
Í dag var nafn nýs ábendingarkerfis kynnt í föstudagskaffinu, nafnið Bendill varð hlustskarpast í nafnasamkeppninni, en svo skemmtilega vill til að það voru fimm einstaklingar sem að komu með þessa sömu tillögu, því voru fleiri sem að fengu vinning í morgun en upphafleg stóð til. Í þeim hóp voru þau Edda Björk, Hallgrímur, Kristín Helga, Sigfús og Rafn. Dregið var um fyrstu verðlaun og fékk Edda Björk vinninginn. Yfir 70 tillögur að nafni bárust í gegnum Bendil og því frábær þátttaka í þessari skemmtilegu keppni.
Jón Gunnar fór svo yfir nokkur atriði; m.a. rekstur stofnunarinnar í upphafi árs, niðurstöðurnar úr HR Monitor viðhorfskönnuninni, skráningu fyrstu rafmagnflugvélarinnar á Íslandi, nýsmíðaverkefni skipa, slysaskýrslu í umferð og ýmislegt fleira. Fyrir þau sem komust ekki í morgun er hægt að nálgast glærurnar hér.