
Í byrjun árs fóru skipaskoðunarmenn Samgöngustofu til Vigo á Spáni til að framkvæma upphafsskoðun á nýju rannsóknarskipi Hafró. Upphafsskoðun er forsenda þess að skip séu skráð á íslenska skipaskrá og fái útgefin viðeigandi skírteini. Við upphafsskoðun er meðal annars farið yfir samþykkt öryggisplan skipsins og staðfest að öryggis- og björgunarbúnaður sé á réttum stöðum og uppfylli kröfur. Raunverulegt fyrirkomulag brunakerfa, siglingarljósa og vinnsluþilfars er borið saman við teikningar og fylgst með smíðaeftirliti flokkunarfélagsins.
Nýja skipið ber nafnið Þórunn Þórðardóttir HF-300 og leysir það af hólmi eldra rannsóknarskip, Bjarna Sæmundsson sem hefur verið í notkun síðan 1970. Nýja skipið kom til landsins er búið fullkomnum rannsókna- og mælibúnaði sem safnar gögnum í rauntíma. Tæknin mun nýtast til að kanna áhrif loftslagsbreytinga, rannsaka vistkerfi og styðja við sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda.