Föstudagslagið – sumargleði

Við tökum hlé á föstudagslaginu yfir hásumarið en komum tvíefld til leiks á ný í ágúst. Í tilefni þess að margir eru á leið í sumarfrí er samt rétt að kveðja með lagi sem kemur öllum í sumarfrísfílinginn hvort sem leiðin liggur út á land í útilegu eða á suðræna sólarströnd. Læt ítölsku frumgerðina fylgja líka 🙂

Um lagið sagði Þorgeir í viðtali árið 2020 á RÚV:

„Eitt vinsælasta lag Sumargleðinnar er Ég fer í fríið sem Þorgeir syngur. Hann ætlaði sér ekki að syngja lagið og fékk vægt áfall þegar hann sá að Ragnar Bjarnason hafði tilkynnt þjóðinni í blaðaviðtali að Þorgeir Ástvaldsson kæmi með frumraun sína í dægurlagasöng á nýrri plötu Sumargleðinnar. Sagan á bak við lagið er þannig að Þorgeir sat í Hljóðrita ásamt þeim Ragnari Bjarnasyni og Gunnari Þórðarsyni þegar þeir uppgötva að það vantar sjómannalag á þessa fyrstu plötu Sumargleðinnar. Þorgeir átti gott safn af ítalskri tónlist heima hjá sér og bauðst til að finna gott lag sem væri hægt að íslenska. „Ég sem sagt hleyp heim og gríp þar tvær plötur, önnur var með Toto Cutogno og heitir Innamorati, einfaldur söngur um ást, unað og allt þetta ítalska,” segir Þorgeir. Hann hugsaði um hvað lagið ætti að vera og vildi fá texta sem fjallaði um sjómann á leið í frí í landi.

Hann velti fyrir sér hver gæti snarað fram íslenskum texta og datt þá í hug að tala við Iðunni Steinsdóttur. „Ég fer til hennar að kvöldi til, ég er sjálfur á leiðinni til Ítalíu. Ég átti Ítalíutúrinn áður en ég kláraði plötuna. Ég hringi bjöllunni hjá Iðunni að kveldi, tíu eða hálf ellefu. Ég segi: „Komdu blessuð og sæl, löng saga stutt. Getur þú búið til texta fyrir þetta ítalska lag hérna?” Hann útskýrði í stuttu máli um hvað lagið átti að vera og spyr hvort hún geti klárað textann. Iðunn samþykkti að semja íslenskan texta við lagið en brá vissulega að hann þyrfti að helst að vera klár sama kvöld. „Ég veit ekkert hvernig hún fór að því en hún skilaði mér textanum á hádegi daginn eftir,” segir Þorgeir.

Þorgeir hélt svo til Ítalíu þar sem hann starfaði sem fararstjóri og í flugvélinni á leiðinni heim var hann að glugga í Morgunblaðið. „Þar var viðtal við Ragnar Bjarnason. Segir frá nýrri plötu sem er að koma út með Sumargleðinni. „Þetta er æðisleg plata. Þarna er Þorgeir með frumraun sína sem dægurlagasöngvari.” Flugvélin, hún féll um mörg þúsund fet,” segir Þorgeir. Lagið sló svo í gegn og Þorgeir gat hvergi komið fram án þess að syngja lagið. Hann sagði einmitt við Ragnar Bjarnason að hann yrði fegnastur því þegar hann myndi hætta í Sumargleðinni að þurfa ekki að syngja Ég fer í fríið hundrað sinnum á hverju kvöldi. „Þá sló hann á öxlina á mér. „Heyrðu Þorgeir, ég söng Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig árið 1960, ég söng það síðast í gær,” segir Þorgeir.” “

Hafið það gott í fríinu. Gleðilegt sumar!




Ítalska frumgerðin Innamorati með Toto Cutugno:





Einbreiðum brúm fækkar og umferðaröryggi eykst

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, vígðu í lok júní tvær nýjar tvíbreiðar brýr, annars vegar yfir Núpsvötn og hins vegar Hverfisfljót. Þetta kemur fram í frétt á vef innviðaráðuneytisins. Með tilkomu þeirra fækkar einbreiðum brúm enn frekar á Hringveginum. Þær eru nú 29 talsins og stefnt er að því að engin einbreið brú verði á Hringveginum í lok næstu samgönguáætlunar sem gildir til 2038. 


Brúin yfir Núpsvötn

Nýja tvíbreiða brúin yfir Núpsvötn er 138 metra löng og kemur í stað brúarinnar sem reist var árið 1973 og er 420 metra löng. Í verkinu var einnig innifalin gerð vegtenginga og endurbygging núverandi vegar á um 2 kílómetra kafla auk áningarstaðar. Brúin, ásamt vegtengingum, var hönnuð af verkfræðistofunni VSÓ Ráðgjöf. Brúin er eftirspennt steinsteypt brú með steyptu gólfi í fimm höfum. Nýr vegur og ný brú eru í nýju vegstæði á 1,1 kílómetra löngum kafla. Einnig var byggður nýr áningarstaður vestan nýju brúarinnar

Nýja og gamla brúin yfir Núpsvötn

Brúin yfir Núpsvötn var opnuð fyrir umferð í byrjun júní 2023.


Brúin yfir Hverfisfljót

Nýja tvíbreiða brúin yfir Hverfisfljót er 74 metra löng og er staðsett um 20 metrum neðan við gömlu brúna sem reist var árið 1968 og var 60 metra löng. Einnig var innifalið í verkinu vegtenging og endurbygging á um 2 kílómetra kafla auk gerð áningarstaðar. Brúin og vegir voru hönnuð á hönnunardeild Vegagerðarinnar. Brúin er samverkandi stálbitabrú með steyptu gólfi í þremur höfum. Nýr vegur og brúin eru í nýju vegstæði á 1,1 kílómetra kafla og endurbyggður vegur í fyrra vegsvæði einn kílómetri. Byggður var nýr áningarstaður í stað fyrri áningarstaðar sem lenti undir vegtengingu brúarinnar.

Brúin yfir Hverfisfljót var opnuð fyrir umferð í nóvember 2022.

Sjá frétt á vef stjórnarráðsins
Sjá frétt á vef Vegagerðarinnar






Opnuviðtal við Jón Gunnar

Í morgun birti ViðskiptaMogginn mjög gott opnuviðtal við Jón Gunnar. Tilefnið er 10 ára afmæli Samgöngustofu. Í viðtalinu er fjallað um starfsemina vítt og breitt, sérstaklega hvað varðar okkar mikilvæga markmið um öryggi í samgöngum. Hægt er að lesa blaðið hér í vinnunni á mbl.is með því að skrá sig inn á aðgangi Samgöngustofu.

Spörum orku í sumarfríinu!


Nú eru mörg okkar á leið í sumarfrí en þá er mikilvægt að huga að því hvernig við skiljum við skrifstofurnar okkar áður en haldið er í frí. Þar sem við erum með 4. græna skrefið vottað höfum við skuldbundið okkur til þess að lágmarka orkunotkun en það á líka við þegar við erum ekki í húsi. Því vil ég biðla til ykkar að ganga þannig frá skrifstofum ykkar að orkunotkun sé í algjöri lágmarki áður en haldið er í frí. Það er t.d. hægt að huga að þessu samhliða því þegar gengið er snyrtilega frá skrifborðum og fyllt er í skrifborðsskjal mannauðsdeildarinnar.

Hér að neðan má sjá orkusparandi tékklista sem gott er að hafa til hliðsjónar. Listinn er auðvitað ekki tæmandi og því eru allar aðrar orkusparandi ráðstafanir kærkomnar. Gangi ykkur vel að spara orku og hafið það sem allra best í sumarfríinu!


