
Um helgina létust þrír einstaklingar í jafnmörgum banaslysum í umferðinni. Hafa þá fjögur látist í umferðinni það sem af er ári. Slysin voru af ólíkum toga og hending að þau hafi átt sér stað sömu helgina. Veður var almennt gott þessa daga en hálka kom þó við sögu í a.m.k. einu slysanna. Við höfum ekki fengið útlistun á slysunum frá rannsóknanefndinni umfram það sem kemur fram í fjölmiðlum en munum að sjálfsögðu greina þau og meta hvort við hefðum einhvers staðar getað gert betur.
Þetta minnir okkur á að þrátt fyrir árangur sem náðst hefur hvað varðar banaslys í umferðinni þá lýkur baráttunni fyrir auknu umferðaröryggi seint eða aldrei.