Drög að reglugerð um öryggisstjórnun vegamannvirkja í samráðsgátt

Frétt af vef innviðaráðuneytisins:

Innviðaráðuneytið hefur undanfarið unnið að setningu reglna um sjálfstætt eftirlit með öryggi vegamannvirkja og drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 866/2011 um öryggisstjórnun vegamannvirkja hafa nú verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila inn umsögn er til og með 6. maí nk.

Markmiðið með breytingum er að efla enn frekar eftirlit með öryggi vegamannvirkja, m.a. með fjölbreyttar nýframkvæmdir og viðhald á vegum landsins. Breytingarnar fela annars vegar í sér skýr ákvæði um sjálfstætt eftirlit Samgöngustofu með framkvæmd öryggisstjórnunar vegamannvirkja. Hins vegar eru gerðar tillögur að breytingum vegna fyrirhugaðar innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins sem fjallar um öryggisstjórnun vegagrunnvirkja.

Helstu breytingar sem snúa að eftirliti Samgöngustofu með umferðaröryggisstjórnun vegamannvirkja eru:

  • Veghaldara verði gert að tilkynna Samgöngustofu um niðurstöður umferðaröryggisúttekta og það skýrt að gefi eftirlit Samgöngustofu með framkvæmd umferðaröryggisstjórnunar tilefni til geti stofnunin sjálf framkvæmt eða látið framkvæma umferðaröryggisúttekt á vettvangi.
  • Samgöngustofa gefi eða láti gefa út námskrá fyrir umferðaröryggisrýna í stað Vegagerðarinnar. Námskráin skuli þó unnin í samráði við Vegagerðina.
  • Bætt er við nýrri grein um eftirlit með umferðaröryggisstjórnun vegamannvirkja. Samkvæmt henni fer Samgöngustofa með eftirlit með framkvæmd umferðaröryggisstjórnunar í formi stjórnsýsluúttekta á verklagi við umferðaröryggisstjórnun. Samgöngustofa getur gefið fyrirmæli um úrbætur á verklagi ef þörf er á. Einnig er gert ráð fyrir að Samgöngustofa skuli óska eftir tímasettri úrbótaáætlun ef öryggi vegar er svo áfátt að hætta stafar af. Sé öryggi verulega ábótavant getur Samgöngustofa gefið út öryggisfyrirmæli um úrbætur.

Helstu breytingar sem lagðar eru til vegna fyrirhugaðrar innleiðingar tilskipunarinnar eru:

  • Gildissvið reglugerðar nr. 866/2011 er útvíkkað þannig að það tekur einnig til stofnvega utan samevrópska vegakerfisins.
  • Í stað þess að flokka skuli kafla vega eftir slysatíðni á þriggja ára fresti skal nú framkvæma umferðaröryggismat á vegakerfinu í heild sem reglugerðin tekur til á fimm ára fresti frá árinu 2024. Slíku mati skal fylgt eftir með annaðhvort markvissum umferðaröryggisúttektum eða beinum aðgerðum til úrbóta og að við slíkar aðgerðir skal taka tillit til þarfa óvarinna vegfarenda. Semja skal áhættumiðaða aðgerðaráætlun til að fylgjast með framkvæmd auðkenndrar aðgerðar til úrbóta.
  • Gerð er krafa um að öryggi vegkafla sem liggja að jarðgöngum sem falla undir ákvæði reglugerðar um öryggiskröfur fyrir jarðgöng nr. 895/2021 sé tryggt með sameiginlegum umferðaröryggisúttektum með öryggisfulltrúa jarðganga á minnst sex ára fresti.

Hægt er að skoða drög að breytingu á reglugerð í samráðsgátt stjórnvalda.

Föstudaglagið í boði Guðbjörns (Bubba)

Chris Stapleton - Muddy Country Radio

Það er hann Guðbjörn (Bubbi) sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir hann:

Þar sem Markús ákvað að vera svo harður vildi ég koma með mýkt í helgina ykkar. Lagið sem ég ákvað að velja er í raun lagið okkar Rebekku, konunnar minnar. Við vorum alltaf að spila þetta þegar við vorum að kynnast og er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Ég valdi einnig að hafa ‘live’ útgáfu af laginu sem sýnir hvað Chris Stableton er fáránlega góður söngvari en hann er eiginlega betri live en í studio. Njótið og ég mæli með að kynna ykkur Chris Stableton betur ef þið fílið létt kántrý.

