
Fimmtudaginn 25. ágúst kl. 10-12 verður haldinn opinn kynningarfundur um málefni faggildingar á Íslandi. Faggilding er viðurkenning stjórnvalds á því að tiltekinn aðili sé hæfur til að vinna tiltekin verkefni. Málefnið varðar starfsemi Samgöngustofu á nokkrum sviðum, t.a.m. þurfa skoðunarstofur bifreiðaskoðana og skipaskoðana að vera faggiltar.
Fundurinn fer fram á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 og verður einnig streymt. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér á vef menningar- og viðskiptaráðuneytisins.