Umgjörð um almennt ökunám orðin stafræn

OkunamRafraent
Nú er umgjörð almenns ökunáms (B-réttinda) orðin stafræn. Allir ferlar sem ökunemar, ökukennarar og ökuskólar nýta vegna námsins eru orðnir stafrænir og pappír heyrir því að mestu sögunni til. Markmiðið með verkefninu er að einfalda ökunámsferlið, bæta þjónustu og fækka snertiflötum milli stofnana.

„Við fögnum þessum góða áfanga því þetta mun án efa bæta þjónusta við nemendur og ökukennara. Nú þarf mun sjaldnar að keyra á milli afgreiðslustaða hins opinbera og pappírsnotkun minnkar við það að kveðja umsóknareyðublöð og ökunámsbókina. Bætt stafræn umgjörð er afrakstur af góðu samstarfi stofnana hins opinbera og við höldum ótrauð áfram að bæta stafræna þjónustu í ökunáminu með næstu skrefum í verkefninu,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.

Hvað er nú hægt að gera stafrænt?

Nú hafa verið innleiddir fjölmargir stafrænir ferlar í gegnum Ísland.is, með tengingum við þær stofnanir sem að ökunáminu koma. Þetta þýðir að nú geta:

  • Ökunemar sótt um að hefja ökunám á netinu, fylgst með framvindu þess og sótt stafrænt ökuskírteini þegar þeir hafa staðist verklegt próf.
  • Ökukennarar staðfest með stafrænum hætti ökutíma, akstursmat og að nemandi sé tilbúinn í æfingaakstur.
  • Ökuskólar staðfest stafrænt að nemandi hafi lokið ökuskóla.
  • Leiðbeinendur í æfingaakstri sótt stafrænt um að gerast leiðbeinendur.

Umsóknir og staðfestingar má finna á island.is/okunam. Ökuneminn hefur aðgang að sinni ökunámsbók á Mínum síðum á island.is.

Næstu skref:

  • Sýslumenn geti nýtt undirskrift og mynd úr vegabréfi fyrir útgáfu ökuskírteinis.
  • Undirbúningur hjá Samgöngustofu fyrir rafræna próftöku í bóklegum ökuprófum.
  • Áframhaldandi samstarf um stafræna ferla fyrir önnur ökuréttindi.

Verkefnið er í umsjón Samgöngustofu sem hefur unnið það í samstarfi við innviðaráðuneytið, sýslumannsembættin, Ríkislögreglustjóra og Stafrænt Ísland.

Sjá frétt á vef stjórnarráðsins



Frétt um banaslys í umferðinni

Þórhildur Elín var í viðtali á RÚV í gær þar sem fjallað var um banaslys í umferðinni. Þar kemur m.a. fram að eitt banaslys hefur orðið í umferðinni það sem af er ári sem er óvenju lágt en nú gengur í hönd sá tími sem banaslysum fjölgar, þ.e. þegar umferð eykst á þjóðvegunum yfir sumartímann.

Í fréttinni kemur meðal annars fram að á árunum 2002-2011 létust að meðaltali hátt í 20 á hverju ári í umferðinni en á árunum 2012-2022 létust að meðaltali 11,5. Ýmsar ástæður liggja að baki þessari þróun og bendir Þórhildur meðal annars á að hegðun ökumanna skipti miklu máli þegar kemur að umferðarslysum, bílar og vegir eru orðnir öruggari en áður og aukin fræðsla og forvarnir skipta líka miklu máli.

Fréttin í sjónvarpinu

Fréttin á vef RÚV

Samgönguáætlun 2024

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra kynnti í gær tillögu að samgönguáætlun til fimmtán ára 2024-2038. Í frétt á vef innviðaráðuneytisins kemur fram að lögð sé áhersla á að auka öryggi í samgöngum, stytta vegalengdir, tengja byggðir og umhverfis- og loftslagsmál. Margar mikilvægar vegaframkvæmdir eru fyrirhugaðar með áherslu á aðskilnað akstursstefna, fækkun einbreiðra brúa og lagningu bundins slitlags á tengivegi. Þá verða framlög stóraukin til viðhalds vega. Framlög til uppbyggingar á innanlandsflugvöllum aukast til muna með nýju varaflugvallargjaldi og stefnt er að því að byggja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli. Samhliða er lögð fram sérstök jarðgangaáætlun til 30 ára með forgangsröðun á fjórtán jarðgangakostum. Mælt verður fyrir samgönguáætlun á Alþingi næsta haust.

