Hlaðskoðunarmenn á ferð og flugi…

Rafn, Björn Vilberg og Þröstur

Þessi mynd var tekin 19. mars 2021 þegar hlaðskoðunarmennirnir (RAMP inspectors) Rafn, Björn Vilberg og Þröstur skoðuðu vél frá rússneska flugfélaginu Volga Dnepr sem hafði lent í Keflavík. Þessi skoðun var ein þeirra sem gerð er eftir ákveðinni forskrift frá EASA – Flugöryggisstofnun Evrópu.

Í fyrra fóru þeir í 34 skoðanir en í ár er líklegt að þær verði nálægt 50. Fjöldi skoðana fer eftir flugumferð á Íslandi. Flestar skoðanir eru framkvæmdar á Keflavíkurflugvelli, síðan Reykjavíkurflugvelli og nokkrar á Akureyri.

Hvað er hlaðskoðun?
Hlaðskoðun er skyndiskoðun sem ekki er tilkynnt um fyrirfram. Skoðanir eru að hluta til ákveðnar af Flugöryggisstofnun Evrópu en nokkrar flugvélar velur Samgöngustofa til skoðunar eftir ákveðnum reglum. Yfirleitt beinast augun að erlendum flugvélum sem lenda á Íslandi en nokkrar vélar sem skráðar eru hér eru einnig skoðaðar. Skoðanirnar beinast aðallega að ástandi flugvélarinnar, leiðsögu- og öryggisbúnaði, flugmönnum, handbókum, skjölum og tölvubúnaði.

Nýlega fengu hlaðskoðunarmenn einnig víðtækar heimildir til að láta flugmenn og alla aðra sem koma að fluginu, s.s. flugfreyjur/þjóna, flugvirkja, flugumsjónarmenn o.s.frv. gangast annars vegar undir áfengismælingu og hins vegar fíkniefnapróf. Þessar mælingar verða gerðar á nokkrum erlendum og íslenskum flugáhöfnum og öðrum sem koma að flugi á þessu ári.