Kynning hjá Viking Björgunarbúnaði ehf.

Frá heimsókninni í Viking Björgunarbúnaði ehf. Myndir: Leifur Gústafsson

Um daginn fóru nokkrir starfsmenn siglingasviðs siglingarsviðs Samgöngustofu á kynningu hjá Viking Björgunarbúnaði ehf. Kynningin fór fram í Hafnarfirði í húsnæði Vikings.

Kynntur var nýr losunar- og sjósetningarbúnaður frá fyrirtækinu Hammar (CM Hammar AB)
Einnig var kynnt ný útgáfa af hylkjum fyrir gúmmíbjörgunarbáta þar sem hægt er að fylgjast með ástandi báta með einfaldri raka- og kolsýrumælingu hylkisins. Þannig þarf ekki að opna hylkin eins oft til að skoða ástand á bátum og fylgihlutum. Þessar nýjungar er ekki viðurkenndar á Íslandi í dag en hluti af framþróuninni.

Það er mikilvægt að fylgjast vel með þróuninni á búnaði í siglingum og heimsóknir eins og þessar eru mjög gagnlegar fyrir starfsfólk sviðsins.

Fleiri myndir frá heimsókninni: