Föstudaglagið – Gleðilega Eurovisionhelgi!

Iceland: Systur shine a light over Europe with their song of hope -  Eurovision Song Contest

Í tilefni Eurovision er föstudagslagið að sjálfsöguð lag þeirra Systra; Með hækkandi sól. Við treystum á að lagið hljómi á öllum göngum í dag og allir verði í Eurostuði og syngji með. Látum fylgja eitt klassískt íslenskt Eurovisionlag sem oft er tekið í útilegum á sumrin og allir kunna textann við.

Gleðilega Eurovision helgi!


Umferðarþing haldið 23. september

Samgöngustofa heldur Umferðarþing föstudaginn 23. september 2022 kl. 9-16 í Gamla bíói, Ingólfsstræti 2a í Reykjavík. Endilega takið daginn frá.

Umferðarþingið verður haldið í lok evrópsku samgönguvikunnar sem ber í ár yfirskriftina “Virkar samgöngur – betri hreyfing”. Áhersla þingsins í ár verður á óvarða vegfarendur í umferðinni sem mætti með réttu kalla “virka vegfarendur” – innan og utan akbrauta. Er þá helst átt við gangandi og hjólandi, bæði á reiðhjólum og hinum ýmsu smátækjum (þar á meðal rafhlaupahjólum) og samspil þeirra við aðra umferð. Dagskrá, skráning og frekari upplýsingar koma síðar.

805 kílómetrar hjólaðir


Eins og áður segir eru þrjú lið Samgöngustofu skráð í Hjólað í vinnuna þetta árið. Þetta eru liðin Meðvindur, Mótvindur og Hjólhestar. Í morgun voru tveir liðsmenn Meðvinds að hjóla úr Garðabæ og við Kópavogshálsinn tók liðsmaður Hjólhesta fram úr þeim en hann var að koma alla leið úr Keflavíkinni. Hjólhesturinn hægði ferðina og spjallaði við Meðvindsmenn en kvaddi svo og brunaði á undan í Ármúlann. Ekki nema 60 km leið að fara fyrir Hjólhestinn og ekki laust við að Meðvindsmenn hafi verið nokkuð litlir í sér eftir þessa lífsreynslu…

Samtals hafa þessi þrjú lið hjólað um 805 km leið á þessu stigi átaksins en það er um 100 km lengra en vegalengdin til Neskaupsstaðar (suðurleiðin). Staðan innan Samgöngustofu er þessi:

Heildarvegalengd liða, liðið Meðvindur heldur forystu en Mótvindur fylgir fast á eftir

Hlutfall km, Mótvindur er með forystuna hvað varðar hlutfall km en Meðvindur í öðru:

Nánari fréttir síðar…

Fréttir af ráðningarmálum

Nýlega var gengið frá tveimur ráðningum í siglingastörf.
Ingólfur Örn Þorbjörnsson var ráðinn sérfræðingur í skipatæknideild.
Ingólfur er verkfræðingur að mennt, lærði í Danmörku og lauk þaðan bæði grunn- og meistaragráðu. Einnig hefur Ingólfur sveinspróf í stálskipasmíði. Síðast starfaði Ingólfur sem nýsköpunarstjóri hjá Íslenskum orkurannsóknum auk kennslu við Háskólann í Reykjavík.
Ingólfur hefur störf 3. júní næstkomandi.

Vivek Sharma var ráðinn í starf eftirlitsmanns hafnarríkiseftirlits (e. Port State Control).
Vivek hefur atvinnuskírteini skipstjóra auk BS gráðu í sjávarfræðum (e. nautical science). Vivek hefur starfað á sjó á skemmtiferða- og flutningaskipum sl. tíu ár. Vivek starfar í dag sem fyrsti stýrimaður á skipi National Geographic Expedition cruise sem siglir um norðurslóðir og Suðurskautslandið.
Vivek hefur störf 3. ágúst næstkomandi.

Drög að nýju skipuriti

Drög að nýju skipuriti Samgöngustofu

Á miðvikudaginn fór Jón Gunnar yfir tillögur að breytingum á skipulagi Samgöngustofu sem miða að áframhaldandi þróun í samræmi við þarfir starfseminnar. Einnig eiga þær að styðja við stefnumótun sem unnið er að, með samlegð þar sem mögulegt er.

