Fundur fagráðs um siglingar

Fagráð um siglingar fundaði í Ólafsvík og kynnti sér hafnarmannvirki á Vesturlandi

Fundur fagráðs um siglingar var haldinn í Ólafsvík föstudaginn 2. september síðastliðinn. Ráðið kynnti sér störf Landhelgisgæslunnar í tengslum við öryggi sjófarenda og hafnarmannvirki á Vesturlandi. Kristín Helga Markúsdóttir og Þorsteinn Þorkelsson sóttu fundinn fyrir hönd Samgöngustofu.

Hlutverk fagráðs um siglingamál er að vera ráðherra til ráðuneytis um siglinga- og hafnamál og öryggismál sjófarenda.

Helstu verkefni ráðsins eru:

  • að móta tillögu að öryggisáætlun sjófarenda með Samgöngustofu,
  • að vinna að langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, ásamt því að hafa eftirlit með framgangi hennar og stuðla að samstarfi þeirra aðila sem að henni koma,
  • að veita umsagnir um lagafrumvörp og drög að reglugerðum er varða siglinga- og hafnamál, ásamt EES-gerðum og innleiðingu þeirra,
  • að veita umsögn um tillögu samgönguráðs að samgönguáætlun hvað varðar málefni siglinga og hafna,
  • að stofna vinnuhópa um afmörkuð verkefni sem ráðið ákveður að ráðast í eða ráðherra felur því að vinna,
  • að fjalla um önnur mál á sviði siglinga og hafna að ósk ráðherra eða einstakra ráðsmanna.

Sjá nánar um fagráðið á vef stjórnarráðsins