Ég skora á Friðrik Hjörleifsson að koma með lag í næstu viku.

Ný fræðslumynd um eftirvagna

Nú er tilbúin fræðslumyndin „Ekið með eftirvagn“ þar sem farið er yfir mikilvæg öryggisatriði sem vert er að skoða áður en lagt er af stað með eftirvagn. Myndin er byggð á upplýsingum sem koma fram á vefnum okkar www.samgongustofa.is/eftirvagnar og er gefin út með íslenskum, enskum og pólskum texta.

Myndin verður aðgengileg á vefnum, á Youtube, samfélagsmiðlum og fer í birtingu með öðrum fræðslumyndum á RÚV. Samhliða útgáfunni verður vakin athygli breyttum skoðunarmánuði fyrir eftirvagna (sem nú er í maí en var áður í ágúst) og sérstök herferð og umfjallanir fyrir hvítasunnuhelgina sem er í byrjun júní og svo áfram út sumarið.

Nýr starfsmaður á stjórnsýslu- og þróunarsviði

Í gær hóf störf Erla Vinsý Daðadóttir. Erla Vinsý mun starfa sem lögfræðingur í lögfræðideild á stjórnsýslu- og þróunarsviði. Hún er staðsett á 3. hæð, gangi 3b.

Tökum vel á móti Erlu Vinsý 🙂









Fréttir af ráðningarmálum

Fyrir páska var gengið frá nokkrum ráðningum sem er mikið gleðiefni.

Erla Vinsý Daðadóttir hóf störf 19. apríl sl. Erla Vinsý mun starfa sem lögfræðingur í lögfræðideild á stjórnsýslu- og þróunarsviði. Erla Vinsý er með BA og Mag.jur í lögfræði frá Háskóla Íslands. Nú síðast starfaði hún sem aðstoðarmaður dómara hjá Landsrétti. Hún starfaði einnig hjá WOW air sem flugliði og á lögfræðisviði fyrirtækisins árin 2016-2019.

Haraldur Kristinsson Thorlacius mun hefja störf 1. júlí nk. sem verkefnastjóri hugbúnaðarþróunar. Haraldur er með BA próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og BS próf í Computer Science and Business Administration frá Copenhagen Business School. Hann er einnig með diploma nám í forritun og kerfisfræði frá NTV og IPMA D vottun í verkefnastjórnun. Frá árinu 2017 hefur Haraldur unnið sem verkefnastjóri hjá Þjóðskrá Íslands.

Magnús Elíasson mun hefja störf 1. júlí nk. sem forritari í upplýsingatæknideild. Magnús er með BS í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Magnús starfar í dag sem Senior Software Developer hjá Betware. Magnús mun starfa í Vestmannaeyjum.

Aðrar ráðningar sem eru í gangi eru; sérfræðingur í skipatæknideild, hafnarríkiseftirlitsmaður í skipaeftirlitsdeild og eftirlitsmaður umferðarmannvirkja, afleysing fyrir Eddu Doris.

Styrkir til hugvitsmanna

Ár hvert veitir Samgöngustofa styrk/styrki til ýmissa rannsóknarverkefna sem tengjast öryggi skipa, atvinnusjómanna, farþega og búnaðar um borð í skipum sem og verkefna sem snúa að heilsusamlegu umhverfi sjófarenda. Gert er ráð fyrir að veita styrki til einstaklinga og/eða félaga sem koma með tillögur að lausnum í þessa átt. Heildarstyrkupphæðin hljóðar upp á 2.500.000 krónur að hámarki hvert ár og er öllum frjálst að sækja um. 

Umsókn skal senda á netfangið styrkur@samgongustofa.is og skal umsókninni fylgja útfyllt eyðublað sem finna má hér á Word formi og hér á pdf formi. Einnig skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu í heild sem og greinargerð fyrir því hvaða hluta verkefnisins styrkurinn mun nýtast í. Nánar má finna um styrkinn hér: www.samgongustofa.is/styrkur



Vorfagnaður Bifhjólafólks

Ökukennarafélag Íslands, Bifhjólasamtök lýðveldisins Sniglar og Samgöngustofa bjóða til vorfagnaðar bifhjólafólks fimmtudaginn 21. apríl 2022 (sumardaginn fyrsta) í Ökuskóla 3 frá kl. 15:00.

Brautarakstur þátttakenda, sýnikennsla á öryggisatriðum, afsláttur í skoðun, hjól til sýnis, slysaþróun, forvarnir og fræðsla. Mætum öll – helst hjólandi. Sjá Facebook-viðburð hér.

Drög að forgangslista vegna hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB

Í Samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að forgangslista fyrir hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB vegna aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Frestur til að veita umsagnir er til 29. apríl.

Í listanum eru nokkur atriði sem snerta starfsemi Samgöngustofu eins og:

  • Losun frá flugstarfsemi (bls. 4)
  • Sjálfbært flugeldsneyti (bls. 5)
  • Samgöngumál (bls. 10)
  • Netöryggi (bls. 11)
  • Rafræn þjónusta (bls. 11)

Listinn tekur til tímabilsins 2022-2023 en þetta er í fjórða skipti sem slíkur listi er útbúinn. Á listanum eru 27 mál sem skilgreind hafa verið sem forgangsmál hvað íslenska hagsmuni varðar. Listinn er byggður á tillögum frá ráðuneytunum, sem bera ábyrgð á að vakta sín málefnasvið.

Tilgangur forgangslistans er að auka skilvirkni í þátttöku Íslands í EES-samstarfinu og ákveða hvernig hagsmunagæslu af Íslands hálfu verði best háttað á tímabilinu. Listinn er í grunninn einskorðaður við mál sem eru á undirbúnings- eða forstigi hjá framkvæmdastjórn ESB eða mál sem komin eru á vinnslustig en þá hefur framkvæmdastjórnin þegar lagt fram tillögu að lagasetningu til ráðsins og Evrópuþingsins.

Í einstaka tilfellum eru mál á listanum þar sem búið er að taka ákvörðun hjá ESB en huga þarf sérstaklega að upptöku viðkomandi gerða í EES-samninginn, t.d. með því að fara fram á aðlaganir.

Forgangslisti 2022-2023
Viðauki

Sjá frétt á stjórnarráðsvefnum

Fjölgun atvinnuleyfa til leigubifreiðaaksturs í samráð

Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um leigubifreiðar nr. 397/2003 hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Öllum gefst kostur á að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að koma að athugasemdum rennur út 25. apríl nk.

Með drögunum er lagt til að atvinnuleyfum til aksturs leigubifreiða á takmörkunarsvæði I (höfuðborgarsvæðið og Suðurnes) verði fjölgað úr 580 í 680 en fram hafa komið sjónarmið um að skortur sé á þjónustu leigubifreiða á svæðinu. Þannig fjölgi útgefnum atvinnuleyfum um 100.

Sjá frétt á vef innviðaráðuneytisins

12 hnútar- ofmat á eigin hæfni

Fjórða veggspjaldið (fyrir apríl) í 12 hnútum er nú komið út. Þar er fjallað um þá hættu sem getur stafað af ofmati á eigin hæfni. Lögð er áhersla á að fólk leiti álits, deili hugmyndum og skoðunum með öðrum í áhöfninni og komast þannig að sameiginlegri niðurstöðu um bestu leiðina til að leysa málin.

Sjómenn hafa náð ótrúlegum árangri í fækkun slysa á undanförnum árum og áratugum. Það er vegna árvekni þeirra, menntunar og hæfni til að starfa við oft hættulegar og erfiðar aðstæður. Aðstæður þar sem minnstu mannlegu mistök eða yfirsjón geta valdið slysi. Með rafrænu veggspjöldunum 12 hnútar sem Samgöngustofa gefur út er fjallað um fyrirbyggjandi aðgerðir til að mannleg mistök, viðhorf, venjur og fleira verði ekki til þess að auka líkur á slysum.

Sjá nánar á www.samgongustofa.is/12hnutar



Gunnar Geir í viðtali á Hringbraut

Gunnar Geir, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar, var í viðtali á Hringbraut í gær. Viðtalið byrjar á mínútu 17:40. Umfjöllunarefnið var slysaskýrsla umferðarslysa sem öryggis- og fræðsludeild hefur tekið saman fyrir árið 2021. Í viðtalinu er m.a. fjallað um aukningu slysa af völdum rafhlaupahjóla, slys ungra ökumanna og eldri ökumanna svo eitthvað sé nefnt.

Skýrsluna má finna hér á vef Samgöngustofu. Árið 2021 var mjög sérstakt ár, bæði hvað varðar umferðaröryggi en einnig þjóðfélagið í heild. Var þetta annað árið í röð þar sem heimsfaraldurs gætti en árin 2020 og 2021 eru þó gerólík hvað varðar umferðaröryggið. Um töluverða aukningu slysa og slasaðra er að ræða. Fjöldi slasaðra og látinna í fyrra voru 1162 einstaklingar en árið á undan voru það 1015. Árið í fyrra er reyndar undir 10 ára meðaltali frá 2012 til 2021 sem er 1219 og má því segja að til lengri tíma litið sé þróunin í rétta átt.

Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra eykst fer úr 157 árið 2020 í 208 árið 2021 sem er um 32,5% hækkun. Meira er nú um að ungir ökumenn séu að lenda í slysum en árin á undan. Talsverð aukning er í fjölda slasaðra óvarinna vegfarenda og þá sérstaklega á rafhlaupahjólum. Minna er um aði börn á aldrinum 0 – 14 ára slasist. Sérstaklega fækkar slösuðum börnum í bifreiðum en hinsvegar fjölgar aðeins slösuðum börnum sem eru gangandi og hjólandi í þessum aldurshópi. Slysum sem rekja má til vanrækslu á notkun öryggisbelta fækkar og alvarlegum slysum og banaslysum vegna ölvunar og fíkniefnaaksturs fækkar.

Drög að skýrslu starfshóps um smáfarartæki í samráðsgátt stjórnvalda

Drög að skýrslu starfshóps um smáfarartæki hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Öllum gefst kostur á að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að koma að athugasemdum rennur út 25. apríl nk.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði á dögunum starfshóp sem hefur það hlutverk að kortleggja stöðu smáfarartækja hér á landi og vinna tillögur til ráðherra að úrbótum. Skýrsludrögin sem nú eru birt til umsagnar hafa að geyma drög að sex tillögum til úrbóta er miða að því að auka öryggi notenda smáfarartækja og annarra vegfarenda auk þess að styðja við notkun fjölbreyttra umhverfisvænna fararskjóta með öruggum hætti. Í skýrsludrögunum er aðaláhersla lögð á rafhlaupahjól en það eru algengustu smáfarartækin í umferð.

Starfshópurinn sem skipaður er fulltrúum innviðaráðuneytis, Samgöngustofu, Vegagerðarinnar, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar muni skila innviðaráðherra tillögum sínum til úrbóta í júní 2022.

Innviðaráðuneytið: Einfaldara regluverk og bætt þjónusta

Innviðaráðuneytið og stofnanir þess óska eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk og bæta þjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess. Sjá frétt af vef ráðuneytisins:

Innviðaráðuneytið og stofnanir þess óska eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk og bæta þjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess. Allir eiga kost á því að taka þátt í netkönnuninni til og með 6. maí nk. í samráðsgátt stjórnvalda.

Markmiðið er bæta þjónustu hins opinbera með því að greina hvort og hvar lagðar eru óþarfar, flóknar eða óljósar byrðar á einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög eða félagasamtök sem þurfa þjónustu eða leita erinda hjá ráðuneytinu eða stofnunum þess. 

Könnunin snýr að innviðaráðuneytinu og sjö fagstofnunum þess en þær eru: Byggðastofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Skipulagsstofnun, Vegagerðin og Þjóðskrá Íslands.

Ábendingar geta verið af ýmsum toga og geta snúið að íþyngjandi reglum, skorti á leiðbeiningum eða upplýsingum, hvar þjónustuferlar gætu verið betri eða stafrænni eða hvort þjónustu vanti eða þurfi að breyta vegna breytinga í samfélaginu.

Verkefnið er ein af áherslum innviðaráðherra í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar um að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.

„Við fórum í sambærilegt átak fyrir tveimur árum og fengum fjölmargar gagnlegar ábendingar. Við gátum til að mynda nýtt nokkrar af ábendingunum í undirbúning að því að gera umgjörð almenns ökunáms stafræna frá upphafi til enda. Með aðstoð almennings, fyrirtækja og stofnana viljum við bæta þjónustu stjórnsýslunnar eins og kostur er og hvetjum fólk til að taka þátt í netkönnun ráðuneytisins,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.