Umhverfishópur Samgöngustofu





Heimsfrægð í nánd

Stafræna ökunámið er mikið framfaraskref eins og foreldrar á þriðju vaktinni sem átt hafa ökunema í pappírsnámi geta vottað. Nú er úr sögunni endalaust skutl til sýslumanns, að ógleymdri streitunni við að passa upp á ökunámsbókina. Hugmyndin um stafræna ferlið fæddist hjá Samgöngustofu og deild leyfisveitinga og ökunáms leiddi verkefnið og samstarf við aðrar stofnanir sem að því koma.

Verkefnið er um það bil að vekja athygli víðar en á Íslandi, því þessa dagana vinnur AWS Institute að gerð kynningarmyndar (e. Case Study) um stafrænt ökunám á Íslandi. AWS Institute er batterí á vegum Amazon sem framleiðir fræðsluefni fyrir vefinn, til að styðja við stafræna umbreytingu hjá hinu opinbera um víða veröld.

Í síðustu viku voru tekin viðtöl við fulltrúa Samgöngustofu, þau Sigurjónu Sigurðardóttur og Lárus Long. Bæði stóðu þau sig einkar vel og voru okkur öllum til mikils sóma. Við hlökkum að sjálfsögðu mikið til að sjá afraksturinn!

Árlegt golfmót Samgöngustofu


Árlegt golfmót Samgöngustofu verður haldið föstudaginn 25. ágúst nk. í Grafarholtinu – Reykjavík. Mótsfyrirkomulag verður eins og síðast eða 4 manna texas scramble og svo verður einhver hliðarleikur líka sem verður kynntur á keppnisdegi. Þetta fyrirkomulag er skemmtilegt að því leiti að þeir sem eru óvanir geta samt verið með – það eina sem þarf er að kunna nokkurn veginn að halda á kylfunni og góða skapið.

Á síðasta ári voru það starfsmenn flugleiðsögu/flugvalla sem fóru með sigur af hólmi en keppnin var þó hnífjöfn í 3 efstu sætunum. Fjármáladeildin tók það að sér að vera í neðsta sæti – enda voru vegleg kennsluverðlaun fyrir það sæti, sem deildin nýtur nú góðs af fyrir næsta mót og eru æfingar þegar hafnar.

Við biðjum ykkur vinsamlegast um að skrá ykkur hér svo við getum gert ráðstafanir í tíma með fjölda þátttakenda.



Áfanga náð – „Soft launch“ á nýjum vef á Ísland.is


Nýr vefur Samgöngustofu á Ísland.is (sjá vefslóð hér neðst í fréttinni) hefur verið opnaður óformlega („soft launch“) sem þýðir að gamli vefurinn verður samhliða einnig opinn þar til sá nýi telst tilbúinn til að taka við. Stefnt er að því að þau tímamót náist í lok september. Tíminn þangað til verður notaður til að ljúka yfirfærslu á efni og bregðast við gagnlegum ábendingum. Við fögnum þeim áfanga sem nú er náð á þeim tíma sem að var stefnt! Sá árangur er afrakstur frábærrar samvinnu við starfsfólk sviðanna, við fyrirtækið Stefnu og Stafrænt Ísland. Við hvetjum ykkur öll til að skoða það efni sem komið er á nýja vefinn og láta vita hvað ykkur finnst á netfangið vefur@samgongustofa.is.

Hvað felst í„soft launch?

Vefurinn fer í birtingu eins og hann er staddur á þessum tímapunkti, með því efni sem er tilbúið og búið er að færa yfir. Vefurinn og efnið á honum mun finnast í leitarvélum en hann er enn ekki aðgengilegur af forsíðu Ísland.is. Við bíðum með ytri kynningu í bili eða þar til nýi vefurinn telst tilbúinn.

Farið er í svokallað „soft launch“ t.d. til þess að gefa fleirum innanhúss tækifæri til þess að rýna það efni sem komið er inn og fá viðbrögð við því efni sem þegar er komið inn. Við óskum því eftir athugasemdum og ábendingum á netfangið vefur@samgongustofa.is. Núverandi vefir, www.samgongustofa.is og www.icetra.is verða áfram opnir fram á haust þegar áætlað að allt efni verði komið yfir. Á tímabilinu munum við þó í einhverjum tilfellum vísa notendum einstakra síðna yfir á vefinn á Ísland.is svo ekki þurfi að viðhalda efninu á tveimur stöðum.

