
Það er hún Soffía Gestsdóttir sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir hún:
Við sátum systurnar, spenntar með segulbandstækið á milli okkar. Sony tæki sem var besta græjan af öllum tækjum. Við höfðum fengið það í fermingargjöf (sameiginleg gjöf eins og hárblásarinn og margt fleira) nokkrar kasettur fylgdu með.
Lög unga fólksins voru að byrja í útvarpinu og þá var tekið upp. Það var vandasamt verk og ekkert mátti fara úrskeiðis. Þátturinn var á dagskrá 1958-1987. Þetta lag sem ég valdi þótti með því flottara og allir þekktu það og kunnu textann.
Kallað oft sorglega lagið af okkur vinkonunum. Við urðum fyrir miklum vonbrigðum þegar við sáum mynd af söngvaranum mörgum árum seinna.
En alltaf hægt að hlusta þarf ekkert að horfa.
Mæli með Huldu Finns í næstu viku