Ársskýrsla 2021

Á hverju ári skilum við ársskýrslu til ráðuneytisins, þar sem fram koma ítarlegar upplýsingar um starfsemi okkar, lykilmarkmið og hvernig til tókst. Almenn ársskýrsla fyrir árið 2021 hefur nú verið birt á vefnum og skartar nú í fyrsta skipti nýja útlitinu okkar. Í skýrslunni förum við yfir árið í nokkrum dráttum, nokkra mælikvarða um starfsemi og árangur og kynnum áherslur sem lagðar voru, t.d. um framtíðarsýn og stefnumótun. Inntakið er að við ætlum að vera samferða, bæði innbyrðis og samfélaginu sem við þjónum. Þá ætlun höfum við í huga og fylgjum eftir í daglegum störfum og nýjum verkefnum.