Gert er ráð fyrir að á fimmtán ára tímabili samgönguáætlunar verði 909 milljörðum kr. varið samgangna þar af um 263 ma.kr. á fyrsta fimm ára tímabili áætlunarinnar. Til viðbótar bætast við verkefni sem verða fjármögnuð með samvinnuverkefnum, s.s. ný Sundabraut og brú yfir Ölfusá.

Samgöngustofa 10 ára – afmælisboð

Skútan í 200 mílum

Skútan góða vekur athygli fjölmiðla, enda stór áfangi sem unnið hefur verið að hörðum höndum hjá Samgöngustofu. Í 200 mílum Moggans má nú lesa ágæta grein sem lýsir kostum kerfisins og helstu breytingum sem því fylgja. Við erum stolt af þeim framförum sem kerfinu fylgja fyrir skipaskrá og lögskráningar sjómanna.



Könnun á þjónustu stofnana

Árlega fer fram könnun á þjónustu stofnana ríkisins og samkvæmt frétt á vef stjórnarráðsins mælist nú aukin ánægja með þjónustu stofnana en 73% þátttakenda eru ánægðir með þjónustu stofnana ríkisins samkvæmt könnuninni í ár.

Tæplega 5.000 notendur tóku þátt í könnuninni og var spurt um heildaránægju í fjórum þáttum – þjónustu, viðmóti, hraða og áreiðanleika. Heildareinkunn stofnana hækkaði í öllum þáttum eftir að hafa lækkað lítillega í síðustu könnun. Hraði þjónustunnar er sá mælikvarði sem hækkar mest á milli ára.

Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að almenningur kýs helst sjálfsafgreiðslu á vef þegar kemur að þjónustu stofnana. Þó gátu fleiri hugsað sér að mæta á staðinn nú en í síðustu könnun, en þá þarf að hafa til hliðsjónar að sú könnun var framkvæmd á tímum heimsfaraldurs. Yngra fólk (55%) er líklegra til að kjósa stafræna þjónustu en þeir sem eldri eru (39%) og þau sem búsett eru á höfuðborgarsvæðinu (48%) kjósa stafræna þjónustu í ríkara mæli en þau sem búsett eru á landsbyggðinni (40%).

Á vef könnunarinnar er hægt að nálgast helstu niðurstöður og skoða niðurstöður fyrir einstaka stofnanir t.d. fyrir Samgöngustofu.

Tölurnar 2023 fyrir okkur hækka í öllum þáttum nema fyrir viðmót:


Hér má sjá meðaltalið til samanburðar:








Föstudagslagið í boði Rutar

Það er hún Rut Hreinsdóttir fjármálastjóri sem velur föstudagslagið að þessu sinni:

Ég vel gamalt Eurovision lag frá Noregi sem kemur mér alltaf í gott skap. Þar að auki hefur Noregur verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér undanfarin ár eftir að eldri dóttir mín flutti þangað um árið. Ég hef nú loksins endurheimt hana til Íslands og það er algjört ævintýri fyrir mig eins og segir í laginu.

Ég skora á Berglindi til að vera með næsta föstudagslag.





Fræðslu- og árshátíðarferð – upplýsingar

Ganga þarf frá lokagreiðslu vegna fræðslu- og árshátíðarferðarinnar til Kaupmannahafnar fyrir 17. ágúst næstkomandi. Til þess að sækja um styrk í starfsmenntunarsjóði stéttarfélaga þarf staðfesting stofnunar á dagskrá að fylgja. Öll gögnin eru hér neðar í fréttinni og eru merkt hverju félagi fyrir sig.

Til Sameykis félaga: ykkar félag krefst staðfestingar frá þeim sem halda fræðsluna, þau gögn eru einnig meðfylgjandi. Þið þurfið að senda bréfið frá Samgöngustofu + 3 staðfestingar.

Þau ykkar sem eruð ekki í BHM, FFR, Sameyki eða VFÍ, heyrið Ólöfu Friðriksdóttur mannauðsstjóra upp á það hvernig staðfestingu ykkur vantar.

