Heimsókn umhverfis- og samgöngunefndar


Í morgun kom umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í heimsókn. Á fundinum kynnti Jón Gunnar stefnu og starfsemi stofnunarinnar og sagði frá ýmsum umbótaverkefnum sem hér eru í gangi. Fulltrúar nefndarinnar, þingmenn úr öllum flokkum, voru áhugasamir og spurðu margra spurninga. Leiddu þær til gagnlegra umræðna um þau fjölbreyttu verkefni sem hér er sinnt í þágu samfélagsins. Heimsóknin hingað var sú fyrsta í fundaröð nefndarinnar með stofnunum á málasviði hennar á þessu hausti.




Verkfærakistan – bókasafnið

Cartoon Library Images – Browse 49,917 Stock Photos, Vectors, and Video |  Adobe Stock

Hér á innri vefnum er yfirflokkur sem við nefnum Verkfærakistan. Þar kennir ýmissa grasa, t.d. er þar að finna Bóksafnssíðu:

Verkfærakistan => Bóksafn

Á þeirri síðu eru ýmsar gagnlegar upplýsingar eins og:

  • Tengill á bókasafnskerfi Samgöngustofu þar sem hægt er að nálgast yfirlit yfir þær bækur sem stofnunin á.
  • Yfirlit yfir þau tímarit og gagnagrunnum sem stofnunum er áskrifandi að og aðgangsorð að þeim. Dæmi: Snara, Morgunblaðið, Lögbirtingablaðið og IMDG og SOLAS.
  • Tengingar á ýmsar síður og hjálpargögn varðandi íslenskt mál svo sem Málfarsbanka Íslenskrar málstöðvar, Orðabanka Íslenskrar málstöðvar, skrá yfir íðorðasöfn o.sfrv.
  • Tengingar á orðasöfn í dönsku og ensku t.d. hugtakasafn um siglingamál.
  • Upplýsingar um landsaðganginn Hvar.is en þar höfum við Íslendingar aðgang að yfir 20.000 tímaritum og yfir 10.000 rafbókum hvar sem við erum staðsett á landinu. Samgöngustofa borgar ásamt fjölda annarra stofnana fyrir þennan landsaðgang. 

Kynnið ykkur endilega bókasafnssíðuna sem er í umsjón starfsfólks skjalastjórnunnar.




Úttekt EASA á SYS

Hópurinn fyrir framan anddyrið í morgun, starfsfólk Samgöngustofu og eftirlitsfólkið frá EASA

Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá hefur úttekt staðið yfir hér í Ármúlanum í vikunni. Eftirlitsmenn á vegum EASA hafa verið að taka út SYS (Systemic enablers for Aviation Safety), sem er kerfisbundin öryggisstjórnun í flugi. Úttektin fól m.a. í sér víðtæka skoðun á frammistöðu okkar gagnvart t.d. mönnun, þjálfun, tilkynningaskyldu og innri úttektum. Úttektinni lau formlega í dag og var myndin tekinn eftir lokafundinn.




Dagur íslenskrar náttúru

Brúarfoss

Í dag er dagur íslenskrar náttúru en hann er haldinn 16. september ár hvert. Einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni. Þeir sem nýta sér samfélagsmiðla í tengslum við daginn eru minntir á myllumerkin #íslensknáttúra og #DÍN.

Tilvalið að fara eftir vinnu í stuttan göngutúr og njóta þeirrar frábæru náttúru sem er hér í nokkurra mínútna fjarlægð við höfuðborgarsvæðið. Fyrir þau ykkar sem drífið ekki út er tilvalið að lesa sér aðeins til um náttúru Ísland og má þá benda á frábæran Fuglavef þar sem hægt er að afla sér upplýsinga um alla fugla landsins, hlusta á hvernig hljóð þeir gefa frá sér, hvar þeir verpa o.sfrv. Einnig má benda á ýmislegt efni á vef RÚV um náttúru Íslands eins og Fjársjóð framtíðar, þættina Náttúran mín og Hvað getum við gert?

Föstudagslagið í boði Díönu

Why working nine to five is no longer a way to make a living | Work &  careers | The Guardian

Föstudagslagið þessa vikuna er í boði Díönu. Um val sitt segir hún:

Ég vel lagið 9 to 5 með Dolly Parton.

