Ríkisboltinn

Fyrir ykkur sem hafið áhuga á fótboltasprikli þá er hér auglýsing sem við vorum beðin um að koma á framfæri:

Nú er að hefjast nýtt tímabil í Ríkisboltanum – vikulega fótboltanum fyrir starfsmenn helstu ríkisstofnana.

Við spilum í Sporthúsinu og tveir tímar bjóðast:

  • Miðvikudagar kl. 16
  • Fimmtudagar kl. 18

Þetta er geggjað gaman – allir eru velkomnir (vinir og vandamenn utan ríkisins líka) og svo er ókeypis að prófa!

Endilega sendið póst á stefan.a.stefansson@hagstofa.is ef þið hafið áhuga.

Hlökkum til að heyra frá ykkur og koma svo!




Neil Armstrong skoðaður


Á þriðjudaginn fóru þeir Ólafur Ragnarsson og Vivek Sharma í Port State skoðun um borð í rannsóknarskipið Neil Armstrong sem lá við bryggju í Grandagarði. Skipið var vígt af sjálfum geimfaranum Neil Armstrong og við það tilefni gaf hann skipinu orðu og einkennismerki sem hann bar þegar hann gekk á tunglinu.


Voru þessir hlutir til sýnis í skáp í brú skipsins og að sögn skipstjóra voru þessir hlutir ekta. Fengu þeir Ólafur og Vivek góðfúslegt leyfi til að taka myndir af þessum dýrgripum frá skipstjóranum.


Föstudagslagið í boði Garðars

Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Garðars Árnasonar í flugrekstrardeild og um val sitt segir hann:

Af því að ég er eftirlitsmaður í flugrekstrardeild þá varð ég að finna lag tengt flugi.  „Fly on the wings of love“ er skemmtilegt, en ekki nógu mikið stuð.  „Fly me to the moon“ er ágætt líka.

Hér er ekki gleymd perla en í raun falin perla. Nánast óþekkt nema innan afar þröngs hóps. En ég set mig í sæti kyndilbera til að þessi perla sem gæti orðið sígild fái að óma sem mest, sérstaklega ef þið hlustið á lagið á Spotify, því jú ótrúlega en satt þá hvílir lagið þar í skugga og myrkri og gæti fært lagahöfundi aukin stefgjöld, skilst að hann hafi þénað 125 kr. á síðasta ári.

Lagið er „Fluffudiskó“ sem flutt er af gleðisveitinni Faxarnir sem samanstóð af flugmönnum Flugfélags Íslands, áður en félagið bar nafnið Air Iceland Connect.

Sveitin hefur því miður, mörgum til ama lagt upp laupana því sumir úr sveitinni hafa farið til annarra flugrekenda og einn meðlimanna er látinn.

Myndbandið lýsir vel gleðinni sem fylgir því að starfa í flugi og bregður fyrir flugmönnum sem og flugfreyjum félagsins. 

Til aðstoðar fékk sveitin hina margrómuðu Diskó Dívu, Helgu Möller.

Ég skora á samstarfsmann minn Martein Guðjónsson fyrir næstu viku.

Fréttir af ráðningarmálum – þrjár atvinnuauglýsingar

Nú eru þrjú störf auglýst til umsóknar hjá Samgöngustofu. Auglýsingarnar hafa þegar verið birtar á heimasíðu Samgöngustofu, Starfatorgi og Alfreð. 

Auglýst er eftir:

Forritara / Hugbúnarsérfræðingi – Umsóknarfrestur 4. september

Yfirlækni heilbrigðisskorar Samgöngustofu – Umsóknarfrestur 4. september

Rafmagns sérfræðingi – Umsóknarfrestur 28. ágúst








Nýtt sjálfvirkt hjartastuðtæki

Nú í sumar kom í hús nýtt sjálfvirkt hjartastuðtæki frá Zoll. Hjartastuðtækið er staðsett við starfsmannainngang Ármúla megin.

