
Fjórða veggspjaldið (fyrir apríl) í 12 hnútum er nú komið út. Þar er fjallað um þá hættu sem getur stafað af ofmati á eigin hæfni. Lögð er áhersla á að fólk leiti álits, deili hugmyndum og skoðunum með öðrum í áhöfninni og komast þannig að sameiginlegri niðurstöðu um bestu leiðina til að leysa málin.
Sjómenn hafa náð ótrúlegum árangri í fækkun slysa á undanförnum árum og áratugum. Það er vegna árvekni þeirra, menntunar og hæfni til að starfa við oft hættulegar og erfiðar aðstæður. Aðstæður þar sem minnstu mannlegu mistök eða yfirsjón geta valdið slysi. Með rafrænu veggspjöldunum 12 hnútar sem Samgöngustofa gefur út er fjallað um fyrirbyggjandi aðgerðir til að mannleg mistök, viðhorf, venjur og fleira verði ekki til þess að auka líkur á slysum.
Sjá nánar á www.samgongustofa.is/12hnutar