Gott að hafa í huga:
  • Líta má á vefinn á sem nú fer í birtingu á Ísland.is sem einskonar vinnusvæði þar til hann telst tilbúinn til að taka alveg við af gamla vefnum
  • Útlit og skipulag forsíðu, skipulag veftrés/leiðarkerfis og fleiri atriði munu mjög líklega taka breytingum fram að formlegri opnun í haust
  • Sumt efni á ennþá eftir að flytja yfir á nýja vefinn
  • Í mörgum tilfellum á eftir að yfirlesa enskar þýðingar
Dæmi um efni sem eftir á að flytja yfir á nýja vefinn:
  • Eyðublaðavefurinn og eyðublöðin sjálf
  • Lög og reglur
  • Úrskurðir í neytendamálum í flugi
  • Skoðanahandbók ökutækja
  • Uppflettingar í ökutækjaskrá, loftfaraskrá og skipaskrá – opnar mjög fljótlega á nýja vefnum
  • Töluvert margar síður í flugi, siglingum og nokkrar í umferð. Þessar síður munu koma inn smám saman næstu daga og vikur
  • Efni öryggis- og fræðsludeildar

Vefurinn er nú opinn á vefslóðinni: https://island.is/s/samgongustofa

Ýmis frágangur sem sem sagt eftir en við munum halda ótrauð áfram þar til markmiðinu um nýjan og ennþá betri vef verður náð í haust.

Takk fyrir jákvæðnina, atorkuna og aðstoðina!





Föstudagslagið í boði Berglindar Ýrar

Það er hún Berglind Ýr sem tók áskorun nöfnu sinnar og velur föstudagslagið að þessu sinni:

Það kom ekkert annað til greina en að velja eitt lauflétt kántrý lag þennan föstudaginn. Það eru nokkur atriði sem einkenna gott kántrý lag, meðal annars eru það einfaldir hljómar og góð melódía svo ég tali nú ekki um textann. Góður kántrý texti fjallar yfirleitt um ást, ástarsorg, bíla eða áfenga drykki og stundum nær textinn að fanga þetta allt í einu lagi.

Lagið sem ég valdi, It´s Five O´clock Somewhere með Alan Jackson og Jimmy Buffett, fjallar mestmegnis um áfenga drykki en inniheldur vissulega góða lexíu og góða kántrý melódíu sem gott er að skella í græjurnar eftir vinnu á föstudegi. Þeir Jackson og Buffett kenna okkur að nýta tímabelti heimsins til þess að réttlæta dagdrykkju, því jú klukkan er vissulega orðin fimm einhverstaðar í heiminum.

Ég skora á Davíð Ásgeirsson í Flugrekstrar- og skírteinadeild fyrir næsta föstudagslag.

Kántrý kveðjur!





Bylgjulestin og Samgöngustofa

Annað árið í röð á Samgöngustofa í samstarfi við Bylgjuna um Bylgjulestina. Allar helgar í sumar frá byrjun júní og fram yfir verslunarmannahelgi verða tileinkaðar umferðaröryggismálum, einn fókuspunktur hverja helgi. Kynningar á Bylgjulestinni verða á Bylgjunni í aðdraganda hverrar helgar og munu þær auglýsingar taka á fókuspunkti næstkomandi helgar hverju sinni. Um helgina sjálfa munu svo dagskrárgerðarmenn fjalla sérstaklega um punkt helgarinnar. Eina undantekningin frá þessu var sú að sjómanndagshelgina var fjalla um öryggismál sjófarenda en aðrar helgar er fjallað um umferðaröryggismál. Umræðuefnin eru sem hér segir:

Helgi 1. Grindavík – Öryggi sjómanna 2.-4. júní.
Helgi 2. Hveragerði – Svefn og Þreyta 9.-11. júní.
Helgi 3. Akureyri – Aðstoðarbílstjórinn og öryggi barna í bíl 16.-18. júní.
Helgi 4. Stykkishólmur – Eftirvagnar 23.-25. júní
Helgi 5. Akranes – Hraði og framúrakstur 30.júní–2.júlí.
Helgi 6. Selfoss – Hestar og önnur umferð 5.–9. júlí.
Helgi 7. Hafnarfjörður – Farsímar og snjalltækja notkun við akstur 12.-16. júlí.
Helgi 8. Reykjavík – Rafskútur 19.-23. júlí.
Helgi 9. Húsavík – Bílbeltanotkun 26.-30. júlí.
Helgi 10. – Áfengi – Vímuefni – Fíkniefni 2.-6. ágúst.

Hér að neðan má svo heyra dæmi um auglýsingarnar sem um ræðir:

Öryggisbelti aftur í:

Aðstoðarbílstjóri:



Fyrsta færniprófið fyrir útgáfu LAPL skírteinis

Fyrsta færniprófið fyrir útgáfu LAPL skírteinis frá Samgöngustofu fór fram nýlega, Gunnar okkar var prófdómari í færniprófinu. Skírteinið sjálft hefur ekki verið gefið út.

LAPL skírteini er flugmannsskírteini fyrir létt loftför. Réttindi handhafa flugmannsskírteinis fyrir létt loftför heimila honum að starfa án þóknunar sem flugstjóri í flugi sem ekki er í ábataskyni á viðeigandi gerð loftfars.






Lögfræðingar í forgangsakstri

Í síðustu viku kynntu þær Erla Vinsý og Sædís Birta sér kennslu í forgangsakstri hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar. Fengu þær bóklega kennslu, sátu með í verklegri kennslu í forgangsakstri og prófuðu sjálfar akstur við öruggar aðstæður. Kynningin var mjög lærdómsrík og nýtist vel við vinnu að gerð nýrrar reglugerðar um forgangaskstur.





Ferðavenjukönnun 2022

Ferðum landsmanna í umferðinni fækkar samkvæmt nýrri ferðavenjukönnun. Þetta kemur fram í frétt á vef innviðaráðuneytisins. Ný ferðavenjukönnun var gerð í október og nóvember 2022 en var kynnt vorið 2023. Í könnuninni eru ferðavenjur fólks mældar fyrir alla samgöngumáta og niðurstöður teknar saman fyrir landið allt, einstaka landshluta, sveitarfélög og hverfi þar sem það á við. 

Daglegum ferðum landsmanna í umferðinni fækkar talsvert um land allt samkvæmt könnuninni sem framkvæmd í lok árs 2022. Daglegar ferðir á mann voru 3,2 að meðaltali á landsvísu eru voru 3,7 árið 2019 þegar síðasta könnun var gerð. Ferðum fækkar í öllum landshlutum og hjá flestum aldurshópum, nema börnum yngri en 17 ára. 

Í könnuninni eru ferðavenjur fólks mældar fyrir alla samgöngumáta og niðurstöður teknar saman fyrir landið allt, einstaka landshluta, sveitarfélög og hverfi þar sem það á við. Ferðavenjukönnunin nær til alls landsins en það var fyrst gert í síðustu könnun árið 2019. Sambærilegar kannanir höfðu fjórum sinnum áður verið gerðar en eingöngu fyrir höfuðborgarsvæðið. 

„Ferðavenjukönnunin er ein umfangsmesta úttekt á ferða- og samgönguvenjum landsmanna sem gerð er með reglubundnum hætti. Nú hafa kannanir verið gerðar í tvígang fyrir allt landið og fróðlegt að bera saman niðurstöður kannana. Frá því að síðasta könnun var gerð gekk heimsfaraldur yfir og gefur könnunin því fyrstu vísbendingar um áhrif faraldursins til lengri tíma,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.