Hjartastuðtæki eins og þetta getur skipt sköpum ef einhver í húsinu fer í hjartastopp. Á meðfylgjandi myndböndum er sýnd notkun þessara tækja. Þessi myndbönd eru á ensku og sýna bæði notkun tækisins og ferlið þegar bregast þarf við vegna þess að líður yfir einhvern:



Einnig látum við fylgja hér með skemmtilegt myndband með breska leikaranum Vinnie Jones þar sem hann skýrir hjartahnoð á skemmtilegan og líflegan hátt:

Endilega kynnið ykkur myndböndin það getur skipt sköpum þegar mikið liggur við!

Nærmynd af tækinu góða:


Aðgangur að bókasafnskerfi, Morgunblaðinu o.fl.

Cartoon Library Images – Browse 49,917 Stock Photos, Vectors, and Video |  Adobe Stock

Hér á innri vefnum er yfirflokkur sem við nefnum Verkfærakistan. Þar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar og leiðbeiningar, t.d. er þar að finna bóksafnssíðu:

Verkfærakistan => Bóksafn

Á þeirri síðu eru ýmsar gagnlegar upplýsingar eins og:

  • Tengill á bókasafnskerfi Samgöngustofu þar sem hægt er að nálgast yfirlit yfir þær bækur sem stofnunin á.
  • Yfirlit yfir þau tímarit og gagnagrunnum sem stofnunum er áskrifandi að og aðgangsorð að þeim. Dæmi: Snara, Morgunblaðið, Lögbirtingablaðið og IMDG og SOLAS.
  • Tengingar á ýmsar síður og hjálpargögn varðandi íslenskt mál svo sem Málfarsbanka Íslenskrar málstöðvar, Orðabanka Íslenskrar málstöðvar, skrá yfir íðorðasöfn o.sfrv.
  • Tengingar á orðasöfn í dönsku og ensku t.d. hugtakasafn um siglingamál.
  • Upplýsingar um landsaðganginn Hvar.is en þar höfum við Íslendingar aðgang að yfir 20.000 tímaritum og yfir 10.000 rafbókum hvar sem við erum staðsett á landinu. Samgöngustofa borgar ásamt fjölda annarra stofnana fyrir þennan landsaðgang. 

Kynnið ykkur endilega bókasafnssíðuna sem er í umsjón starfsfólks skjalastjórnunnar.





Föstudagslagið í boði Davíðs


Það er hann Davíð Ásgeirsson í flugrekstrardeild sem velur föstudagslagið að þessu sinni:

Ég valdi lagið Barfly með íslensku hljómsveitinni Jeff Who?

Gott lag til koma sér í gírinn á föstudegi í lok sumars. Hljómsveitin var stofnuð árið 2004 og gaf einungis út tvær plötur, þar á meðal var lagið Barfly sem kom út 2005, sem er alvöru rokk og ról lag og hefur notið mikilla vinsælda.

Hér er smá texti úr umsögn RÚV um lagið:

„Gríðarlega grípandi og skemmtilegt og svo kemur þessi lokakafli sem hvert einasta mannsbarn á Íslandi getur lallað með. Það er algjör synd af við höfum ekki fengið meira af Jeff Who? því þetta band var alveg ofboðslega vel spilandi og hryllilega skemmtilegt live. Það heyrist vel á Barfly sem heldur uppi stuðinu allan tímann. Þetta á fólk eftir að lalla um aldir.“

Þess má til gamans geta að þetta lag var tekið af hljómsveitinni ErHedz á ballinu á flughátíðinni í Múlakoti þessa verslunarmannahelgina, en þar sáust einmitt nokkrir starfsmenn Samgöngustofu taka hressilega undir á dansgólfinu.

Ég skora á Garðar Árnason kollega minn í flugrekstrardeild.


Fundarherbergi – upplýsingasíða


Hér á innri vefnum er sérstök upplýsingasíða um fundaherbergi í Ármúlanum og Flugröst. Hún var sett í loftið eftir að starfsmaður hafði samband við vefstjóra og lýsti ákveðnu vandamáli sem hann var ítrekað að lenda í. Vandamálið fólst í því að þegar hann bókaði fundaherbergi var hann aldrei viss hversu marga það tók í sæti, hvernig sæti og borð væru í herberginu, hvaða búnaður væri í hverju herbergi o.s.frv.. Þetta varð til þess að viðkomandi eyddi óþarfa tíma í að fara í viðkomandi fundarherbergi og athuga þessi mál áður en hann bókaði. Eftir samtöl við fólk innanhúss kom í ljós að fleiri voru að lenda í því sama.

