
Nýtt frumvarp um breytingar á umferðarlögum snýr að auknu öryggi smáfarartækja. Byggir það á tillögum starfshóps sem m.a. Samgöngustofa tók þátt í:
- Nýr ökutækjaflokkur smáfarartækja verði innleiddur í umferðarlög. Miðað yrði við að smáfarartæki væru ekki hönnuð til hraðari aksturs en 25 km á klst. og að hjól yfir þeim mörkum væru óheimil í umferð.
- Hlutlægt viðmið um áfengismagn í blóði ökumanna smáfarartækja.
- Ökumenn smáfarartækja skyldu að lágmarki hafa náð 13 ára aldri og að yngri en 16 ára yrði gert skylt að nota hjálm.
- Almennt bann lagt við því að breyta hraðastillingum aflknúinna smáfarartækja, léttra bifhjóla og rafmagnsreiðhjóla.
- Akstur smáfarartækja í almennri umferð verði leyfður á vegum þar sem hámarkshraði er ekki meiri en 30 km á klst. að því gefnu að tillögur um ölvunarakstur og aldursmörk nái fram að ganga enda geti veghaldari lagt bann við umferð smáfarartækja á einstökum vegum eða vegarköflum þyki ástæða til þess.