Ferðum með einkabíl fækkar

Samanlögð hlutdeild þeirra sem nota aðra ferðamáta en einkabíl á höfuðborgarsvæðinu eykst um 3 prósentustig (25% í 28%). Þetta er í raun í fyrsta sinn sem þessi samanlagða hlutdeild eykst frá því 2002. Þeir sem voru bílstjórar voru 58% (60% árið 2019) og farþegar í bíl 14% (15%). Hlutfall gangandi eykst og er 15% (14%) en hlutfall þeirra sem nota almenningssamgöngur, 5%, og hjólandi, 4%, er óbreytt milli kannana. Hlutfall þeirra sem fara ferðir með öðrum hætti er nú 4% og þar ræður tilkoma smáfarartækja miklu.

Ferðum með einkabíl fækkar sömuleiðis á landsbyggðinni um 3 prósentustig, og færast þær ferðir yfir í göngu, hjól og almenningssamgöngur. 

Gott aðgengi að farartækjum

Nær allir landsmenn, eða 96%, hafa bíl til umráða. Þar af hafa 15% aðgengi að tvinnbíl og 12% að 100% rafmagnsbíl. Nokkur munur er á aðgengi að rafmagnsbílum á suður, vestur og suðvestur horni landsins og öðrum landshlutum.

Heimili landsins eiga jafn marga bíla (1,7 að jafnaði) og hjól (1,7 að jafnaði). Samanlagður fjöldi farartækja á heimilum (bílar, hjól og rafhlaupahjól) er að jafnaði um 3,5 á hverju heimili. Fjöldinn er nokkuð svipaður milli landshluta. 

Breytingar á nýtingu innanlandsflugs

Breyting hefur orðið í samsetningu þeirra sem nýta sér innanlandsflug. Konur fljúga aðeins meira en áður, en karlar jafn mikið. Börn og unglingar fljúga talsvert meira en ferðum 18 til 34 ára hefur fækkað. Þessar breytingar má líklega setja í samhengi við þjónustu Loftbrúar. 

Mikil breyting hefur orðið eftir tekjubilum, en þeir sem hafa lægri tekjur fljúga núna meira en áður á meðan þeir tekjuhærri hafa fækkað sínum flugferðum. 

Vísbendingar eru því í þá átt að minni munur er nú milli þjóðfélagshópa varðandi það hvort þeir nýti sér innanlandsflug en áður. Líklega er tilkoma Loftbrúar stærsti áhrifaþáttur í þá veru. 

Nánar um könnunina

Gallup framkvæmdi ferðavenjukönnunina í október og nóvember 2022 og byggði á úrtaki rétt rúmlega 32.000 einstaklinga. Svarhlutfall var 36,2% sem þykir viðunandi fyrir jafn umfangsmikla könnun og raun ber vitni.

Þau sem stóðu að könnuninni að þessu eru: Innviðaráðuneytið, Samtök um sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), Vegagerðin, Strætó, Skipulagsstofnun og HMS. Hægt er skoða allar niðurstöður könnunarinnar á vef ráðuneytisins. 





Planið – ábendingar

Við biðjum ykkur að senda okkur tölvupóst á samskipti@samgongustofa.is ef þið eruð með hugmyndir eða tillögur um atriði sem má bæta inn á Planið.

Hvað er Planið?

Planið varðar okkur öll, verkefni allra sviða og allra deilda. Til að það blómstri sem mest þarf samstarf við alla stofnunina. Gott væri ef starfsfólk gæti skoðað með opnum huga hvaða verkefni gætu mögulega átt erindi við aðra. Stundum bara okkur hin sem hér störfum, en stundum einnig við fólk utanhúss, hagaðila eða almenning. Við notum ýmis verkfæri og veljum þau eftir tilefnum. Til dæmis innri vef, ytri vef, Facebook, föstudagskaffi og fréttir til fjölmiðla – svo nokkuð sé nefnt.

Við biðjum ykkur um að senda okkur póst á samskipti@samgongustofa.is varðandi allar hugmyndir og tillögur sem deildin eða sviðið ykkar gæti haft um verkefni sem gætu passað á Planið. Þetta geta verið mál sem varða til dæmis nýjungar, breytingar, þjónustu, innra starf, árleg verkefni, úttektir, samfélagsmál, samvinnumál, mannauðsmál, fræðslumál, mannlega þáttinn og fleira.