Þrátt fyrir styttri vinnuviku þá er þetta lag vel við hæfi. Haustið skollið á með yndislegu veðri og tilheyrandi rútínu. Lagið er ekki síður skemmtilegt fyrir þá sem eru lagvísir í karaoke.

Ég skora á Svein Ólafsson fyrir næsta föstudag.

Góða helgi 🙂



Undirskrift aðlögunarsamnings Íslands að EUROCONTROL

Hópurinn fyrir framan Samgöngustofu í morgun. Jón Gunnar og Eamonn fyrir miðju. Auk þeirra eru á myndinni fulltrúar Eurocontrol, Samgöngustofu, innviðaráðuneytisins og Isavia.

Samningur var undirritaður í morgun af Jóni Gunnari Jónssyni, forstjóra Samgöngustofu og Eamonn Brennan, forstjóra Eurocontol hér í Samgöngustofu. Samkvæmt skilmálum hans á Ísland sæti áheyrnarfulltrúa og getur tekið þátt í verkefnum og starfsemi Eurocontrol að sama marki og aðildarríki.

Eurocontrol er evrópsk milliríkjastofnun sem hefur allt frá stofnun árið 1960 haft markmið um stuðning við flug og flugleiðsögu í Evrópu. Ef frá eru talin fáein smáríki sem ekki sinna verkefnum sem tengjast loftrýminu er Ísland nú eina Evrópulandið utan aðildar en mun frá 1. janúar 2025 verða 42. aðildarríkið. Viðræður um hugsanlega aðild hafa staðið yfir um árabil en aðlögunarsamningurinn nú var undirritaður að fenginni heimild innviðaráðuneytisins.

Sjá einnig frétt á vef EUROCONTROL

Helsti ávinningur aðildar er full þátttaka í miðlægri flæðisstjórnun flugumferðar fyrir samevrópska loftrýmið og samræmdri krísustjórnun vegna t.d. eldgosa og heimsfaraldra. Henni fylgir einnig aðgangur að kerfum, gagnabönkum, greiningarvinnu, tæknilausnum, þjálfun og stuðningi við ýmsa þætti flugmála sem snúa að rekstrarstjórnun flugumferðar, rekstri flugvalla, skilvirkni, öryggi og netvernd svo nokkuð sé nefnt.

Frá undirskrift samningsins í morgun: Eamonn Brennan forstjóri Eurocontrol til vinstri og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu til hægri.  

Við undirritun samningsins sagði Jón Gunnar: „Eftir jákvætt samstarf við Eurocontol á undanförnum árum hefur með undirskrift samningsins verið stigið mikilvægt skref. Vegna landfræðilegrar legu Íslands eru flug og flugleiðsaga einstaklega mikilvæg til grundvallar efnahags og velmegunar þjóðarinnar. Samvinna þjóða á jafningjagrunni stuðlar að uppbyggingu og viðhaldi innviða á sviði flugmála. Með undirritun samningsins hafa stjórnvöld nú staðfest þá fyrirætlun að Ísland gerist fullgildur aðili að Eurocontol.“

Eamonn Brennan sagði: „Ég er ánægður með að undirritun þessa samning sem er mikilvægt skref í átt að samþættingu Íslands sem 42. aðildarríkis Eurocontrol 1. janúar 2025. Við höfum unnið náið með Íslandi í mörg ár og fögnum ákvörðun þeirra um að ganga í Eurocontrol og taka á sig öll réttindi og skyldur aðildarríkja okkar. Ísland er vaxandi áfangastaður í Evrópu – með yfir 150 flug daglega að meðaltali nú í sumar – þannig að frekari samþætting þeirra inn í evrópska netið mun nýtast bæði í rekstrarlegum og stefnumótandi tilgangi.“




Norðurlandafundur um siglingavernd – NMS 2022

Hópurinn fyrir utan innganginn í dag áður en haldið var í vettvangsferðina

Norðurlandafundur um siglingavernd (NMS 2022) er haldinn á vegum Samgöngustofu þessa dagana (13. – 15. september.). Í morgun var fundað í matsal Samgöngustofu en svo var haldið í vettvangsferð eftir hádegi og Faxaflóahafnir skoðaðar.

Þátttakendur eru frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Færeyjum auk Íslands en um er ræða fulltrúa þeirra stofnana sem fara með siglingaverndarmál fyrir hönd viðkomandi ríkja, alls 18 manns.

Þeir félagar Stefán Alfreðsson og Júlíus Einarsson halda utan um skipulagið fyrir okkar hönd.






Stolt siglir fleyið mitt

– öryggi og grænar lausnir í siglingum
May be an image of text that says 'IMO EVENTS IMO NEW TECHNOLOGIES FOR GREENER SHIPPING'

Alþjóðasiglingadagurinn er í ár helgaður öryggi og grænum lausnum í siglingum. Af því tilefni verður ráðstefna haldin fimmtudaginn 29. september undir yfirskriftinni Stolt siglir fleyið mitt á Grand hótel í Reykjavík frá kl. 13-16. Ráðstefnan er haldin af Innviðaráðuneyti og Siglingaráði í samstarfi við Samgöngustofu, Grænu orkuna.

Skráning á ráðstefnuna

Markmið ráðstefnunnar er að kynna nýsköpun og nýjar lausnir í sjósókn og siglingum sem draga úr umhverfisáhrifum og/eða auka öryggi sjófarenda, þ.m.t. orkuskipti, bætta orkunýtingu og siglingaöryggi. Fjölmörg fyrirtæki munu halda fyrirlestra um lausnir sínar og framtíðarsýn.

Öll eru velkomin á ráðstefnuna en skráning fer fram á vef Samgöngustofu. Fundarstjóri er Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá Samtökum i sjávarútvegi.

Dagskrá:

· Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsmálaráðherra, setur ráðstefnuna.

· Leiðin til orkuskipta.

Kristina Storegjerde Skogen, Ocean Hyway Cluster, Noregi.

· Kolefnisfríar fiskveiðar – Raunhæft markmið, hvernig og hvenær?

Hallmar Halldórs, Clara Arctic Energy.

· Ankeri – Gögn til gagns: Að finna hentugustu skipin fyrir alþjóðleg flutningaskipafyrirtæki.

Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri & einn stofnenda Ankeri Solutions.

· Grænna varaafl í öruggum skrefum.

Linda Fanney Valgarðsdóttir, framkvæmdastýra Alor ehf.

· Sidewind vindmyllugámar.

Óskar Svavarsson og María Kristín Þrastardóttir, stofnendur Sidewind ehf.

· Kaffihlé

· Ljósvarpan.

Torfi Þórhallsson, Optitog ehf.

· Umhverfisvænni veiðarfæri.

Einar Skaftason veiðarfærahönnuður hjá Hampiðjunni

· Leiðbeinandi siglingakerfi fyrir aukið öryggi og grænni siglingar.

Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring Marine

· Strandvari, fyrir öryggi og umhverfið.

Þórarinn Heiðar Harðarson, framkvæmdastjóri Strandsýn ehf.

· Straumhvörf á sjó – rafvæðing minni farþegabáta

Árni Sigurbjarnarson og Oddvar Haukur Árnason, Brim Explorer / Ocean e-Connect

· Framtíðin, umræður, samantekt og ráðstefnuslit.

Ásta Þorleifsdóttir, varaformaður fagráðs um siglingamál

Umferðarþing 2022

Umferðarþing verður haldið í lok evrópsku samgönguvikunnar, þann 23. september, og ber í ár yfirskriftina „Virkar samgöngur – betri hreyfing“. Áhersla þingsins í ár verður á virka vegfarendur – innan og utan akbrauta. Er þá helst átt við gangandi og hjólandi, bæði á reiðhjólum og hinum ýmsu smátækjum (þar á meðal rafhlaupahjólum) og samspil þeirra við aðra umferð.

UMFERDARThING.SkraningB.2022


Ítarlega dagskrá má nálgast hér

Ut22-dagskra_1661258011910

Föstudagslagið í boði Gunnars Geirs


Meat Loaf On Stage

Eftir sumarhlé er nú kominn tími á að halda áfram með Föstudagslagið. Fyrir sumarfrí skoraði Egill á Gunnar Geir að velja föstudagslagið að hausti. Um val sitt segir Gunnar:

Lagið sem ég valdi er Paradise by the dashboard light með Meatloaf ásamt Ellen Foley. Lagið er úr smiðju snillingsins Jim Steinman sem samdi öll lögin á plötunni sem lagið kom út á, Bat out of hell. Auk þess samdi Steinman lög fyrir fleiri tónlistarmenn, m.a. Total eclipse of the heart með Bonnie Tyler.

