
Fram til þessa hafa sérstakar siglingaleiðir ekki verið ákvarðaðar við Ísland, að undanteknum aðskildum siglingaleiðum við Reykjanes. Með aukinni starfsemi við strendur landsins hefur þörf á skilgreindum siglingaleiðum farið vaxandi en þær geta haft áhrif á skipulag og notkun strandsvæða.
Samgöngustofa hefur nú tilkynnt að á grundvelli 4. gr. laga nr. 119/2012 mun Samgöngustofa ákveða, eins og þörf er á, siglingaleiðir á innsævi við Ísland. Verður í þeirri vinnu leitað álits ýmissa sérfræðinga og hagaðila.