
Búið er að opna innri tölfræðivef Samgöngustofu en hann er eingöngu aðgengilegur fyrir starfsfólk Samgöngustofu. Á vefnum er hægt að sjá ýmsa tölfræði síðustu ára úr ökutækjaskrá, eins og til dæmis nýskráningar, afskráningar, skoðanir og eigendaskipti. Einnig er að finna tölfræði tengda skipstjórnar- og vélstjórnarskírteinum og NorType tölfræði varðandi uppfærslur á gerðum og gerðarviðurkenningum.
Vefurinn er enn í vinnslu og mun fleira bætast við í náinni framtíð.
Slóð vefsins er skyrslur.samgongustofa.is
Upplýsingar um vefinn gefur Markús Benediktsson, það má líka hafa samband varðandi hugmyndir að tölfræði sem ætti heima inni á vefnum.