Eins og kom fram í tölvupósti frá Jóni Gunnari í dag þá er tillögunum ætlað að mæta ólíkum áskorunum einstakra fagsviða og auka samræmi innan þeirra í meira mæli en núverandi skipulag býður upp á. Skipurit er í sjálfu sér bara einföld teikning sem lýsir verkaskiptingu og að einhverju leyti ábyrgð á málaflokkum og einstökum verkefnasviðum. Skipulag verður ekki höggvið í stein til allrar framtíðar, heldur mun taka breytingum eftir þörfum og að fenginni reynslu.

Næstu vikurnar munum við skoða og ræða nánari útfærslur á einstökum stöðum svo niðurstaðan verði sem best. Ætlunin er að hægt verði að kynna nýja skipulagið formlega um miðjan júní, en þangað til er það verk í vinnslu og því ekki til dreifingar utanhúss. Tilfærslur starfstöðva innan húsnæðis verða svo skoðaðar í lok sumars.

Drög að siðareglum

Í morgunkaffinu kynnti Jón Gunnar drög að nýjum siðareglum Samgöngustofu. Þau voru undirbúin af litlum hópi sem grundvöllur umræðu að sameiginlegum sáttmála okkar um ábyrgð, heilindi og háttsemi. Drögin verða rædd áfram með það að markmiði að ná sameiginlegri niðurstöðu sem síðan verður birt og gerð sýnileg. Siðareglurnar verða ekki endanlegur úrskurður sem gildir að eilífu heldur verður hún tekin til endurskoðunar eftir því sem tilefni er til.

Drög að siðareglum Samgöngustofu

Staða forritara auglýst

Samgöngustofa auglýsir stöðu forritara. Auglýsingin er komin í loftið á starfatorgiheimasíðu Samgöngustofu og Alfreð

Umsóknarfrestur er til og með 16. maí nk. 

Föstudagslagið í boði Sigurlínu

Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir í september árið 1980, um svipað leyti og platan Dagar og nætur kom út. Núna, þrjátíu árum síðar, liggja leiðir þeirra saman á nýjan leik.

Það er hún Sigurlína Freysteinsdóttir sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir hún:

Dagar og nætur með Bo og Röggu Gísla, reynið að sitja kyrr 🙂

Þetta lag fær alla til að dilla sér og því valdi ég það. Það er svo hollt og gott að sleppa sér aðeins og syngja með. Um leið og ég skora á ykkur kæru samstarfsfélagar að stíga nokkur spor á meðan þið hlustið vil ég nýta tækifærið og þakka fyrir góðar móttökur.

Ég skora á Kristínu Björgu að koma með næsta föstudagslag, ég hef mikla trú á að hún haldi uppi stuðinu áfram!

Innskot vefstjóra: Hér er skemmtilegt viðtal við Röggu Gísla um þetta samstarf hennar við Bó.

Hjólað í vinnuna – setningarhátíð í gær

Á myndinni eru Andri Stefánssón framkvæmdastjóri ÍSÍ, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu, Ingvar Ómarsson hjólreiðakappi og Sigrún Ágústsdóttir forstjóri Umhverfisstofnunar.


Setningarhátíð Hjólað í vinnuna fór fram í gærmorgun og hélt Jón Gunnar ræðu af því tilefni ásamt þeim Andra Stefánssyni framkvæmdarstjóra ÍSÍ, Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra, Degi B. Eggertssyni borgarstjóra Reykjavíkur, Sigrúnu Ágústsdóttur forstjóra Umhverfisstofnunar og Ingvari Ómarssyni hjólreiðakappa.

Jón Gunnar sagði frá því að hann hafi tekið þátt í átakinu í allmörg ár og haft mjög gaman af. Hann benti á að Hjólað í vinnuna væri sannkallaður vorboði en nauðsynlegt væri að vera vel búinn og að huga að örygginu, vera með hjálm og hafa hjólið í lagi. Hann benti á að hjólandi og gangandi þurfa að bera virðingu fyrir hvort öðru, sýna aðgát og tillitssemi. Sjá nánar frétt á vef átaksins.