Nánari upplýsingar veitir Ólöf mannauðsstjóri: olof.fridriksdottir@samgongustofa.is

BHM

FFR

Sameyki

VFI

Staðfestingarbréf frá Samgönguráðuneyti Dana

Staðfestingarbréf frá Trafikstyrelsen

Almennt upplýsingaskjal um ferðina sem Thelma tók saman






Ráðstefna um öryggi í samgöngum – myndir

Sverrir Konráðsson og Michael Kingston

Þriðjudaginn 6. júní síðastliðinn hélt innviðaráðuneytið ráðstefnu undir yfirskriftinni Á réttri leið, ráðstefna um öryggi í samgöngum, Veröld – húsi Vigdísar. Markmiðið með ráðstefnunni var að miðla þeirri þekkingu og breytingum sem hafa átt sér stað undanfarna áratugi og hvernig hægt er að læra af reynslunni, bæði hér heima og erlendis. 

Ráðstefnan var haldin til að heiðra Ragnhildi Hjaltadóttur fyrir framlag hennar til öryggis í samgöngum en Ragnhildur lét nýverið af störfum sem ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins eftir 40 ára farsælan feril hjá Stjórnarráðinu.

Á ráðstefnunni flutti Michael Kingston ráðgjafi hjá IMO um öryggi fiskiskipa og málefni norðurslóða erindi um Öryggi á sjó, dæmisagan Ísland. Kom Michael víða við í sínu frábæra erindi og var sérstaklega ánægjulegt að heyra hann fara fögrum  orðum um framlag Sverris Konráðssonar, samstarfsmanni okkar hér á Samgöngustofu, til baráttunnar fyrir öryggi fiskiskipa og málefni norðurslóða. Hann sagði að störf Sverris í þágu IMO hafi alltaf verið framúrskarandi og sagði að það væri öruggt að Sverrir væri Íri í grunninn, eins og flestir Íslendingar að hans mati 🙂

Við lok ráðstefnunnar gaf Michael þremur aðilum mynd á bát sem er í hans eigu. En á bátinn hafði hann málað íslenska fánann til að sýna hversu mikils hann og IMO hafa litið á þeirra störf í þágu IMO. Hann gaf Ragnhildi eina mynd, Sigurði Inga innviðaráðherra eina og svo gaf hann Sverri Konráðssyni þá síðustu.

Er Sverri þakkað hans frábæra framlag til þessarar baráttu en Sverrir lætur af störfum í þessum mánuði, eftir farsælt starf hjá Samgöngustofu og forverum hennar.







Vorboðinn ljúfi – part 2

Um daginn settum við inn litla krúttfrétt um hreiður skógarþrastar hér í Ármúlanum og eggin fjögur. Við höfum ekki komið upp vefmyndavél en hér að neðan er stutt myndband af ungunum sem virðast dafna vel. Um að gera að kíkja á kaffistofuna á 2. hæðinni og kíkja á ungana fögru.

Það fer svo að styttast í það að flugrekstrar- og skírteinadeildin fari að gefa út flugskírteini fyrir litlu krílin svo þau geti flogið út í sumarið…


Myndband:






Sjávarútvegsráðstefnan 2023

Sjávarútvegsráðstefnan 2023 verður haldin í Hörpu dagana 2.-3. nóvember. Ágætt fyrir þau ykkar sem ætlið að mæta að setja þessar dagsetningar í dagatalið.

Ráðstefnan ber í ár yfirskriftina „Samfélagsleg ábyrgð í sjávarútvegi“ og hafa skipuleggjendur nú þegar sett inn upplýsingar um þær málstofur sem verða í boði. Nokkrar málstofur gætu höfðað til fólks hér innanhúss svo sem:

  • Samfélagsleg ábyrgð sjávarútvegs
  • Verndun hafsvæða (30fyrir30) – áhrif á sjávarútveg
  • Orkuskipti og innviðauppbygging
  • Upplýsingagjöf um sjálfbærni: Hvar liggja tækifærin?
  • Siglum í átt að hringrásarhagkerfi

Hér má nálgast nánari lýsingu á málstofunum.

Ráðstefna um öryggi í samgöngum – á morgun þriðjudag

Innviðaráðuneytið heldur ráðstefnu þriðjudaginn 6. júní til þess að heiðra Ragnhildi Hjaltadóttur fyrir framlag hennar í öryggis í samgöngum eins og segir í frétt á stjórnarráðsvefnum. Ragnhildur lét nýverið af störfum sem ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins eftir 40 ára farsælan feril hjá Stjórnarráðinu.

Nánar um ráðstefnuna:

Á réttri leið, ráðstefna um öryggi í samgöngum, verður haldin þriðjudaginn 6. júní nk. frá kl. 13:00-16:30 í Veröld – húsi Vigdísar. Markmiðið með ráðstefnunni er að miðla þeirri þekkingu og breytingum sem hafa átt sér stað undanfarna áratugi og hvernig hægt er að læra af reynslunni, bæði hér heima og erlendis. 