Fyrir tveimur árum réðist ráðuneytið (þá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið) í fyrstu könnun af þessu tagi og bárust þá rúmlega 50 ábendingar sem unnið var úr bæði í stofnunum og ráðuneytinu í samræmi við aðgerðaáætlun þar að lútandi. Frá því að síðasta könnun var gerð hafa málaflokkar húsnæðis- og mannvirkjamála annars vegar og skipulagsmála hins vegar færst til ráðuneytisins.

Niðurstöður úr HR Monitor, Bendill o.fl.

Í dag var nafn nýs ábendingarkerfis kynnt í föstudagskaffinu, nafnið Bendill varð hlustskarpast í nafnasamkeppninni, en svo skemmtilega vill til að það voru fimm einstaklingar sem að komu með þessa sömu tillögu, því voru fleiri sem að fengu vinning í morgun en upphafleg stóð til. Í þeim hóp voru þau Edda Björk, Hallgrímur, Kristín Helga, Sigfús og Rafn. Dregið var um fyrstu verðlaun og fékk Edda Björk vinninginn. Yfir 70 tillögur að nafni bárust í gegnum Bendil og því frábær þátttaka í þessari skemmtilegu keppni. 

Jón Gunnar fór svo yfir nokkur atriði; m.a. rekstur stofnunarinnar í upphafi árs, niðurstöðurnar úr HR Monitor viðhorfskönnuninni, skráningu fyrstu rafmagnflugvélarinnar á Íslandi, nýsmíðaverkefni skipa, slysaskýrslu í umferð og ýmislegt fleira. Fyrir þau sem komust ekki í morgun er hægt að nálgast glærurnar hér.

Föstudagslagið í boði Markúsar

Það er hann Markús Benediktsson sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir Markús:

Þetta er bara svo mega hresst lag að það verður ekki meira föstudax en þetta!

Skora á Bubba að koma með næsta föstudagslag.

Skýrsla umferðarslysa 2021 komin út

Slysaskýrsla umferðarslysa, sem öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu hefur tekið saman fyrir árið 2021, er komin út. Að baki liggur mikil vinna við greiningu og skráningu lögregluskýrlsna og hefur Þorbjörg Jónsdóttir sinnt því af miklum dugnaði. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar útbjó skýrsluna en hún er notuð m.a. til greiningar á atriðum sem leggja þarf sérstaka áherslu á í forvörnum og fræðslu.

Skýrsluna má finna hér á vef Samgöngustofu. Árið 2021 var mjög sérstakt ár, bæði hvað varðar umferðaröryggi en einnig þjóðfélagið í heild. Var þetta annað árið í röð þar sem heimsfaraldurs gætti en árin 2020 og 2021 eru þó gerólík hvað varðar umferðaröryggið. Um töluverða aukningu slysa og slasaðra er að ræða. Fjöldi slasaðra og látinna í fyrra voru 1162 einstaklingar en árið á undan voru það 1015. Árið í fyrra er reyndar undir 10 ára meðaltali frá 2012 til 2021 sem er 1219 og má því segja að til lengri tíma litið sé þróunin í rétta átt.

Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra eykst fer úr 157 árið 2020 í 208 árið 2021 sem er um 32,5% hækkun. Meira er nú um að ungir ökumenn séu að lenda í slysum en árin á undan. Talsverð aukning er í fjölda slasaðra óvarinna vegfarenda og þá sérstaklega á rafhlaupahjólum. Minna er um aði börn á aldrinum 0 – 14 ára slasist. Sérstaklega fækkar slösuðum börnum í bifreiðum en hinsvegar fjölgar aðeins slösuðum börnum sem eru gangandi og hjólandi í þessum aldurshópi. Slysum sem rekja má til vanrækslu á notkun öryggisbelta fækkar og alvarlegum slysum og banaslysum vegna ölvunar og fíkniefnaaksturs fækkar.