Hjólað í vinnuna er ræst í 20. skiptið, Jón Gunnar lengst til vinstri.

Af þessu tilefni var einnig útbúið sérstakt kynningarmyndband sem birst hefur á samfélagsmiðlum þar sem Jón Gunnar ásamt þeim Sigrúnu forstjóra Umhverfissstofnunar, Andra Stefánssyni framkvæmdastjóra ÍSÍ:

Viðtal við Einar Magnús í Fréttablaðinu í dag

Einar Magnús er í viðtali í Bílablaði Fréttablaðsins í dag í tilefni Vorfagnaðar bifhjólaflokks sem sem Samgöngustofa hélt í samstarfi við Sniglana og Ökukennarafélagið.

Viðtalið/greinin:

Á sumardaginn fyrsta hélt Samgöngustofa í samstarfi við Sniglana og Ökukennarafélagið í fyrsta sinn svokallaðan Vorfagnað bifhjólafólks. Að sögn Einars Magnúsar Magnússonar, sérfræðings hjá öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu, hefur verið samstarf milli þeirra og Sniglanna um árlegan vorfund þar sem farið er yfir slysatölfræði bifhjólafólks. „Nú í ár langaði okkur að taka þetta lengra og fengum til liðs við okkar Ökukennarafélag Íslands og bifhjólakennara á þess vegum. Hugmyndin var að bjóða bifhjólafólki upp á vorfagnað þar sem boðið væri upp á fræðslu, æfingar og kennslu sem búið gæti bifhjólafólk sem best undir sumarið sem vitanlega er sá tími sem flestir eru á ferðinni á bifhjólum,“ sagði Einar.

Ökukennarafélagið bauð afnot af Ökuskóla 3 fyrir fundinn en þar er stórt æfingasvæði á braut Kvartmíluklúbbsins. „Í stuttu máli tókst í frábæru samstarfi við Sniglana, ökukennara, Ökuskóla 3 og Ökukennarafélagið að gera eftirminnilegan og gagnlegan dag sem ég held að muni lengi verða í minnum hafður. Þetta var hreint út sagt frábær dagur og eiga þessir aðilar miklar og góðar þakkirskildar fyrir framlag sitt,“ sagði Einar enn fremur.

Auk þessa flutti Einar erindi um þróun slysatölfræði meðal bifhjólafólks en í því kom fram að í dag eru mun minni líkur á slysum meðal bifhjólafólks. „Ljóst er að nú er mun betra og reynslumeira bifhjólafólk í umferðinni og almennt held ég að vitund almennra ökumanna sé mun meiri fyrir umferð bifhjólafólks en áður var. Í erindinu var jafnframt lögð mikil áhersla á notkun viðurkennds hlífðarfatnaðar sem væri merktur evrópskum CE-stöðlum en rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lagt ríka áherslu á það í ljósi fjölda banaslysa og alvarlegra slysa þar sem slíkur búnaður var ekki notaður,“ sagði Einar að lokum.

Þrjú lið skráð hjá Samgöngustofu


Hjólað í vinnuna hefst á morgun miðvikudag. Þrjú lið eru skráð hjá okkur á Samgöngustofu: Meðvindur, Mótvindur og Hjólhestar. Liðið Meðvindur er nú fullskipað (hámark 10 til að taka þátt í kílómetrakeppni) og ekki hægt að bæta fleirum við þar en enn eru laus sæti í liðunum Mótvindi (7 sæti laus) og Hjólhestum (5 sæti laus). Kristín Helga er liðstjóri Hjólhesta, Atle er leiðtogi Meðvinds en ekki er vitað hver leiðir lið Mótvinds, ábendingar vel þegnar :). Búist er við harðri keppni næstu vikurnar og ekkert verður gefið eftir hvort sem fólk fær meðvind eða lendir í mótvindi.

Aðeins um Hjólað í vinnuna:
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“. Vinnustaðir eru hvattir til að setja upp lið og liðsstjóra og skrá sig til leiks hér og vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta til og frá vinnu t.d. með því að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur. Ýmsan fróðleik má finna hér og mun Samgöngustofa vekja sérstaka athygli á umferðaröryggi hjólreiðamanna.

