Eigandaskiptin eru sjálfkrafa skráð í ökutækjaskrá.
Áður en eigendaskipti eru tilkynnt er mikilvægt að kanna stöðu ökutækisins með tilliti til veðbanda, tjónaferils og fleiri atriða sem útlistað er í grein um kaup og sölu ökutækis.
Hann Sverrir Konráðsson skoraði á Ómar Sveinsson fyrir þessa viku. Ómar velur lagið Nice ´N´Sleazy með The Stranglers. Ómar bendir á pistil Dr. Gunna þar sem hann fjallar stuttega um tónleika með Stranglers sem haldnir voru í Laugardalshöllinni þann 3. maí 1978:
„Enska pönksveitin The Stranglers (eða Kyrjararnir eins og íslenskir fjölmiðlar kynntu sveitina til leiks) spilaði í Laugardalshöll 3. maí 1978. Steinar Berg og félagar stóðu að innflutningi bandsins í samráði við útgáfuna UA, en þar fannst mönnum gott flipp að halda útgáfutónleika fyrir þriðju plötu sveitarinnar, Black & White, á Íslandi og smala erlendum blaðamönnum á þetta flippaða sker. Giggið var rækilega kynnt og meðal annars var nýjasta smáskífulag Stranglers, Five Minutes, spilað í sjónvarpinu. Ég og fleiri sáum þetta og fengum pönk í æð í fyrsta skipti.“
Á síðunni Strange reaction má einnig lesa áhugaverða grein sem ber yfirskriftina „How the Stranglers kickstarted Icelandic punk” sem fjallar einmitt um komu Stranglers til Íslands og þau áhrif sem þeir tónleikar höfðu á íslensku pönksenuna.
Alþingi hefur samþykkt frumvarp innviðaráðherra um breytingar á hafnalögum. Meðal breytinga er að í gjaldskrám hafna, sem eru ekki í opinberri eigu, verður heimilt að taka mið af umhverfissjónarmiðum, orkunýtni eða kolefnisnýtni í siglingum. Nær þessi heimild til Faxaflóahafna, stærstu hafnar Íslands, en ráðuneytið hyggst nú í kjölfarið undirbúa ákvæði sem nær yfir aðrar hafnir landsins.
Með breytingunum er opnað á umhverfismiðaða gjaldtöku sem hefur rutt sér til rúms í Evrópu. Í dag eru einungis skemmtiferðaskip metin samkvæmt þessum alþjóðlegu vísitölum en þegar fram líða stundir gætu flutningaskip bæst við. Með þessu verður til fjárhagslegt hvatakerfi til umhverfisvænni og sjálfbærari skipareksturs. Afslættir eða álögur af þessu tagi skulu samkvæmt breyttum lögum vera gagnsæjar, hlutlægar og án mismunar og samræmast samkeppnislögum.
Hin langþráða Skúta hefur verið tekin í notkun. Skútan er nýtt tölvukerfi fyrir skipaskrá og lögskráningar sjómanna sem hefur verið lengi í smíðum en er loks komin í loftið. Hún gerir kleift að fylgja alþjóðlega viðurkenndu fyrirkomulagi um skipaskoðanir, gefur möguleika á stafrænni útgáfu til framtíðar og auðveldar eftirlit. Vaskur hópur starfsfólks hjá Samgöngustofu hefur unnið hörðum höndum að verkefninu sem nú hefur litið dagsins ljós. Til hamingju!
Í þættinum Landinn sem sýndur verður á sunnudaginn í Sjónvarpinu verður m.a. fjallað um Sigríði Dagbjörtu Jónsdóttur útgerðarkonu og son hennar Hauk Einarsson en saman stunda þau strandveiðar. Samgöngustofu laumaði hugmynd að þáttastjórnendum Landans um mögulega umfjöllun um þau og þá m.a. með vísan í öryggismál og undirbúning fyrir veiðarnar.
Strandveiðarnar hófust 1. maí og Samgöngustofu er mjög í mun að sjómenn nýti sér m.a. gátlista sem finna má hér á heimasíðu okkar.