Ráðstefnan er haldin til að heiðra Ragnhildi Hjaltadóttur fyrir framlag hennar til öryggis í samgöngum. Ragnhildur lét nýverið af störfum sem ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins eftir 40 ára farsælan feril hjá Stjórnarráðinu.

Öll eru velkomin á ráðstefnuna en áhugasamir eru beðni um að skrá þátttöku sína. Boðið verður upp á léttar veitingar eftir að ráðstefnunni lýkur. Fundarstjóri er Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.


Dagskrá:

  • 13:00 – Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
    Á réttri leið – öryggi í samgöngum 
  • 13:20 – Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir á LSH
    Samgöngur – öryggi og heilsa
  • 13:40 – Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna 
    Áskoranir, tækifæri og saga Slysavarnaskóla sjómanna.
  • 14:00 – Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri
    Öryggi í samgöngum – samstarf og árangur
  • 14:20 – Hlé
  • 14:40 – Michael Kingston, ráðgjafi hjá IMO um öryggi fiskiskipa og málefni norðurslóða
    Öryggi á sjó, dæmisagan Ísland
  • 15:00 – Björn Guðmundsson, öryggisstjóri Icelandair
    Hvað er ásættanleg áhætta? Þróun öryggismála í alþjóðaflugi
  • 15:20 – Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og fyrirlesari
  • 15:40 – Ragnhildur Hjaltadóttir, fyrrv. ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins
  • 15:50 – Samantekt
  • 16:00 – Ráðstefnu lýkur

Sjá frétt á stjórnarráðsvefnum





Kynning Isavia ANS á fjarturnum

Þröstur Jónsson eftirlitsmaður flugeiðsögu með mækinn

Í morgun stóð Isavia ANS fyrir kynningu og opinni vinnustofu um fjarturna, þar sem virkni þeirra, kostir og gallar voru ræddir frá ýmsum sjónarhornum.

Til máls tóku m.a. fulltrúar tæknimála sem unnið hafa að málinu, fulltrúi Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og fulltrúar flugumferðarstjóra. Fóru þeir yfir málið út frá sínum sjónarhóli og í kjölfar þess fóru fram pallborðsumræður þar sem fulltrúar ofangreindra aðila auk Samgöngustofu og fulltrúum Isavia Ohf og Isavia ANS svöruðu spurningum.

Þröstur Jónsson, eftirlitsmaður flugleiðsögu hjá Samgöngustofu, tók þar þátt í pallborðsumræðum fyrir hönd Samgöngustofu og má sjá hér meðfylgjandi myndir frá fundinum.





NorType – kynningin í morgun

Í morgun hélt Kristinn Grétarsson deildarstjóri mjög áhugaverða kynningu á sinni deild, NorType. Kynninguna má nálgast hér en í henni kom m.a. fram:

  • Nafnið NorType er samsett úr orðunum „Nordic“ og „Type approval“.
  • NorType er samvinnuverkefni 4 landa; Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands.
  • Í deildinni eru 10 starfmenn sem búa að gríðarlega mikilli reynslu en meðalaldurinn er 13,8 ár.
  • NorType sér um skráningu tækniupplýsinga ökutækja úr evrópskum gerðarviðurkenningum í gagnagrunn.
  • Skráðar eru útfærslur ökutækja en ekki ökutæki.
  • NorType sér um þjónustu og samskipti við Noreg , Svíþjóð , Finnland og Ísland vegna þessara gagna.
  • Nokkur umbótaverkefni eru í gangi í deildinni svo sem þróun og rekstur sannreyningarkerfis (validation) fyrir rafræn skráningarvottorð ökutækja, nýtt vinnslukerfi fyrir deildina og sérsniðið kerfi sem umbreytir PDF í Exel.

Fjölmargar spurningar komu úr sal eftir kynninguna og greinilegt að það er gagnlegt fyrir okkur öll að kynnast verkefnum annarra deilda með þessum hætti.





Föstudagslagið í boði Ernu


Það er hún Erna Guðmundsdóttir fagstjóri fjármáladeildar sem velur föstudagslagið að þessu sinni og um val sitt segir hún:

Ég hlusta mikið á tónlist og fyrir mig er tónlist nærandi og gefandi.

