Föstudaglagið í boði Guðbjörns (Bubba)

Chris Stapleton - Muddy Country Radio

Það er hann Guðbjörn (Bubbi) sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir hann:

Þar sem Markús ákvað að vera svo harður vildi ég koma með mýkt í helgina ykkar. Lagið sem ég ákvað að velja er í raun lagið okkar Rebekku, konunnar minnar. Við vorum alltaf að spila þetta þegar við vorum að kynnast og er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Ég valdi einnig að hafa ‘live’ útgáfu af laginu sem sýnir hvað Chris Stableton er fáránlega góður söngvari en hann er eiginlega betri live en í studio. Njótið og ég mæli með að kynna ykkur Chris Stableton betur ef þið fílið létt kántrý.

Ég skora á Friðrik Hjörleifsson að koma með lag í næstu viku.