Hjólað í vinnuna hefst 4. maí

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“. Vinnustaðir eru hvattir til að setja upp lið og liðsstjóra og skrá sig til leiks hér og vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta til og frá vinnu t.d. með því að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur. Ýmsan fróðleik má finna hér og mun Samgöngustofa vekja sérstaka athygli á umferðaröryggi hjólreiðamanna.

Allir eru hvattir til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra til þess að taka þátt með þeim. Undanfarin ár höfum við hjá Samgöngustofu verið með nokkur lið og hefur myndast samkeppni þeirra á milli. Skráum sem flest lið til leiks og tökum virkan þátt í þessu flotta framtaki!

Upplýsingar um hvernig skráning fer fram má nálgast hér.