Á uppvaxtarárunum var ég var gramsandi í plötusafni foreldra minna og skannaði hverja einustu plötu í leit að skemmtilegu lagi. Urðu þar lög eins og In the Ghetto og Suspicious Mind með Elvis Presley á vegi mínum. Eldri bræður mínir höfðu einnig mikil áhrif á tónlistaráhuga minn og uppgötvaði ég í gegnum þá hljómsveitir eins og Modern Talking, Boney M, Foo fighters, Nirvana, Soul Asylum o.fl.

Í dag hlusta ég á alls konar tónlist en lagið sem ég valdi fyrir ykkur er Viva La Vida með Coldplay. Hljómsveitin hefur verið starfandi frá árinu 1997 með söngvarann Chris Martin í fararbroddi. Meðlimir sveitarinnar eru frá Bretlandi og eru þeir iðnir við að koma fram á tónleikum víða um heim. Myndbandið sem fylgir er upptaka frá tónleikum þeirra í Sao Paulo í Brasilíu árið 2017.

Ástæðan fyrir þessu vali er að lagið er grípandi og kemur öllum í gott skap. Lagið er hvetjandi hvort sem er í ræktinni, göngutúrnum, við heimilisstörfin eða hverju sem er.

Njótið vel og góða helgi 🙂

Ég skora á Rut Hreinsdóttur fjármálstjóra að færa okkur næsta föstudagslag.

Fundur ECAC í vikunni


Samstarf evrópskra flugmálastjórna er mjög gott og haldnir eru reglulegir fundir undir hatti ráðstefnu evrópskra flugmálastjórna (ECAC). Einn slíkur fundur var í byrjun þessarar viku þar sem fulltrúar Samgöngustofu tóku þátt. Efni fundarins var nokkuð hefðbundið og má þar nefna upplýsingagjöf frá starfi aðalráðs Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) sem Valdís Aðalsteinsdóttir sá um en hún gegnir um þessar mundir hlutverki þess fulltrúa sem sér um samræmingu milli Evrópulanda í ráðinu.

Juan Carlos Salazar framkvæmdastjóri ICAO tók einnig þátt í fundinum ásamt fulltrúum EASA og EUROCONTROL. Stríðið í Úkraínu fékk töluverða umræðu og þá hvernig önnur lönd geta stutt við landið bæði nú og í þeirri uppbyggingu sem þarf að eiga sér stað að stríði loknu, sem vonandi verður fyrr en seinna. Málefni sem snúa að réttindum farþega með hreyfihömlun voru einnig rædd ásamt áformum um að styrkja áhersluna á fjölbreytileika og inngildingu, en síðara orðið er nýyrði fyrir orðið „inclusion“ sem einnig er þekkt sem, án aðgreiningar.

Umhverfismálin fengu töluverða athygli en áherslur Evrópu eru skýrar varðandi kolefnishlutleysi í flugi árið 2050. Tryggja þarf skýr markmið á þeirri vegferð og skapa aðstæður til að hvati verði til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í alþjóðafluginu er gert ráð fyrir að mestur árangur náist með framleiðslu og notkun á umhverfisvænu flugvélaeldsneyti (Sustainable Aviation Fuels, SAF). Ríki Evrópu eru þessa dagana að undirbúa sig fyrir stóra ráðstefnu í haust á vegum ICAO sem mun einmitt fjalla um skuldbindingar og regluverk í kringum SAF, svokallaða CAAF/3 ráðstefnu (Conference on Alternative Aviation Fuels) sem verður haldin í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum. Áherslur Evrópu eru m.a. að tilgreint verði lágmarkshlutfall SAF í flugvélaeldsneyti á hverjum tíma á heimsvísu.

Málefnin sem tilgreind eru hér að ofan skipta Ísland miklu máli og því mikilvægt að taka þátt í mótun til framtíðar.







Föstudagslagið í boði Drafnar

Það er hún Dröfn Gunnarsdóttir á stjórnsýslusviði sem velur föstudagslagið að þessu sinni:

Ég vel lagið Proud Mary til að heiðra minningu Tina Turner, The queen of rock‘n‘ Roll sem lést í gær 83 ára að aldri.

Ég er mikil Tina Turner kona og veit fátt betra en að vera í miðaldra partý og blasta Proud Mary og taka dans-kóreógrafíuna sem sést í myndbandinu alla leið, klikkar ekki!