Lagið er einstaklega gott klassískt rokklag og fjallar um… tja, það er best að hlusta bara á textann. Lagið er óvenjulangt, skemmtilega kaflaskipt og er einmitt hluti af laginu hafnaboltalýsing en hafnir í hafnabolta er þekkt myndlíking meðal bandarískra unglinga. Að auki er einstaklega skemmtilegt að syngja lagið í karaoke 🙂

Að lokum skora ég á Díönu að gleðja okkur með föstudagslagi í næstu viku.


Hvernig á að flokka pappír?

Það getur verið snúið að flokka rusl og erfitt að vera viss um í hvaða tunnu hver hlutur á að fara. Íslenska Gámafélagið hefur gefið út ágætis leiðbeiningar um flokkun á pappír (sjá einnig myndband hér neðst í þessari frétt).

Það sem ber helst að hafa í huga er:

  • Hreinar umbúðir eru endurvinnanlegt hráefni en óhreinar umbúðir eru sorp.
  • Það sem má fara í pappírstunnuna er sléttur pappi og fernur, dagblöð og tímarit, allskyns skrifstofupappír og einnig bylgjupappi.
  • Fernur mega einnig fara í pappírstunnuna en þá þurfa þær að vera hreinar. Hreinar fernur er hægt að endurvinna en óhreinar fernur eru rusl. Það tekur enga stund að þrífa fernurnar, það þarf aðeins örlítið vatn í botninn, hrista og tæma svo úr fernunni. Að lokum er gott að brjóta þær saman, þannig taka þær lítið sem ekkert pláss í tunnunni.   
  • Slétti pappinn á að fara í pappírstunnuna en hann þarf að fella saman til að spara pláss. Umbúðir úr sléttum pappa eru sem dæmi kassar utan um morgunkorn, kex, ís og fleira.
  • Til eru umbúðir sem sumir kalla “vandamála umbúðir”, eða umbúðir sem er ekki skýrt hvernig á að flokka. Það getur til dæmis verið umslög með plastglugga en þau mega fara með í pappírstunnuna vegna þess að plastið er svo lítill hluti af umslaginu. Aðrar samsettar umbúðir eins og pokar úr pappír og plasti þarf að aðskilja efnin með því að rífa umbúðirnar í sundur. Ef það er ekki hægt, þá fara samsettu umbúðirnar í almennt sorp.
  • Til eru flóknari samsettar umbúðir eins og Pringles dós sem dæmi. Meirihluti umbúðanna er pappi en lokið er úr plasti og botninn er úr málmi. Með því að fjarlægja botn og lok og setja í tilheyrandi tunnur má setja hólkinn í pappírstunnuna. Ef dósin er ekki tekin í sundur þá á hún heima með almennu sorpi.
  • Að lokum er vert að nefna pizzakassana en þeir eru úr bylgjupappa og eiga heima í pappírstunnunni. Þeir þurfa að vera tómir og gott er að skrapa mesta ostinn úr botninum en smá olía er í lagi. 

Sjá nánar flokkunarleiðbeiningar fyrir pappír og pappa

Myndband um flokkun pappa:

Upplýsingar um umhverfishóp Samgöngustofu má finna hér á innri vefnum og netfangið er graen@samgongustofa.is ef þið viljið koma einhverju á framfæri varðandi umhverfismál.





Nýtt útlit – Power Point, logo o.fl.

Nokkrir hér innanhús hafa spurt hvar hægt er að finna Power Point grunna, nýja lógóið upplýsingar um letur og fleira. Allar upplýsingar er hægt að nálgast hér á innri vefnum undir:

=> Verkfærakistan => Hönnunarstaðall

Einnig er hægt að fara beint á vefinn honnun.samgongustofa.is og nálgast þar allt slíkt efni.

Þarna er m.a. hægt að nálgast:

  • Lógóið á ýmsum formum og bæði á íslensku og ensku
  • Upplýsingar um litina sem notaðir eru
  • Undirskrift í tölvupósti
  • Letur
  • Ljósmyndir sem eru notaðar
  • PowerPoint kynningar
  • Myndir fyrir samfélagsmiðla
  • Merkingar bíla
  • Fánamerkingar
  • Sýningargardínur og fleira





Fundur fagráðs um siglingar

Fagráð um siglingar fundaði í Ólafsvík og kynnti sér hafnarmannvirki á Vesturlandi

Fundur fagráðs um siglingar var haldinn í Ólafsvík föstudaginn 2. september síðastliðinn. Ráðið kynnti sér störf Landhelgisgæslunnar í tengslum við öryggi sjófarenda og hafnarmannvirki á Vesturlandi. Kristín Helga Markúsdóttir og Þorsteinn Þorkelsson sóttu fundinn fyrir hönd Samgöngustofu.

