
Í janúar var hófst innleiðingarferli vegna ISO 27001 (stjórnkerfi upplýsingaöryggis). Verkefnið verður unnið með Sigurjóni Árnasyni ráðgjafa, en hann mun leiða okkur í gegnum ferlið. Díana Björk og Lárus Long munu leiða verkefnið fyrir hönd stofnunarinnar og vinna náið með Sigurjóni.
Verkefnahópur hefur verið skipaður en hann samanstendur af:
Birgir Gunnarsson
Díana Björk Eyþórsdóttir
Guðbjörn Jensson
Hallgrímur Hannesson
Harpa Þuríður Böðvarsdóttir
Kolbeinn Arnarson
Kristín Helga Markúsdóttir
Lárus Long
Ólöf Friðriksdóttir
Sveinn Ólafsson
Haldin hafa verið tvö námskeið þar sem farið var yfir hvernig við greinum meginferla stofnunarinnar. Meginferlar hverrar deildar ættu að vera um tveir til þrír og lýsa helstu verkefnum eða hlutverki hverrar deildar. Á seinna námskeiðinu var farið í hvernig við áhættumetum ferla.
Næsta skref er því að skilgreina meginferli stofnunarinnar, mappa þau upp og gefa út í gæðahandbók. Áætlað er að innleiðingarverkefninu í heild ljúki í lok desember á þessu ári.