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá drottninguna á live tónleikunum sem fóru fram í Hollandi árið 2009, þar er hún 70 ára að taka Proud Mary sem var þá gefið út fyrir ca. 40 árum, eins og sést þá hefur hún engu gleymt. Í grunninn fjallar lagið um hugsjón sem á vel við í dag „ Að skilja eftir streituvaldandi hluti fyrir rólegra og innihaldsríkara líf“

Á tónlistarferlinu fékk Tina Turner 12 Grammy verðlaun ásamt fjölda annarra verðlauna, hún sló heimsmet árið 1988 og fékk sæti í Heimsmetabók Guinness fyrir að eiga „flesta miða sem solo söngvari hefur selt á tónleikum“. Tónleikarnir voru haldnir í Rio de Janeiro, Braziliu, en þá seldust 188 þúsund miðar.
Í síðasta opinbera viðtalinu sínu talar hún um að hún vilji vera minnst sem : “A woman who showed other women that it is okay to strive for success on their own terms.”

Tinu Turner verður minnst sem goðsögn og frábær fyrirmynd.

Ég skora á Ernu Guðmundsdóttur fagstjóra fjármáladeildar að taka næsta föstudagslag.

Vorboðinn ljúfi?

Á vísindavef Háskóla Íslands er nokkuð efnismikil grein um það hvort vorboðinn ljúfi í kvæði Jónasar Hallgrímssonar, Ég bið að heilsa, sé lóa eða þröstur. Að ýmsu ber greinilega að huga við þessa greiningu og um að gera að lesa greinina og mynda sér skoðun á því hvort Jónas orti um þröst eða lóu 🙂

En þetta átti ekki að vera gáfumannahornið heldur krútthornið á innri vefnum. Það er nefnilega komið hreiður hér í Ármúlanum sem sést vel úr kaffistofunni á 2. hæð. Þar hefur skógarþröstur valið sér að byggja hreiður og og liggur þar á fjórum myndarlegum eggjum. Spurning um að koma upp vefmyndavél og auka þannig traffíkina á Fésbókinni okkar?

Á fuglavefnum er hægt að fræðast um skógarþröstinn sem og alla aðra fugla sem hafa fasta búsetu á Íslandi eða koma hér við á sumrin. Þar er t.d. hægt að spila hljóðdæmi og tilvalið að nýta sér það og fara í leik með fjölskyldunni í sumar þar sem spiluð eru hljóðdæmi og fólk á að geta til um hvaða fugl sé að ræða.

Vel valið, skjól fyrir öllum vindáttum
Eins gott að liggja sem mest á eggjunum í þessu tíðarfari


Ég bið að heilsa

Nú andar suðrið sæla vindum þýðum.
Á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi Ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.

Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði.
Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði.
Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum.

Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer,
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín,

Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu.
Þröstur minn góður, það er stúlkan mín.

Jónas Hallgrímson




Eldur í rafhlöðum um borð í skipum

Eldur í rafhlöðum um borð í skipum: 1st International symposium on fire in electric storage at sea

Þriðjudaginn 23. maí hélt Samgöngustofa ráðstefnu um hættu, afleiðingar og viðbrögð við rafmagnseldum um borð í skipum. Ráðstefnan var  í samvinnu við Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA), Eimskip, DNV, Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið Vestmanneyja, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Húsnæðis-og mannvirkjastofnun, Landhelgisgæslu Íslands, Smyril Line og fjölda annarra aðila á Íslandi.

Upptaka frá ráðstefnunni

Ráðstefnan var mjög fróðleg og tóku þátt í henni 198 manns bæði á Grand hótel og á vefnun. Erindi voru frá Noregi, Færeyjum, Svíþjóð, Danmörku og frá EMSA í Portúgal. Fulltrúi EMSA og fjöldi annarra  lýstu yfir mikill ánægju með ráðstefnuna og vorum við hvött til að halda aðra ráðstefnu á næsta ári með sama hætti.

Ljóst er að um alla Evrópu er þetta áskorun sem margir eru að takast á við og vandamál sem menn eru að reyna finna lausnir við til að bæta öryggi.

Vefur ráðstefnunnar

Myndir

Frábær árangur í Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna lauk í gær og getum við hjá Samgöngustofu verið stolt af okkar þátttöku. Liðið Mótvindur var efst liða hjá okkur og endaði í 13. sæti í kílómetrakeppninni á landsvísu en þau hjóluðu rúma 1500 km. Samgöngustofa var í 7. sæti vinnustaða með 130-399 starfsmenn en liðin hjóluðu samtals rúma 2950 km á tímabilinu.

Úrslit í liðakeppni Samgöngustofu:


Samgöngustofa endaði í 7. sæti í flokki fyrirtækja með 130-399 starfsmenn:

Mótvindur endaði í 13. sæti yfir flesta hjólaða kílómetra með rúma 1500 km hjólaða:

Vel gert!