Slys af völdum rafhlaupahjóla eru 16,8% af heildarfjölda alvarlega slasaðra og látinna í umferðinni 2021. Í viðhorfskönnun sem Samgöngustofa lét gera kemur fram að 31,6% fólks (18-24 ára) hafa ekið rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis. 42% landsmanna prófað rafhlaupahjól og af þeim hafa 29% notað þau undir áhrifum áfengis. Það þýðir að 12,2% af allri þjóðinni (18 ára og eldri) hafa notað rafhlaupahjól undir áhrifum áfengis.Í sömu könnun má sjá slaka í viðhorfi fólks til þeirrar ábyrgðar sem felst í notkun öryggisbelta, að aka ekki eftir neyslu áfengis og nota ekki snjalltæki við akstur svo dæmi séu nefnd. Í raun má segja að slysatölurnar endurspegli að mörgu leyti þetta viðhorf.
.

Samgöngustofa með tvær tilnefningar til Lúðursins 2021!

Lúðurinn, Íslensku auglýsingaverðlaunin, þar sem auglýsingastofur keppast um að hreppa verðlaun fyrir bestu auglýsingarnar í sextán mismunandi flokkum, verða veitt í 36. skiptið við hátíðlega athöfn í Gamla bíó 8. apríl nk. Auglýsing Samgöngustofu „Smellum saman“ er tilnefnd til Lúðursins í flokki almannaheilla (kvikmyndaðar auglýsingar) og „ósýnilegi jólasveinninn“ á strætóskýlum borgarinnar er tilnefndur opnum flokki almannaheilla.

Auglýsingin „Smellum saman“ er í raun lag og myndband í flutningi söngvaranna Króla og Rakelar Bjarkar þar sem þau syngja um ástina og lífið ásamt því að undirstrika að öryggið gefur okkur tækifæri til þess að njóta lífsins. Smellum saman er ný nálgun í að minna fólk á mikilvægi bílbeltanotkunar en í stað þess að vera með hræðsluáróður er jákvæðnin höfð að leiðarljósi. Nánari upplýsingar má finna á www.smellumsaman.is

Ósýnilegi jólasveinninn

Auglýsingin með „ósýnilega jólasveininum“ birtist á strætóskýlum borgarinnar í vetur til að minna vegfarendur á mikilvægi sýnileika í umferðinni. Í myrkri sjást óvarðir vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða og er notkun endurskinsmerkja þess vegna nauðsynleg.

Málþing – Þjálfun vegna hættulegs varnings

Dangerous Goods | Federal Aviation Administration

Samgöngustofa hefur boðið íslenskum flugrekendum á málþing vegna nýrrar nálgunar á þjálfun vegna hættulegs varnings (Dangerous Goods Competency Based Training and Assessment Sympoisum). Ráðstefnan verður haldin í dag miðvikudag 6. apríl kl. 13-16 hér í Ármúlanum í matsalnum.

Næstkomandi áramót tekur í gildi ný reglugerð um þjálfun á hættulegum varningi. Þjálfunin verður klæðskerasniðin að verksviði og hæfni einstaklingsins og líkur með mati (Competency Based Training and Assessment). Flugrekendur þurfa að leggja fram nýjar þjálfunaráætlanir til samþykktar hjá Samgöngustofu áður en reglugerðin tekur gildi. Málþingið er boðað til þess að vinna náið með flugrekendum varðandi útfærslu þjálfunarinnar og framsetningu nýrra þjálfunaráætlana.

Skráning í páskabingó til 13 í dag!

Við viljum minna á að skráning á Páskabingó rennur út kl.13.00 í dag.

Páskabingó barnanna hjá Farsýslunni verður á matsal nú á fimmtudaginn 7. apríl kl. 17:00. Páskaegg í verðlaun og tryggt verður að öll börn sem mæta fái í það minnsta smá glaðning.

Þá verða veitingar á boðstólnum.

Skráning fer fram HÉR.

Nauðsynlegt er að þeir sem ætla að mæta skrái sig svo við getum haft nægilegt magn vinninga og matar fyrir viðstadda.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Stjórn Farsýslunnar

Föstudagslagið í boði Ingu Birnu

The Bee Gees | Beat

Það er hún Inga Birna sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir hún:

Lagið er How deep is your love með Bee Gees. Valdi það því mér finnst það mjög fallegt lag og eitt af þeim lögum sem mér finnst skemmtilegast að syngja með í bílnum 🙂

Ég skora á Markús að velja lagið í næstu viku