Allir eru hvattir til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra til þess að taka þátt með þeim. Undanfarin ár höfum við hjá Samgöngustofu verið með nokkur lið og hefur myndast samkeppni þeirra á milli. Skráum sem flest lið til leiks og tökum virkan þátt í þessu flotta framtaki!

Upplýsingar um hvernig skráning fer fram má nálgast hér.






Þórhildur í síðdegisútvarpinu

Þórhildur var í síðdegisútvarpinu í gær og minnti landsmenn á að maí er nýr skoðunarmánuður fyrir húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, bifhjól, létt bifhjól í flokki II og fornökutæki. Sjá nánar í frétt hér á innri vefnum frá því í gær. Viðtalið byrjar á mínútu 35. Þið megið endilega láta orðið berast ef þið þekkið fólk sem á slík tæki og tól 🙂









Viðtal við Gunnar Geir í Morgunblaðinu

Gunnar Geir, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar, er í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Umfjöllunarefnið er m.a. mikil fjölgun slysa á rafmagnshlaupahjólum og í viðtalinu segir m.a.:

„Slys­um á reiðhjól­um, raf­magns­reiðhjól­um og raf­magns­hlaupa­hjól­um fjölgaði mjög mikið í fyrra en það má að stærst­um eða öll­um hluta rekja til mik­ill­ar fjölg­un­ar slysa á raf­magns­hlaupa­hjól­um. Al­var­leg­um slys­um á þess­um tækj­um fjölg­ar einnig mikið á milli ára, eða úr 4 í 35 og seg­ir sér­fræðing­ur hjá Sam­göngu­stofu að slys á þess­um tækj­um séu nú orðin stór hluti af heild­ar­mynd­inni þegar kem­ur að um­ferðarslys­um. Stór­an hluta þess­ara slysa má þó rekja til tveggja not­enda­hópa og hægt eigi að vera að fyr­iyggja þau að miklu leyti.

„Í fyrra varð al­gjör spreng­ing í þess­um slys­um. Við sáum þetta fyrst árið 2020, en þetta marg­faldaðist í fyrra,“ seg­ir Gunn­ar Geir Gunn­ars­son, deild­ar­stjóri ör­ygg­is- og fræðslu­deild­ar Sam­göngu­stofu, í sam­tali við Morg­un­blaðið. „Þetta er orðið stórt vanda­mál og áber­andi hluti af heild­ar­mynd­inni varðandi um­ferðarslys.“ “

Viðtalið í heild má lesa hér.

Maí er nýr skoðunarmánuður fyrir húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, bifhjól, létt bifhjól í flokki II og fornökutæki

Við erum þessa dagana (fréttatilkynning, samfélagsmiðlar o.fl.) að vekja athygli á að með reglugerð nr. 414/2021 um skoðun ökutækja hafa ökutæki í ákveðnum ökutækja- og notkunarflokkum fengið nýjan skoðunarmánuð. Skal nú og framvegis færa þau til skoðunar eins og þau hefðu 5 í endastaf skráningarmerkis, sem þýðir að skoðunarmánuðurinn er maí. Þetta á við um húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, bifhjól, létt bifhjól í flokki II og fornökutæki. Vanrækslugjald leggst á óskoðuð ökutæki í þessum flokkum þann 1. ágúst.

Reglubundin skoðun ökutækja þar sem farið er yfir ástand og búnað er lögbundin, enda mikilvæg fyrir umferðaröryggi. Samgöngustofa hvetur því eigendur ofangreindra ökutækja að huga að skoðun sem fyrst og fara þannig öruggari á göturnar og inn í sumarið. Ítarlegri upplýsingar má finna á www.samgongustofa.is/skodun

Hægt er að sjá skoðunarmánuð bifreiðar með því að fletta upp bílnúmerinu á vefsíðunni www.samgongustofa.is/okutaekjaskra eða á Mínu svæði Samgöngustofu.

Dr. Bæk á mánudag og þriðjudag

Við hvetjum ykkur til að koma með hjólið til hinnar árlegu ástandsskoðunar Dr. Bæk
mánudaginn 2. maí kl. 13 – 16 eða þriðjudaginn 3. maí kl. 9 – 12.