Þátturinn var tekinn upp á Tálknafirði. Okkar maður á Ísafirði, Trausti Ægir Ólafsson sérfræðingur skipsskírteina, var á staðnum og staðfesti fyrir þáttarstjórnendum gæði og öryggi báts og áhafnar og því var hlutverki Samgöngustofu gerð góð skil – að minnsta kosti í upptökum þáttarins.
Við þökkum Gísla Einarssyni þáttastjórnanda, Trausta Ægi, Hauki og Sigríði fyrir frábærar viðtökur og samstarf sem vonandi verður til að efla enn frekar öryggismenningu og -vitund strandveiðisjómanna.
Í föstudagskaffinu í morgun fræddi Sigurjóna Sigurðardóttir, deildarstjóri leyfisveitinga og ökunáms, okkur um verkefni deildarinnar. Þau er fjölbreytt og varða margskonar leyfisveitingar, nám, þjónustu og eftirlit. Viðskiptavinirnir eru t.d. bílaleigur, leigubílstjórar, rekstarleyfishafar í farþega- og farmflutningum og risastór hópur ökunema. Einnig var gaman að heyra af góðum gangi verkefnis um stafrænt ökunám sem deildin leiðir. Þeir áfangar sem þegar hafa náðst bæta gríðarlega mikið þjónustu við ökunema til B-réttinda (sem er almenna bílprófið), aðstandendur þeirra, ökukennara og ökuskóla.
Það er hann Sverrir Konráðsson sem velur föstudagslagið að þessu sinni og um val sitt skrifar hann:
Ég tók áskoruninni frá Helga Jóhannessyni og vel Take it Easy með Eagles. Upptakan er frá lokatónleikaferð sveitarinnar árið 2004 og nefndist Farewell Tour 1. Hins vegar urðu tónleikaferðirnar fleiri.
Eagles er bandarísk hljómsveit. Hún var stofnuð í Los Angeles árið 1971 af Glenn Frey, Don Henley, Bernie Leadon og Randy Meisner. Ég varð strax aðdáandi þessar sveitar sem söng sig inn í hjörtu landsmanna og alls heimsins með sínum melódísku lögum og skemmtilegum hrynjanda. Þetta flokkaðist undir Country Rock, eða létt rokk. Allir kannast við Hotel California, sem var eitt sinn föstudagslagið hjá okkur, með sínu glæsilega gítarsólói sem er orðið sígilt í rokksögunni.
Sveitin vann Grammy-verðlaunin sex sinnum. Hljómsveitin er í 75. sæti yfir bestu hljómsveitir allra tíma að mati tímaritsins Rolling Stone og á breiðskífu í 37. sæti yfir bestu breiðskífur allra tíma. Þeir eiga jafnframt mest seldu plötu í Bandaríkjunum, Their Greatest Hits 1971-1975.
Eagles hættu í júlí 1980 en tóku aftur saman árið 1994 fyrir breiðskífuna Hell Freezes over. Þeir voru á stífu tónleikaferðalagi síðan þá og komust inn í Rock and Roll Hall of Fame árið 1998. Árið 2007 gáfu þeir út Long Road out of Eden, fyrstu breiðskífu sína í 28 ár. Glenn Frey lést í New York þann 18. janúar 2016 eftir baráttu við veikindi. Eftir andlát Frey ákvað The Eagles að leggja upp laupana árið 2016. Samt sem áður hélt hljómsveitin áfram næsta ár.
Hjólað í vinnuna hófst þann 3. maí síðastliðinn og því búnir fimm heilir dagar í átakinu. Við stöndum okkur ágætlega í keppninni milli stofnana og fyrirtækja en í okkar flokki (vinnustaðir með 130-399 starfsmenn) erum við í 6. sæti hvað varðar heildar vegalengd, 2. sæti þegar hlutfall km er skoðað og 4. sæti þegar kemur að hlutfalli daga. Sjá töflur:
Heildar vegalengd:
Hlutfall kílómetra:
Hlutfall daga:
Staðan í liðakeppninni hjá okkur á Samgöngustofu er þannig að Mótvindur hefur hjólað flesta kílómetra og þau eru einnig með hæst hlutfall daga:
Þegar kemur að hlutfalli kílómetra er eru það svo Rúnar og félagar í liðinu Einmanna sem eru í forystu. Rúnar stofnaði liðið þar sem fullt var í bæði liðin sem fyrir voru og nefndi liðið sitt einmanna þar sem honum fannst hann vera útundan. En svo bættust tveir við og því má segja að um rangnefni sé að ræða:
Það er ljóst að við í Meðvindi þurfum að fara að gefa í ef ekki á illa að fara. Meðvindurinn virðist lítið hjálpa okkur í þessari æsispennandi keppni…
Tökum góða törn síðustu tvo dagana og verum dugleg að skrá! Það væri frábært að ná 3500 skráningum fyrir lok dags á fimmtudag.
