Nýtt rannsóknarskip skoðað

Í byrjun árs fóru skipaskoðunarmenn Samgöngustofu til Vigo á Spáni til að framkvæma upphafsskoðun á nýju rannsóknarskipi Hafró. Upphafsskoðun er forsenda þess að skip séu skráð á íslenska skipaskrá og fái útgefin viðeigandi skírteini. Við upphafsskoðun er meðal annars farið yfir samþykkt öryggisplan skipsins og staðfest að öryggis- og björgunarbúnaður sé á réttum stöðum og uppfylli kröfur. Raunverulegt fyrirkomulag brunakerfa, siglingarljósa og vinnsluþilfars er borið saman við teikningar og fylgst með smíðaeftirliti flokkunarfélagsins.

Nýja skipið ber nafnið Þórunn Þórðardóttir HF-300 og leysir það af hólmi eldra rannsóknarskip, Bjarna Sæmundsson sem hefur verið í notkun síðan 1970. Nýja skipið kom til landsins er búið fullkomnum rannsókna- og mælibúnaði sem safnar gögnum í rauntíma. Tæknin mun nýtast til að kanna áhrif loftslagsbreytinga, rannsaka vistkerfi og styðja við sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda.

Plöntuskiptimarkaður

Umhverfishópurinn kynnir:

Samgöngustofa hlýtur tvo Lúðra

Á föstudaginn fór fram íslenska auglýsingaverðlauninahátíðin Lúðurinn. Þar voru verkefni Samgöngustofu tilnefnd til sex verðlauna og hlutum við tvö þeirra, tvo Lúðra. Báðir voru þeir fyrir herferðina Ekki taka skjáhættuna sem við stóðum fyrir með Sjóvá og sem auglýsingastofan Pipar framleiddi. Voru þeir í flokkunum Veggspjöld og skilti og PR – Almannatengsl. Samkeppnin í ár var hörð og erum við því alsæl með verðlaunin.

Þó svo að það sé alltaf gaman að fá viðurkenningu fyrir það sem við látum frá okkur þá snýst þetta á endanum allt um að ná árangri. Þessar auglýsingar urðu til þess að símanotkun undir stýri dróst saman milli ára í fyrsta sinn í fimm ár. Það eru að sjálfsögðu stærstu verðlaunin.


Hörmuleg helgi í umferðinni

Um helgina létust þrír einstaklingar í jafnmörgum banaslysum í umferðinni. Hafa þá fjögur látist í umferðinni það sem af er ári. Slysin voru af ólíkum toga og hending að þau hafi átt sér stað sömu helgina. Veður var almennt gott þessa daga en hálka kom þó við sögu í a.m.k. einu slysanna. Við höfum ekki fengið útlistun á slysunum frá rannsóknanefndinni umfram það sem kemur fram í fjölmiðlum en munum að sjálfsögðu greina þau og meta hvort við hefðum einhvers staðar getað gert betur.

Þetta minnir okkur á að þrátt fyrir árangur sem náðst hefur hvað varðar banaslys í umferðinni þá lýkur baráttunni fyrir auknu umferðaröryggi seint eða aldrei.


Búbblur & prjón

Skráðu þig hér: https://forms.office.com/e/KHFvBNGf97?origin=lprLink

Athugið að ekki þarf að prjóna til að mega koma, velkomið að sötra á búbblum, hekla, lita eða föndra eitthvað annað með höndunum!

Öll velkomin!

Sædís á þjónustufundi ríkisstofnana

Í fyrradag stóð Stafrænt Ísland fyrir þjónustufundi ríkisstofnana, fjórða árið í röð. Um hundrað manns sóttu fundinn á staðnum og í streymi.

Sædís Jónasdóttir hélt erindi á fundinum um leiðir sem Samgöngustofa hefur farið til að bæta þjónustu við viðskiptavini.

Samgöngustofa er ein af fáum ríkisstofnunum sem hefur innleitt öll 9 stafrænu skrefin og er því orðin leiðandi í stafrænni þjónustu af ríkisstofnunum. Sædís fór meðal annars yfir hver ávinningurinn hefur verið af innleiðingu á þjónustukerfinu Zendesk. Hvernig deildin hennar hefur nýtt sér tölfræði til að ná betur utan um erindi sem okkur berast og hvar umbóta er þörf. Hún sagði frá því að allir sem senda fyrirspurn fá að loknum svörum senda könnun um upplifun þjónustunnar. Svörin eru nýtt til að bæta þjónustuna enn frekar.