Skráning hér

Doktorinn kemur með farandskoðunarstöðina sína, pumpu, olíur og nokkra skiptilykla. Starfsmönnum er boðið að skrá hjólið sitt á þennan tengil og mæta svo með það til hans:
Dr. Bæk hjá Samgöngustofu.

Doktorinn er sérdeilis ráðagóður og allir hvattir til að leita ráða hjá honum um hjólatengd mál.
Fyrir bremsupúðaskipti er gott að vera með 1.500 kr. í vasanum.

ps. Rafmagnsreiðhjól fá takmarkaða þjónustu,
einkum vegna þyngdar og kerfisbúnaðar.





Föstudagslagið í boði Friðriks

Manstu eftir Rebeccu Black sem gerði lagið „FRIDAY“? - Hún er komin með  nýtt lag! -

Það er hann Friðrik Hjörleifsson sem velur föstudagslagið þessa vikuna:

Friday með Rebekku Black er á efa mesta og besta föstudagslag síðari ára.
Lagið skapar einstaka stemningu í föstudags-ísbíltúrnum, sérstaklega á blæjubíl, en annars með alla glugga opna! Á fyrri vinnustað sem var líka virðuleg ríkisstofnun spilaði deildin mín þetta lag á hverjum föstudegi eftir hádegismat í opnu 30 manna rými.

Ég hendi boltanum til Halldórs Zoega, samt bannað að velja Dire straits eða ZZ top eða álíka

Smástund gefur gull í mund

Hefur þú prufað Smástund? Í Smástund (skalanlegt fyrir öll tæki t.d. snjallsíma) er með þægilegum hætti hægt að stimpla sig inn og út. Þar er einnig hægt að skoða stöðu orlofs og úttekta í mötuneytinu. Skráið ykkur inn með sama notandanafni og lykilorði og í Vinnustund: smastund.orri.is

Sjá leiðbeiningar hér (.pdf)













Stígakönnun í maí


Í maí mun Samgöngustofa í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg framkvæma könnun við valda stíga á höfuðborgarsvæðinu. Undanfarin ár hefur umferð meðal ökumanna á akbrautum verið könnuð en með þessari könnun er ætlunin að fá sem besta mynd af stöðunni utan akbrauta á göngu- og hjólastígum á höfuðborgarsvæðinu. Farartæki sem fara um stíginn eru skráð og hvort að ökumaður sé með hjálm, aldur og kyn skráð, hvort að ökumaður horfir eða heldur á síma, hvort að það sé farþegi auk ökumanns á farartæki og þá hvort að farþeginn sé með hjálm. Ætlunin er að framkvæma könnunina með sama hætti næstu árin til að geta fengið sem besta mynd af þróun hegðunar á göngu- og hjólastígum.

Sigurður Ingi ásamt unglingadeild Slysavarnarfélagsins Landsbjörg

Það eru unglingadeildir Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu sem sjá um að kanna en undanfarin ár hafa Samgöngustofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg tekið höndum saman og lagt áherslu á ungt fólk (15-20 ára) í umferðinni. Ráðstefnur, vinnustofur og málþing hafa verið haldin og sóttu fulltrúar Samgöngustofu og Landsbjargar, ásamt fjórum ungmennum, alþjóðlega ráðstefnu um umferðaröryggi sem haldin var í Svíþjóð árið 2020. Í aðdraganda ráðstefnunnar var vinnustofa fyrir ungmenni undir merkjum YOURS (Youth for Road Safety). Þar var áherslan á að virkja unga fólkið til aðgerða með aukinni þátttöku og stefnumótun með það að leiðarljósi að fræða jafnaldra um umferðaröryggi. Könnunin fer fram á sama tíma og verkefnið Hjólað í vinnuna stendur yfir þannig að það má búast við talsverðri umferð um stígana.



Hjólað í vinnuna hefst 4. maí

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“. Vinnustaðir eru hvattir til að setja upp lið og liðsstjóra og skrá sig til leiks hér og vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta til og frá vinnu t.d. með því að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur. Ýmsan fróðleik má finna hér og mun Samgöngustofa vekja sérstaka athygli á umferðaröryggi hjólreiðamanna.