Hlutverk fagráðs um siglingamál er að vera ráðherra til ráðuneytis um siglinga- og hafnamál og öryggismál sjófarenda.

Helstu verkefni ráðsins eru:

  • að móta tillögu að öryggisáætlun sjófarenda með Samgöngustofu,
  • að vinna að langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, ásamt því að hafa eftirlit með framgangi hennar og stuðla að samstarfi þeirra aðila sem að henni koma,
  • að veita umsagnir um lagafrumvörp og drög að reglugerðum er varða siglinga- og hafnamál, ásamt EES-gerðum og innleiðingu þeirra,
  • að veita umsögn um tillögu samgönguráðs að samgönguáætlun hvað varðar málefni siglinga og hafna,
  • að stofna vinnuhópa um afmörkuð verkefni sem ráðið ákveður að ráðast í eða ráðherra felur því að vinna,
  • að fjalla um önnur mál á sviði siglinga og hafna að ósk ráðherra eða einstakra ráðsmanna.

Sjá nánar um fagráðið á vef stjórnarráðsins



Ársskýrsla 2021

Á hverju ári skilum við ársskýrslu til ráðuneytisins, þar sem fram koma ítarlegar upplýsingar um starfsemi okkar, lykilmarkmið og hvernig til tókst. Almenn ársskýrsla fyrir árið 2021 hefur nú verið birt á vefnum og skartar nú í fyrsta skipti nýja útlitinu okkar. Í skýrslunni förum við yfir árið í nokkrum dráttum, nokkra mælikvarða um starfsemi og árangur og kynnum áherslur sem lagðar voru, t.d. um framtíðarsýn og stefnumótun. Inntakið er að við ætlum að vera samferða, bæði innbyrðis og samfélaginu sem við þjónum. Þá ætlun höfum við í huga og fylgjum eftir í daglegum störfum og nýjum verkefnum.









Haustskemmtun Farsýslunnar – myndir

Lárus Long mundar píluna og liðsfélagarnir fylgjast með fullir aðdáunar

Haustskemmtun Farsýslunnar fór fram í gær og var vel heppnuð í alla staði. Stjórnin fær 10 af 10 mögulegum í einkunn fyrir skipulagið og vinnuna við að koma þessu öllu heim og saman. Fólk skemmti sér konunglega í pílukasti, karaoki og almennum skemmtilegheitum. 1000 rokkstig fyrir þetta!

Hér að neðan eru nokkrar myndir frá kvöldinu en myndefnið takmarkast af því í hvaða bás myndasmiðurinn var staddur en vonandi fanga þær stemninguna vel 🙂

Golfmót Samgöngustofu – úrslit

Rauða liðið sigraði. Frá vinstri: Atle, Þóra, Þröstur og Sigurjón (fleiri myndir neðst í fréttinni)

Föstudaginn 26. ágúst var haldið golfmót Samgöngustofu á Urriðavelli (Oddurinn) í blíðskaparveðri. Keppnisfyrirkomulag var 4 manna texas Scramble og höfðu liðin komið sér saman um lit á liðsbúningum fyrir leik. Í ár voru það fimm lið sem kepptu um bikara og heiðurinn sem þeim fylgir en að auki voru vegleg verðlaun í boði frá ýmsum styrktaraðilum.


Úrslit mótsins:

  1. sæti Rauða liðið (flugleiðsaga og flugvellir)
    – Þóra, Sigurjón, Þröstur og Atle
  2. sæti Gula liðið (flugrekstur og lofthæfi)
    – Ómar Þór, Einar, Trausti og Benóný
  3. sæti Svarta liðið (siglingar)
    – Pétur, Kristinn, Steingrímur og Eiríkur (lánsmaður)
  4. sæti Græna liðið (ýmsar deildar)
    – Lárus, Andri Þór, Björn og Birgir
  5. sæti Bláa liðið (fjármál)
    – Halldóra, Laufey, Rut og Anney (þjálfari Edda)

Sérstakar þakkir fyrir veglegan stuðning fá:

Cintamani (og starfsmannafélag SGS)
Rif restaurant
Herjólfur
Golfklúbbur Vestmannaeyja
PGA golfkennsla Jón Andri (bestu verðlaunin)
Gott (veitingastaður í Vestmannaeyjum – sem fær 1. einkunn)
Lemon
Garri

Dagurinn var virkilega skemmtilegur og vonandi verður Golfsýslan með árlegan golfviðburð hér eftir.