Einnig sýndi Sædís hvernig símtölum og heimsóknum í stofnunina hefur fækkað eftir að nýjar þjónustuleiðir eins og spjallmennið Askur voru tekin í notkun.

Vinnueftirlitið var líka með erindi á fundinum um það hvernig þau hafa bætt þjónustuna hjá sér. Um er að ræða eftirlitsstofnun sem hefur tekið hástökk í niðurstöðum þjónustukannana eftir gagngerar umbætur á til dæmis hraða og rafrænum leiðum.

Fyrirlestur Sædísar er aðgengilegur hér: Þjónustufundur mars2025

Mælaborð á könnun þjónustu ríkisstofnana hefur nú verið birt á Stjórnarráðsvefnum og má finna niðurstöður þar fyrir allar stofnanir með fleiri en hundrað svör.





Samgöngustofa tilnefnd til vefverðlauna

SVEF, Samtök vefiðnaðarins, heldur sína árlegu uppskeruhátíð föstudaginn 21. mars nk. Þar verða veitt íslensku vefverðlaunin og er vefur Samgöngustofu og 66°Norður, www.sjaumst.is, tilnefndur í tveimur flokkum;  Markaðsvefur ársins og Samfélagsvefur ársins.

Vefurinn er tengdur átekinu sem við fórum í nú í byrjun árs með 66°N sem kallaðist Sjáumst // EKKI þar sem hvatt var til notkunar endurskinsmerkja og endurskinsfatnaðar en það átak var sjálfstætt framhald Sjáumst átaksins sem farið var í fyrir ári síðan.

Aðrar tilnefningar má sjá hér: https://www.visir.is/g/20252697054d/tilnefningar-til-islensku-vefverdalaunanna-i-beinni


Árssamantekt umferðarsviðs fyrir árið 2024

Umferðarsvið hefur birt árssamantekt  fyrir árið 2024, þar sem farið er yfir helstu verkefni, þróun og töluleg gögn sviðsins og skýrslan er aðgengileg á Skýrsluvef Samgöngustofu.

Í samantektinni má finna lykiltölur úr rekstri, töluleg gögn sviðsins, yfirlit yfir stafræn verkefni sem lauk á árinu 2024, sem og þau sem eru í vinnslu á árinu 2025. Einnig er fjallað um önnur markverð skref sem stigið voru á síðasta ári, ásamt tölfræði um ökutæki í ökutækjaskrá, slysatölfræði SGS og „Við erum umferðarsvið“ og veitir örlitla innsýn í fjölbreytta starfsemi sviðsins.

Hægt er að nálgast árssamantektina og  tölulegu gögnin á Skýrsluvef Samgöngustofu.





Hvernig páskaegg vilt þú?

Það er ekki nema 5 vikur til páska og þá er tilvalið að fara velja sér egg því nú í ár vandast valið, því hægt verður að velja sér egg frá Góu 🎉

Ef ekkert er valið fyrir lok vinnudags, föstudaginn 7.mars þá færðu venjulegt egg 🐰

Hægt að velja sér egg á þessum link – https://forms.office.com/e/yHRiRNE0zH?origin=lprLink

Árangur af rafrænum tiltektardegi í málakerfinu

Blásið var til rafræns tiltektardags í málakerfinu 28. febrúar og fólk hvatt til að loka málum hjá sér. Auk þess lokaði starfsmaður skjalateymis málum í vinnslu frá árinu 2012-2021. Árangur af þessu er að málum í vinnslu í kerfinu fækkaði um rúm 37%. Við förum reglulega yfir hjá fólki sem er með mikinn fjölda mála í vinnslu hvernig grynnka megi á þeim, og munum áfram vinna að þessu. Ef tekin eru upp rafræn skil, verður það árleg vinna hjá öllu starfsfólki með mál í vinnslu að loka málum frá fyrra ári.
Í lok árs 2023 kom inn umbótatillaga um að skipuleggja tiltektardag í málakerfinu. Við skipulögðum tiltektardag í febrúar í fyrra og aftur núna. Því má segja að tiltektardagurinn hafi fest sig í sessi innan stofnunarinnar.