Miðlæga skjalið er hjartað og miðjan í þjónustugreiningarverkefninu og það gæti verið góð hugmynd að „pinna“ linkinn inn í „favorites“ í vafranum þínum.
Þriðjudaginn 23. maí næstkomandi munum við á Samgöngustofu halda ráðstefnu um hættu, afleiðingar og viðbrögð við rafmagnseldum um borð í skipum. Undirbúningurinn hefur verið í samvinnu við m.a. Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA), Eimskip, DNV, Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið Vestmanneyja, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Húsnæðis-og mannvirkjastofnun, Landhelgisgæslu Íslands, Smyril Line og fjölda annarra aðila á Íslandi.
Kveikjan að ráðstefnunni eru áskoranir vegna eldhættu sem birst hafa með tilkomu nýrra orkugjafa í ökutækjum. Tilgangurinn er samtal og samvinna um leiðir og lausnir til að tryggja öryggi um borð.
Staðsetning
Ráðstefnan um rafmagnselda í skipum verður haldin á Grand hótel í Reykjavík og samtímis streymt á vefnum.
12.30 Opening remarks; Halldór Zoega, ICETRA 12.40 Norway’s experience with litium-ion fires and what we learned from them –Kurt Tofte Rusas Bergen fire department Norway 13:40 Presentation on Smyril line 2023 response to growing number of electrical vehicles and uncharted fire hazards. 14:10 Changes in rules on battery safety based on recent incidents, -Lars Laanke, Product Responsible Systems & Components DNV- On Teams 15.00 Coffee break 15:20 Battery fires and the science behind them, Per Ola Malmquist former battalion chief from Helsingborg Fire Brigade- On Teams 16:00 Battery fires from an Administration’s point of view, Sifis Papageorgiou Norwegian Maritime Authority 16:45 Incidents in Energy Storage Systems, Kurt Vollmacher Independent Expert New Energies-On Teams 17:20 EMSA Work on the topic and discussions about next steps? Mr Lanfranco Benedetti, Project Officer for Ship Safety in Unit Safety, EMSA Department Safety, Security and Surveillance-On Teams 17:50 The content summarized, what did we learn from the presentations today? Aron Freyr Jóhannesson, Legal Adviser ICETRA 18:00 Closing remarks
Helgi Jóhannesson, deildarstjóri Áhafna, skráningar og leyfa á siglingasviði, kynnti deildina í morgunkaffinu og var mjög fróðlegt að heyra af þeim fjölmörgu verkefnum sem þau sinna.
Það er hann Helgi Jóhannesson sem velur föstudagslagið að þessu sinni og um val sitt segir hann:
Það er gaman að fá þessa áskorun frá Jakobi Andra laganema, einkum vegna þess að þegar ég vann á Siglingastofun Ísland fékk ég laganema á hverju sumri til starfa á mínu sviði. Þeir reyndust afskaplega góðir starfsmenn og starfa nú sem lögfræðingar á ýmsum stöðum í þjóðfélaginu og einn þeirra leikur auk þess nokkuð stórt hlutverk í sjónvarpsseríunni “Afturelding” sem sýnd er á RÚV þessa dagana.
Mörg lög koma upp í hugann hjá mér þegar velja á föstudagslagið; t.d. Bítlarnir, Rolling Stones, Billy Joel, Roger Whittaker, Dubliners og Supertramp.
Ég ætla að velja Bítlalagið “When I´m Sixty four”, einkum vegna þess að samstarfsmaður okkar og stórvinur minn Steingrímur Hauksson, sönglar þetta lag stöðugt þegar maður mætir honum á göngunum og í matsalnum, enda nýorðinn 64 ára.
