
Í hádeginu var bryddað upp á þeirri nýbreytni að fá gestakokk í matseldina en það var hann Vivek Sharma eftirlitsmaður hafnarríkiseftirlits sem eldaði með þeim Bjössa og Erni að þessu sinni. Boðið var upp á Butter kjúkling, hrísgrjón, sósu go naan brauð.
Undirritaður var mjög spenntur enda mikill aðdáandi indversks matar. Það er óhætt að segja að rétturinn hafi staðið undir væntingum og fær hann 10 af 10 mögulegum í einkunargjöf vefstjórans.
Takk kærlega Vivek, Bjössi og Örn! (væri hægt að endurtaka leikinn sem fyrst? :))