Skjalakerfi

Vinnustofur frá EUROCONTROL

Eins og þjóð veit þá varð Ísland aðili að EUROCONTROL 1. janúar sl. Eitt af því sem við fáum með aðild er stuðningur frá sérfræðingum EUROCONTROL varðandi hin ýmsu verkefni.  Þessa dagana njótum við sérfræðiþekkingar Alfred Gulders en hann heldur með okkur nokkrar vinnustofur.  Um er að ræða síþjálfun fyrir eftirlitsmenn í úttektum og hlítnivöktun annars vegar og hins vegar tvær vinnustofur um nýjar og breyttar kröfur í rekstrarstjórnun flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu. Allt þetta og fleira má sjá á Planinu.

Alfred Gulders er sérfræðingur frá EUROCONTROL.

Umhverfishópur Samgöngustofu 2025

Umhverfishópur Samgöngustofu er tekinn til starfa á ný.
Skipaður eftirfarandi aðilum:
Sólveig Nielsen, formaður
Gyða Marín Bjarnadóttir
Hilmar Þór Pétursson
Nína Dís Ólafsdóttir

Hópurinn vill hvetja starfsfólk Samgöngustofu til þátttöku í skapandi átaki og efnir til keppni um frumlegustu og/eða bestu hugmyndina að aðgerðum, breytingum eða lausnum í umhverfismálum innan stofnunarinnar.
Hvetjum við öll áhugasöm til að senda inn hugmyndir í gegnum Bendil-Umbótatillaga og velja flokkinn Umhverfismál.
Frestur til þátttöku er til hádegis föstudaginn 14 mars.
Umhverfishópur lofar spennandi verðlaunum fyrir vinningstillöguna!

Einnig er hægt að senda almenn erindi á hópinn á netfangið: umhverfismal@samgongustofa.is

Samgöngustofa tilnefnd til sex verðlauna

Í gær var tilkynnt um tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, sem eru veitt til bestu auglýsinga ársins 2024. Hlaut Samgöngustofa sex tilnefningar. Föstudaginn 7. mars kemur svo í ljós hver uppskeran verður, þ.e. hvort við hljótum einhvern lúður.

Fimm af þessum tilnefningum voru fyrir herferðina Ekki taka skjáhættuna sem við stóðum fyrir með Sjóvá og er ein fyrir Sjáumst // Ekki herferðina sem við stóðum fyrir með 66°Norður. Erum við tilnefnd fyrir Skjáhættuauglýsinguna í flokkunum Herferð ársins, Prentauglýsingar, Kvikmyndaðar auglýsingar – styttri, Veggspjöld og skilti og PR (Almannatengsl). Sjáumst herferðin er svo tilnefnd í flokknum Stafræn auglýsing.

Svona verðlaun eru ekki bara hégómi því þetta sýnir okkur að þau verkefni sem við höfum farið í og þær aðferðir sem við höfum notað til að koma skilaboðum okkar á framfæri eru að virka. Auk þess er öll umfjöllun um slíkar viðurkenningar af hinu góða þar sem hún varpar ljósi á skilaboð auglýsinganna.


Rafrænn tiltektardagur í málakerfi í dag

Í dag, 28. febrúar er rafrænn tiltektardagur í málakerfinu. Nú er tíminn til að fara yfir mál liðins árs og loka þeim. Það er einfalt að loka málum í Mitt One eins og sést á myndinni. Í næstu viku lokar skjalateymi málum sem eru frá 2021 eða eldri. Fólk getur fundið leiðbeiningar um hvernig það leitar að lokuðum málum á innri vef, undir skjalakerfi. Starfsmenn skjalateymis aðstoða í allan dag, best að senda okkur línu á Teams eða til skjalastjorn@samgongustofa.is.