Í kjölfarið var þessi fundarherbergjasíða sett í loftið þar sem notendur eiga að geta kynnt sér hvert og eitt fundarherbergi, fá nauðsynlegar upplýsingar og meira að segja mynd og myndband :). Ágætis dæmi um það hvernig samvinna notenda og vefstjóra getur skilað sér í auknu notagildi innri vefs.

Upplýsingarnar á þessari síðu hafa nýlega verið uppfærðar en ef þið sjáið eitthvað misræmi í upplýsingunum sem þarna eru og hvernig aðstaðan er í raun og veru þá endilega látið vita með því að senda póst á netfangið vefur@samgongustofa.is. Eins ef þið eruð með hugmynd að viðbótum á innri vefnum sem gæti nýst okkur í okkar daglegu störfum.

Beinn hlekkur á fundaherbergjasíðuna er: innri.samgongustofa.is/fundarherbergi




Smástund – app fyrir Vinnustund

Smástund er app fyrir inn og útstimplanir
og það er hægt að sækja í Play store eða App store.

Númer Samgöngustofu til að skrá sig inn í fyrsta skipti er 1020

Í Smástund er hægt að:

  • Stimpla sig inn og út í símanum
  • Skoða orlof, vinnutíma og skrá fjarvistir.
  • Fá yfirlit yfir samstarfsfólk.

Þegar inn er komið byrjið þið á að skrá kóða Samgöngustofu í forritið sem er eins og áður segir 1020:

Eftir það er hægt að nota appið til að skrá sig inn og út og skoða orlofsstöðuna og margt fleira.

Jákvætt virknidagatal fyrir ágúst :)

Á heimasíðu Virk er mikið af góðum fróðleik og ráðum. Eitt af stóru verkefnu Virk er Velvirk sem snýr að jafnvægi í lífi og starfi. Virkni dagatal er gott verkfæri sem auðvelt er að nýta sér. Það er dagatal með jákvæðum tillögum fyrir hvern dag mánaðarins. Tillögurnar eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins. Flestar tillaganna eru bæði skemmtilegar og auðveldar í framkvæmd.

Virknidagatalið er aðgengilegt á fleiri tungumálum og einnig er hægt að skoða eldri dagatöl.

Hér má sjá ágúst dagatalið 2023 – nýtið og njótið 🙂

Velkomnar, Katrín og Guðrún!

Nú í ágúst hófu Katrín Elfa og Guðrún Ásta störf hjá Samgöngustofu.

Katrín Elfa Ársælsdóttir gegnir stöðu fulltrúa í skráningum og þjónustu, hún er staðsett á fyrstu hæð. Guðrún Ásta Ólafsdóttir gegnir stöðu lögfræðings og er staðsett á þriðju hæð, gangi 3b.

Velkomnar til starfa!


Enski boltinn – Fantasy deild

Búið er að stofna Fantasy deild fyrir þau hér innanhúss sem hafa áhuga á enska boltanum og Fantasy leiknum. Þið stofnið aðgang að Fantasy deildinni hér.

Eftir að þið hafið stofnað lið þá getið þið svo komið í deildina með því að smella hér.

Megi besta liðið vinna!

Hinsegin fánar

Samgöngustofa vill sýna stuðning við mannréttindi, menningu og fjölbreytileika samfélagsins. Í ár standa hinsegin dagar 8.-13. ágúst. Við höfum því flaggað með stolti regnbogafánum með merki stofnunarinnar.

Jafnlaunavottun Samgöngustofu 2023 til 2026

Samgöngustofa hlaut jafnlaunavottun fyrst árið 2020 og gilti sú vottun í þrjú ár, nú í byrjun júlí fór því fram stór endurvottunarúttekt sem stofnunin stóðst. Ný vottun gildir 2023 til 2026, árlega fer fram svokölluð milli úttekt eins og síðastliðin þrjú ár.

Upplýsingasíða um jafnlaunastjórnunarkerfi Samgöngustofu er hér á innri vefnum.
Á upplýsingasíðunni má nálgast allar helstu upplýsingar um kerfið, kynningu á niðurstöðum launagreiningar ofl., öll gæðaskjöl tengd kerfinu eru í CCQ.