Lagið var samið árið 1967 af Bítlunum og kom fyrst á plötunni Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band. Paul McCartney og John Lennon eru skrifaðir fyrir laginu, þó er sá fyrrnefndi sagður aðalsmiður þess og syngur það einnig. Þetta er lag sem mikið var gert grín að á sínum tíma. Mörgum þótti lagið hallærislegt því hann samdi það fyrir pabba sinn, en faðir McCartneys varð 64 ára árið sem þeir tóku upp plötuna. Lagið fjallar um ungan mann sem syngur til kærustu sinnar um hvernig þau eldast saman. Lagið er eitt af þeim fyrstu sem McCartney samdi en hann var þá einungis sextán ára gamall.
Ég skora á Sverrir Konráðsson, samstarfsfélaga hér á Samgöngustofu og áður í Siglingastofnun Íslands til 25 ára, gítarleikara, skipstjórnarmann, og löggiltan skjalaþýðanda til að velja næsta föstudagslag.
Mikilvægt er að koma því á framfæri við þá sem eru að lögskrá og afskrá að það þarf að gera með sama hætti og verið hefur í gamla lögskráningarkerfið til kl. 12.00 föstudaginn 12. maí nk., þegar því verður lokað.
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið (uppfært) dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar á ferðalögum innanlands. Breytingin tekur gildi frá og með 1. maí 2023.
Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 49.500 (var 34.500 kr)
Gisting í einn sólarhring kr. 34.300 (var 20.400 kr)
Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 15.200 (var 14.100 kr)
Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 7.600 (var 7.050 kr)
Akstursgjald tekur einnig breytingum frá 1. maí 2023. Fyrstu 10.000 km, verða 141 kr. pr. km
Uppfært skjal “Ferðabeiðni innanlands, frá og með 1. maí 2023” má nálgast undir Samgöngustofa – verklagsreglur hér á innri vefnum (verður fært í CCQ).
Þann 15. maí 2023 verður nýtt tölvukerfi fyrir skipaskrá og lögskráningar sjómanna tekið í notkun hér hjá Samgöngustofu.
Vegna þessa verður lokað fyrir skráningar frá klukkan 12:00 föstudaginn 12. maí til klukkan 01:00 mánudaginn 15. maí.
Athygli útgerða og lögskráningaraðila er vakin á því að hægt er að lögskrá áhöfn þrjá daga fram í tímann. Þannig þarf að ganga þarf frá lögskráningu og/eða afskráningu fyrir lokun lögskráningarkerfisins klukkan 12.00 föstudaginn 12. maí ef skip heldur úr höfn á föstudegi, laugardegi eða sunnudegi á meðan lögskráningarkerfið er lokað.
Nú er hægt að tilkynna um eigendaskipti rafrænt í gegnum Island.is með mun einfaldari hætti en áður hefur verið. Í kjölfarið (áætlað 8. maí) verður lokað á möguleikann til að skrá eigendaskipti á Mínu svæði Samgöngustofu.
Mikil umsýsla hefur verið í kringum rafrænu eigendaskiptin á Mínu svæði í gegnum tíðina þar sem ferlið hefur ekki verið nægilega notendavænt og skýrt. Í samvinnu við Stafrænt Ísland hefur (vonandi) tekist að sníða í burtu alla galla og gera ferlið eins einfalt og hægt er. Því til stuðnings hafa nú þegar tæplega 70 eigendaskipti verið skráð í gegnum Island.is án vandræða.
Að auki er á Island.is hægt að tilkynna um breytingu á meðeiganda og umráðamanni og panta skráningarskírteini.
Við hvetjum alla starfsmenn til að skrá sig inn á Island.is og skoða sig um.
Frá og með 8. maí nk. þarf að greiða bifreiðagjöld án milligöngu Samgöngustofu. Ganga þarf frá greiðslu þeirra áður en hægt er að ljúka skráningu eigendaskipta hjá Samgöngustofu.
Seljendum ökutækja er bent á að greiða kröfur vegna bifreiðagjaldanna í heimabanka. Athugið að tekið getur einn virkan dag frá því greiðsla er gerð þar til upplýsingar um greiðsluna skila sér til Samgöngustofu.
