
Í gær var haldinn fundur um rafmagnsbruna í skipum í Flugröst. Fundurinn var haldinn til að opna vettvang til að meta hvað þarf að gera í regluverki, þjálfun og viðbragði ef eldar koma upp í vélbúnaði rafknúinna skipa eða ef eldar koma upp í rafmagnsbílum um borð.
Ólafur Ragnarsson fagstjóri hafnarríkiseftirlits sagði frá fundi sem hann sótti í Noregi á haustdögum. Þar var farið yfir bruna í farþegabátnum Brim sem tók slökkvilið 7 daga að slökkva. En eldurinn braust út í rafgeymum skipsins.
Í kjölfarið stjórnaði Halldór Zoega deildarstjóri siglinga- og hafnareftirlits umræðum en þátttakendur voru frá slökkviliði, Húsnæðis-og manvirkjastofnun, tryggingarfélögum, Landhelgisgæslunni, flokkunarfélögum, Vegagerðinni og Samgöngustofu.
Niðurstaða fundarins var að stofna hóp til að halda vinnufund eða ráðstefnu til að fara betur yfir þessi mál. Á fundinn á að fá fyrirlesara frá Noregi og aðilum hér innanlands sem skoðað hafa þessi mál. Samgöngustofa mun leiða þetta starf.