Loka máli í Mitt One
Máli lokað í Mitt One

Tillögur um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur í samráðsgátt

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

  1. Felld er brott heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubifreiðastöð án starfsleyfis leigubifreiðastöðvar þar sem ein leigubifreið sem hann er skráður eigandi eða umráðamaður að hefur afgreiðslu.
  2. Kveðið er á um skyldur rekstrarleyfishafa til að veita leigubifreiðastöð nauðsynlegar upplýsingar svo að leigubifreiðastöðin geti fullnægt eigin skyldum.
  3. Skyldur leigubifreiðastöðvar eru auknar og tilgreindar þær upplýsingar sem leigubifreiðastöð skal búa yfir.
  4. Leigubifreiðastöð er gert að taka við upplýsingum úr rafrænni skrá um upphafs- og endastöð hverrar seldrar ferðar rekstrarleyfishafa sem hefur afgreiðslu á stöðinni, um staðsetningu á meðan á ferðinni stendur og um greiðslu sem skráð er í gjaldmæli eða með öðrum fullnægjandi hætti að ferð lokinni.
  5. Skyldur til varðveislu gagna í 60 daga eru alfarið færðar frá rekstrarleyfishafa til leigubifreiðastöðvarinnar. Kveðið er á um árlega úttekt stafrænna kerfa leigubifreiðastöðvar svo að öryggi og gæði gagna séu tryggð.
  6. Leigubifreiðastöð er gert að bjóða farveg fyrir kvartanir neytenda um verð og gæði þjónustu. Leyfishöfum er um leið gert að upplýsa og leiðbeina neytendum um þann möguleika og möguleika til að kvarta til annarra viðeigandi stjórnvalda.

Sjá nánar í frétt á vef innviðaráðuneytisins.


Vegna umfjöllunar um sjúkraskrá

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um sjúkraskrá og missi atvinnuflugmannsréttinda er rétt að eftirfarandi komi fram:

Samkvæmt samningi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafði trúnaðarlæknir Samgöngustofu aðgang að sjúkraskrá um árabil. Nýttist hann þegar leggja þurfti sérstakt mat á heilbrigði umsækjenda um leyfi til flugstarfa. Heilsugæslunni láðist hins vegar að afla lögbundins samþykkis ráðherra fyrir samningnum. Í kjölfar úrskurðar Persónuverndar frá 23. september 2024 var samningnum rift.

Samkvæmt niðurstöðu Persónuverndar starfaði trúnaðarlæknir Samgöngustofu innan aðgangsheimilda sinna, samkvæmt almennu verklagi stofnunarinnar. Öflun gagna fór fram í samræmi við umræddan samning og var öryggi þeirra í meðförum tryggt.

Á Samgöngustofu hvíla ríkar skyldur í tengslum við eftirlit með flugmálum og einstaklingum sem eru handhafar réttinda. Strangar heilbrigðiskröfur eru gerðar til þeirra sem fá útgefið skírteini atvinnuflugmanna.  Ákvarðanir um sviptingu heilbrigðisvottorðs og þar með missi réttinda eru teknar alvarlega og með flugöryggi að leiðarljósi.

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna

Föstudaginnn 28. febrúar er dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna.

Sokkabuxnakonan – sokkabuxur og sokkar!

Ísland í fremstu röð

Ráðherra okkar, Eyjólfur Ármannson, var staddur í Marrakesch nú á dögunum á alþjóðlegri ráðherraráðstefnu um umferðaröryggi, þeirri fjórðu í röðinni. Á síðustu ráðstefnu, sem fór fram í Stokkhólmi í febrúar árið 2020, skrifuðu ráðherrar undir yfirlýsingu þar sem ýmsu fögru var heitið, m.a. að fækka banaslysum um a.m.k. 50% frá árinu 2020 til 2030. Þar sem árið 2020 var á margan hátt skrítið vegna heimsfaraldurs Covid19 þá hefur verið miðað við meðaltal áranna 2017-2019 sem upphafspunkt.

Til að vera á réttri braut þyrftu lönd að vera búin að fækka látnum í umferðinni um 18,8% árið 2023 m.v. upphafspunktinn. Ísland er eitt af aðeins sjö ríkjum heimsins sem hefur náð þeim árangri og er árangur Íslands sá besti á heimsvísu (sjá mynd). Upphafspunktur Íslands (meðaltal 2017-2019) er 13,3 látnir en árið 2023 létust 8 manns á Íslandi sem er tæplega 40% fækkun. Til þess að ná þessum markmiðum árið 2030 mega ekki fleiri en 6 manns látast það ár í umferðinni.

Þar sem tölur yfir fjölda látinna í umferðinni eru lágar á Íslandi og sveiflur því miklar er rétt að taka þessum tölum með ákveðnum fyrirvara. Engu að síður er ánægjulegt að sjá Ísland fremst meðal jafningja þegar kemur að umferðaröryggismálum og alveg ljóst að við eigum góðan möguleika á að ná þessum markmiðum og hugsanlega vera eitt af fáum löndum sem það gera.