
Í fyrradag stóð Stafrænt Ísland fyrir þjónustufundi ríkisstofnana, fjórða árið í röð. Um hundrað manns sóttu fundinn á staðnum og í streymi.
Sædís Jónasdóttir hélt erindi á fundinum um leiðir sem Samgöngustofa hefur farið til að bæta þjónustu við viðskiptavini.
Samgöngustofa er ein af fáum ríkisstofnunum sem hefur innleitt öll 9 stafrænu skrefin og er því orðin leiðandi í stafrænni þjónustu af ríkisstofnunum. Sædís fór meðal annars yfir hver ávinningurinn hefur verið af innleiðingu á þjónustukerfinu Zendesk. Hvernig deildin hennar hefur nýtt sér tölfræði til að ná betur utan um erindi sem okkur berast og hvar umbóta er þörf. Hún sagði frá því að allir sem senda fyrirspurn fá að loknum svörum senda könnun um upplifun þjónustunnar. Svörin eru nýtt til að bæta þjónustuna enn frekar.
Einnig sýndi Sædís hvernig símtölum og heimsóknum í stofnunina hefur fækkað eftir að nýjar þjónustuleiðir eins og spjallmennið Askur voru tekin í notkun.
Vinnueftirlitið var líka með erindi á fundinum um það hvernig þau hafa bætt þjónustuna hjá sér. Um er að ræða eftirlitsstofnun sem hefur tekið hástökk í niðurstöðum þjónustukannana eftir gagngerar umbætur á til dæmis hraða og rafrænum leiðum.
Fyrirlestur Sædísar er aðgengilegur hér: Þjónustufundur mars2025
Mælaborð á könnun þjónustu ríkisstofnana hefur nú verið birt á Stjórnarráðsvefnum og má finna niðurstöður þar fyrir allar stofnanir með fleiri en hundrað svör.