Gula liðið hreppti 2. sætið. Frá vinstri: Ómar Þór, Einar, Trausti og Benóný
Svarta liðið náði 3. sætinu. Frá vinstri: Pétur, Kristinn og Steingrímur
Bláa liðið lenti í fimmta sæti.






Eftirlit með skráðum lendingarstöðum

Starfsfólk Samgöngustofu sinnir eftirliti víða um land og reyndar lönd ef út í það er farið. Fyrr í mánuðinum fóru þeir Tómas Björn Ólafsson og Sigurjón Hreinsson í eftirlit á Vestfjarðarkjálkanum og tóku út lendingarstaði á Reykhólum og Hólmavík. Myndin er tekin á flugvellinum á Hólmavík af þeim félögum en þeir starfa í deild Flugleiðsögu, flugvöllum og flugvernd.

Um 50 skráðir lendingarstaðir eru á Íslandi en nálgast má upplýsingar um þá í AIP um skráða lendingarstaði. Á vef Isavia má einnig nálgast upplýsingar um hvernig Isavia skiptir upp sínum lendingarstöðum milli umdæma en að auki má sjá þar nokkra lendingarstaði sem eru í einkaeigu eða í eigu félagasamtaka.

Arnór Magnússon fráfarandi umdæmisstjóri Isavia innanlandsflugvalla ehf. fyrir umdæmi 2 sem nær yfir áætlunarflugvelli og lendingarstaði á Vestfjörðum. Eftirlitsmenn Samgöngustofu hafa átt mjög farsælt samstarf við hann í gegnum árin. Á myndinni heldur hann á undirstöðu, sem notuð er til að halda föstum netabelgjum, sem eru gjarnan notaðir sem „markar“ til að sýna útlínur flugbraut lendingarstaða.

Tómas Sigurgeirsson, bóndi að Reykhólum, ásamt vindpoka flugbrautarinnar og aðstöðuskúr. Tómas hefur umsjón með lendingarstaðnum Reykhólum. Hann fylgist t.d. með því hvort girðing umhverfis flugbrautina sé ósködduð og hlið hennar lokuð, svo að engin óviðkomandi umferð komist inn á flugvallarsvæðið. Einnig sinnir hann grasslætti öryggisvæða brautarinnar.

Ákvarðanir um siglingaleiðir við strendur Íslands

Fram til þessa hafa sérstakar siglingaleiðir ekki verið ákvarðaðar við Ísland, að undanteknum aðskildum siglingaleiðum við Reykjanes. Með aukinni starfsemi við strendur landsins hefur þörf á skilgreindum siglingaleiðum farið vaxandi en þær geta haft áhrif á skipulag og notkun strandsvæða.

Samgöngustofa hefur nú tilkynnt að á grundvelli 4. gr. laga nr. 119/2012 mun Samgöngustofa ákveða, eins og þörf er á, siglingaleiðir á innsævi við Ísland. Verður í þeirri vinnu leitað álits ýmissa sérfræðinga og hagaðila.

Haustskemmtun Farsýslunnar – Skráning

Haustskemmtun Farslýslunnar hefst kl. 15:30 á fimmtudaginn í matsalnum með léttum fordrykk

Skráning fer fram hér

  • Ævintýraferð með strætó á pílubarinn Skor á Hafnartorgi
  • Kareoke á Fredriksen Ale House

Sjá nánar í auglýsingu:

Kynningarfundur um faggildingar á Íslandi

Fimmtudaginn 25. ágúst kl. 10-12 verður haldinn opinn kynningarfundur um málefni faggildingar á Íslandi. Faggilding er viðurkenning stjórnvalds á því að tiltekinn aðili sé hæfur til að vinna tiltekin verkefni. Málefnið varðar starfsemi Samgöngustofu á nokkrum sviðum, t.a.m. þurfa skoðunarstofur bifreiðaskoðana og skipaskoðana að vera faggiltar.

Fundurinn fer fram á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 og verður einnig streymt. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér á vef menningar- og viðskiptaráðuneytisins.