Frábærir ökukennarar

Notkun á stafrænu ökunámsferli hefur farið vel af stað. Markmiðið með verkefninu er að einfalda ferlið og bæta þjónustu svo um munar. Ökukennarar eru mikilvægur hluti notenda. Þeir koma til móts við þarfir nemenda sinna og hafa boðið stafræna ökunámsferlið velkomið. Þannig hafa nú 95% ökukennara hafið skráningar og geta því staðfest með stafrænum hætti ökutíma, akstursmat og að nemandi sé tilbúinn í æfingaakstur.

Föstudagslagið í boði Berglindar


Það er hún Berglind Magnúsdóttir sem velur föstudaglagið að þessu sinni:

Ég vel Take on me með A-ha þar sem 80‘s tímabilið er mitt allra uppáhalds, þetta lag er algjör nostalgía og kemur mér alltaf í gott skap.

Skora á nöfnu mína í fyrirtækinu hana Berglindi Ýr með næsta val á föstudagslagi




Föstudagskynningar komnar í frí

Nú eru formlegar kynningar í föstudagskaffinu komnar í sumarfrí. Bakkelsið í mötuneytinu á föstudagsmorgnum í sumar verður því með einfaldara sniði fram í september þegar við tökum aftur upp þráðinn eins og venjulega.




Vorboðinn ljúfi floginn

Við höfum undanfarnar vikur fylgst spennt með litlum þrastarhjónum koma ungum á legg á snilldarlegum stað hér í Ármúlanum. Hreiðrið er í góðu skjóli fyrir veðri og vindum auk þess sem mávar og kettir áttu ekki séns í að klófesta ungana þarna. Uppeldið gekk einstaklega vel því á föstudaginn voru þeir allir farnir að brölta. Þeir hafa svo notað tækifærið um helgina til að æfa vængina og láta sig hverfa út í sumarið. Vettvangsferð um skotið á jörðu niðri sannaði að enginn ungi hefur brotlent þar. Vonandi fljúga þeir allir nú sprækir um loftin blá og njóta blíðunnar!

Hreiður til sölu, kostar eina tölu…



Stórri úttekt ICAO að ljúka

Undanfarna daga hefur farið fram viðamikil úttekt ICAO á flugvernd og flugvirkt hjá íslenskum stjórnvöldum – eins og Jón Gunnar sagði frá í pósti nýlega. Okkar fólk vann hörðum höndum að undirbúningi og hefur staðið vaktina með glæsibrag þessar tvær vikur sem sendinefndin fór ofan í saumana á öllum gögnum og framkvæmd hjá Samgöngustofu og fleirum. Allt hefur gengið vel fyrir sig og voru niðurstöður eftirlitsfólksins yfirfarnar á lokafundi í dag.



Flugröst fær upplyftingu

Að undanförnu hafa staðið yfir framkvæmdir í Flugröst en unnið hefur verið að því að gera umhverfið í kring snyrtilegra ásamt því sem skipulag innanhúss hefur verið breytt. Hér að neðan eru nokkrar myndir fyrir og eftir breytingar. Athugið þó að fyrri myndirnar eru teknar að sumarlagi en hinar að vetri til.

Næst á dagskrá er að þrífa verönd, bera í hana olíu og mála útihurðar.

Fyrir


Eftir

Kynningin í morgun

Í morgunkaffinu fór Halldór Zoëga, deildarstjóri yfir helstu verkefni siglinga- og hafnaeftirlits. Eru þau mörg og misjöfn, enda liggur viðamikið regluverk að baki þeim skyldum sem við höfum á þessu sviði. Meðal verkefna deildarinnar er eftirlit með skipum og skoðunarstofum, öryggismálum hafna, siglingavernd og innflutningi skipsbúnaðar, hafnarríkiseftirlit og útgáfa skipsskírteina. Í stuttu máli má segja að tilgangur verkefnanna er að tryggja öryggi fólks, skipa og umhverfis.

Kynning á siglinga- og hafnaeftirliti Samgöngustofu.