefnu og áætlun gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi. Stefnuna má finna í CCQ (STE-0015).

Minnum einnig á Bendil, ábendingarkerfi Samgöngustofu, það er hnappur hér á innri vefnum. Þar er hægt að koma ýmis komar ábendingum á framfæri, hægt er að senda ábendingu inn undir nafni eða nafnlaust.

Þá er ávallt velkomið að leita til mannauðsdeildar, t.d. ef fólk vill ráð eða álit á einhverju sem það hefur orðið vitni að innan stofnunarinnar t.a.m. óviðeigandi myndbirtingar á veggjum (táknræn birtingarmynd).

Stefnuna má opna með að smella >HÉR<

Hér má skoða glærur KÁvitans frá Jafnréttisstofu.

Frekari upplýsingar og orðskýringar má finna t.a.m. á heimasíðu Jafnréttisstofu.

Flugrekstur og skírteini

Í morgunkaffinu fór Katrín yfir helstu störf flugrekstrar- og skírteinadeildar sem eru mörg og áhugaverð. Deildin sér um leyfisveitingar til fyrirtækja, svo sem flugrekenda, flugskóla og fluglæknasetra og eftirlit með þeim. Útgáfa flugstarfaskírteina fer fram hjá deildinni en það eru ýmis skírteini flugmanna, skírteini flugumferðarstjóra og skírteini flugvirkja sem dæmi.

Deildin heldur bókleg próf sjö sinnum á ári en þá mæta flugnemar hingað í hús og þreyta einka- eða atvinnuflugmannspróf. Fram kom í kynningunni að ásókn í flugpróf hefur minnkað mikið á undanförnum árum og eru nokkrar ástæður fyrir því. Ber þar fyrst að nefna covid, en aðgengi að námslánum og framboð á flugnámi spilar þar líklega stórt hlutverk.

Heilbrigðisskor deildarinnar sér um heilbrigðismál flugmanna og gefur út leyfi til fluglækna og hefur eftirlit með þeim. Á síðustu árum hafa verið gerðar auknar kröfur um mat á geðheilbrigði flugmanna, en allir flugmenn skulu núna undirgangast geðheilbrigðismat í heilbrigðisskoðunum.

Deildin hefur undirbúið sig fyrir innleiðingu á reglum sem varða starfrækslu dróna sem hafa verið í gildi í aðildarríkjum ESB í nokkurn tíma. Nú hefur verið opnað fyrir valkvæða skráningu og próf umráðamanna dróna á vefsvæðinu flydrone.is. Þessi skráning og próf munu svo verða skylda þegar reglurnar hafa tekið gildi á Íslandi. Í millitíðinni eru séríslenskar reglur í gildi.

Hlaðskoðanir á flugrekendum eru framkvæmdar af deildinni og áfengis- og fíkniefnamælingar fyrir áhafnir íslenskra og erlendra loftfara hefjast í þessum mánuði.

Kynningu Katrínar frá í morgun má finna hér.