Allir eru hvattir til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra til þess að taka þátt með þeim. Undanfarin ár höfum við hjá Samgöngustofu verið með nokkur lið og hefur myndast samkeppni þeirra á milli. Skráum sem flest lið til leiks og tökum virkan þátt í þessu flotta framtaki!

Upplýsingar um hvernig skráning fer fram má nálgast hér.

Viðræður hafnar um uppbyggingu á EGNOS-leiðsögutækni fyrir Ísland

Frá fundi með verkefnisstjórn EGNOS-áætlunarinnar: Hlín okkar fyrir miðju. Frá vinstri eru: Sandrine de Backer þróunarstjóri EGNOS, Friðfinnur Skaftason, innviðaráðuneyti, Þorsteinn Jóhannesson, Isavia ANS, Hlín Hólm, Samgöngustofa, Sigurbergur Björnsson, utanríkisráðuneyti, Fatima Jalibert, verkfræðingur hjá EGNOS. Anne-Laure Vogel verkefnastjóri hjá EGNOS og Jean-Marc Pieplu, forstöðumaður EGNOS-verkefnisins.


Ísland gerðist aðili að EGNOS-áætlun Evrópusambandsins frá 1. janúar 2021 að telja. EGNOS-kerfið samevrópskt leiðsögukerfi og eykur notkunarmöguleika GPS gervihnattaleiðsögukerfisins. Markmið með þátttöku Íslands er að þjónusta EGNOS kerfisins verði aðgengileg um allt yfirráðasvæði Íslands en landið liggur nú vestast á jaðri þjónustusvæðis EGNOS.

Kerfið fylgist með GPS merkjum, vinnur úr þeim upplýsingar um m.a. áreiðanleika, nákvæmni og aðgengi, og sendir þær niðurstöður um gervihnetti við miðbaug til notenda. Með EGNOS má t.d. nýta GPS merki til leiðsagnar flugvéla sem koma inn til lendingar á flugvelli. Samkvæmt reglugerð sem innleidd hefur verið á grundvelli EES-samstarfsins er mælt fyrir um að EGNOS-tæknin verði ráðandi leiðsögutækni á flugvöllum í síðasta lagi árið 2030. Ákvörðun um þátttöku í áætluninni var m.a. tekin með það að leiðarljósi að EGNOS-tækni yrði í boði um alla efnahagslögsögu Íslands.

Í dag er EGNOS eingöngu í boði yfir austanverðu landinu en nokkuð vantar upp á að hún uppfylli þjónustukröfur á vestanverðu landinu. Í dag eru tvær vöktunarstöðvar, sk. RIM stöðvar, starfræktar á Íslandi, á Egilsstöðum og í Reykjavík. Í lok mars áttu fulltrúar innviðaráðuneytisins viðræður við verkefnastjórn EGNOS um uppbyggingu þjónustunnar fyrir Ísland. Fyrir liggur að setja þarf upp eina til tvær nýjar RIM stöðvar, að öllum líkindum á Grænlandi, til þess að þjónustan verði viðunandi um allt land.

Fulltrúar innviðaráðuneytisins kynntu verkefnisstjórninni tillögu að tímasettri áætlun um uppbyggingu þjónustunnar fyrir Ísland. Verkefnastjórn EGNOS tók vel í tillöguna og taldi hana falla vel að heildaráætlun um útvíkkun þjónustusvæðis EGNOS. Rætt var um hvernig mætti hrinda áætluninni í framkvæmd og næstu skref í þeirri vegferð. Íslensku fulltrúarnir tóku að sér að safna ýmsum upplýsingum sem nauðsynlegar eru til þess að leggja mat á mögulegar staðsetningar RIM stöðva. Í framhaldi af því mun verkefnastofa EGNOS ráðast í tæknilegar greiningar og hermun í líkani um bestu mögulegu niðurstöðu á staðsetningu stöðvanna. Miðað er við að komin verði góð mynd á það fyrir árslok.

Í tengslum við fundina heimsóttu fulltrúar innviðaráðuneytisins verkefnisstjórnina en einnig þjónustumiðstöð og rekstraraðila kerfisins, ESSP.

Sjá frétt á vef innviðaráðuneytisins