
Lúðurinn, Íslensku auglýsingaverðlaunin, þar sem auglýsingastofur keppast um að hreppa verðlaun fyrir bestu auglýsingarnar í sextán mismunandi flokkum, verða veitt í 36. skiptið við hátíðlega athöfn í Gamla bíó 8. apríl nk. Auglýsing Samgöngustofu „Smellum saman“ er tilnefnd til Lúðursins í flokki almannaheilla (kvikmyndaðar auglýsingar) og „ósýnilegi jólasveinninn“ á strætóskýlum borgarinnar er tilnefndur opnum flokki almannaheilla.
Auglýsingin „Smellum saman“ er í raun lag og myndband í flutningi söngvaranna Króla og Rakelar Bjarkar þar sem þau syngja um ástina og lífið ásamt því að undirstrika að öryggið gefur okkur tækifæri til þess að njóta lífsins. Smellum saman er ný nálgun í að minna fólk á mikilvægi bílbeltanotkunar en í stað þess að vera með hræðsluáróður er jákvæðnin höfð að leiðarljósi. Nánari upplýsingar má finna á www.smellumsaman.is
Ósýnilegi jólasveinninn
Auglýsingin með „ósýnilega jólasveininum“ birtist á strætóskýlum borgarinnar í vetur til að minna vegfarendur á mikilvægi sýnileika í umferðinni. Í myrkri sjást óvarðir vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða og er notkun endurskinsmerkja þess vegna nauðsynleg.