Lárus Long, deildarstjóri upplýsingatæknideildar, mætti í Stafræna spjallið sem Stafrænt Ísland heldur úti en þar er stafræn umbreyting ríksins rædd á mannamáli. Markmiðið er að auka skilning og opna augu okkar allra fyrir þeim tækifærum sem leynast í stafrænni þróun. Hið stafræna snýst nefnilega um fólk og því ekkert mikilvægara en að fólk skilji og treysti stafrænni þjónustu.
Í spjallinu sem Lárus mætti í var rætt um Mínar síður Ísland.is en Mínar síður sem er ein af þeim kjarnaþjónustum sem standa stofnunum til boða hjá Stafrænu Íslandi:
„En hvað þýðir þetta fyrir notendur sem heima sitja, hefur þetta einhver áhrif á okkar daglega líf? Hver er hugsunin með Mínum síðum Ísland.is og hver er tilgangurinn? Við mælendur í spjallinu eru þau Lárus Long deildarstjóri upplýsingatæknideildar Samgöngustofu, Ragnheiður Þorleifsdóttir framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar og Ragnhildur Helga Ragnarsdóttir vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi.“
Á skipaganginum er nú til sýnis líkan af Titanic sem Gunnar Karl og sonur hans settu saman en þeir feðgar eru miklir legoáhugamenn. Um smíðina segir Gunnar:
„Titanic, djásnið úr Legosafninu mínu er komið til sýnis á skipaganginum. Þetta er næst stærsta Legosett allra tíma, 9090 kubbar og algjör meistarasmíði. Endilega kíkið við á 3 hæðinni til að skoða gripinn. Annars er ég og strákurinn minn miklir Legoáhugamenn og erum að safna og gera upp gömul sett. Þannig ef einhver lumar á Lego-i í geymslunni og er til í að selja þá endilega hafið samband við mig :)“
Tíu merkilegar staðreyndir um Titanic
10. John Jacob Astor IV var um borð í skipinu þegar það sökk en hann var þá ríkasti maður heims. Astor fórst í slysinu en eiginkona hans lifði af.
9. Hjúkrunarfræðingurinn Violet Jessop var um borð í Titanic þegar skipið sökk. Hún lifði aftur á móti af. Jessop var aftur á móti einnig um borð í systurskipi Titanic, Britannic fjórum árum síðar þegar það skip sökk. Hún lifði bæði slysin af.
8. Það kostaði meira að framleiða kvikmyndina Titanic en skipið sjálft kostaði. Á núvirði kostaði kvikmyndin 360 milljónir dollara og skipið sjálft kostaði 190 milljónir dollara. Kvikmyndin malaði aftur á móti gull þegar hún kom út.
7. Það tók 73 ár að finna skipið á botninum í Norður-Atlantshafi og fannst skipsflakið árið 1985.
6. 97% af þeim konum sem voru á fyrsta farrými í skipinu var bjargað á meðan 32% af karlmönnunum á fyrsta farrými lifðu slysið af. Aðeins 14/168 konum um borð í skipinu á öðru farrými lifðu slysið af.
5. Margir farþegar tóku með sér gæludýr um borð í skipið og lifðu aðeins tvö þeirra af.
4. Yngsti farþeginn var aðeins tveggja mánaða og lifðu stúlkan af. Eliza Gladys Dean lést sjálf árið 2009, þá 97 ára.
3. Titanic var 270 metra langt, fór í gegnum 825 tonn af kolum á dag og yfir tíu þúsund ljósaperur voru um borð. Tveir verkamenn létust við störf þegar skipið var smíðað. Skipið gat tekið á móti 3500 farþegum en rúmlega 2300 voru um borð þegar það sökk. Þrettán pör um borð voru að byrja brúðkaupsferð sína.
2. Titanic var stærsta skip heims til ársins 1936 þegar Queen Mary fór í sína fyrstu ferð.
1. Það var Frederick Fleet sem sá ísjakann sem skipið sigldi á. Hann tilkynnti strax um hættuna en það var of seint. Hann greindi síðar frá að kíkir sem vaktmenn höfðu oft notað var ekki að finna um borð í skipinu. Hann hefði mögulega getað komið í veg fyrir slysið.