Áhugasöm geta einnig skoðað frekari upplýsingar um jafnlaunavottun á heimasíðu stjórnarráðsins,

Bendum á Bendil fyrir ábendingar – laun@samgongustofa.is fyrir almennar spurningar 🙂

Farþegaflutningar með bátum í atvinnuskyni

Frétt af ytri vef:
Samgöngustofa vill árétta að farþegaflutningar í atvinnuskyni með bátum hér við land, svo sem skoðunarferðir og veiðiferðir ferðmanna, eru háðir leyfi Samgöngustofu. Gildir þetta um alla báta, svo sem RIB-báta, Zodiac báta eða aðra báta.

Um tvenns konar leyfi er að ræða:

  • Séu bátarnir undir 6 metrum þarf starfsleyfi fyrir þá, þar sem tekið er fram hvernig starfseminni verði háttað, tryggt sé að tryggingar séu fullnægjandi o.þ.h.
  • Séu bátarnir yfir 6 metrum að lengd þarf að sækja um farþegaleyfi fyrir bátana og þarf starfsemin að uppfylla sömu kröfur og getið er hér að framan.

Fyrir báta 6 m og lengri skal nota eyðublaðið Umsókn um leyfi/endurnýjun á leyfi til farþegaflutninga með skipum, sem er að finna á vef Samgöngustofu.

Eyðublað fyrir báta undir 6 metrum er að finna á heimasíðu Samgöngustofu undir Umsókn um starfsleyfi til reksturs bátaleiga, kajakleiga, flúðasiglinga og siglingaklúbbs.

Hafnarsvæði eru ekki undanþegin og geta hafnir því ekki leyft farþegaflutninga með förum sem ekki hafa til þess tilskilin leyfi.

Þessar upplýsingar hafa einnig verið sendar á umboðsmenn erlendra skipa varðandi notkun léttbáta erlendra skemmtiferðaskipa til skoðunarferða.

Samkvæmt 41. gr. skipalaga nr. 66/2021 þarf leyfi Samgöngustofu til farþegaflutninga í atvinnuskyni í lögsögu Íslands en erlend skemmtiferðaskip, sem falla undir SOLAS reglurnar, eru undanþegin reglunum, sem og skipsbátar þeirra þegar þeir eru eingöngu notaðir til þess að ferja fólk beint í land og til baka. 

Sumar skrifborð

Sumarið er (loksins) komið með sól og hita. Á ákveðnum stöðum í Ármúla 2 finnur fólk mjög mikið fyrir hitanum, sérstaklega þeim sem snúa í suð-vestur. Í sumar verður því gerð sú tilraun að bjóða upp á laus rými á göngum 2b og 3b til notkunar.

Hér að neðan er skjal þar sem sjá má laus rými og dagsetningar.
Starfsfólk getur þá tekið tölvuna sína, lyklaborð og mús og tengt sig.
Sett hefur verið upp skjal þar sem starfsfólk á göngum 2b og 3b er beðið að skrá þá tíma sem það er í orlofi, starfsfólk sem nýtir rýmið skal einnig skrá í sama skjal

Skráningarskjal

Heyrið í Ólöfu ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi þetta 🙂

Fréttir af ráðningarmálum

Nýlega hefur verið gengið frá nokkrum ráðningum,

Framkvæmdastjóri siglinga, ráðinn var Geir Þór Geirsson sem sinnt hefur stöðunni skv. tímabundinni ráðningu sl. tvö ár.

Framkvæmdastjóri flugs, ráðinn var Páll S. Pálsson sem sinnt hefur stöðunni skv. tímabundinni ráðningu sl. tvö ár.

Sérfræðingur í þjálfunar og skírteinarmálum flugs, ráðin var Málfríður Dögg Sigurðardóttir sem kemur til starfa 15. september nk. Fríða starfar í dag sem cabin crew manager hjá flugfélaginu Erni en hefur einnig starfsreynslu frá WOW og Icelandair Express. Fríða er með BA gráðu í Spænsku, BS í ferðamálafræði og meistargráðu í Forystu og stjórnun.

Röst tekur við af Baldri

Vegagerðin hefur samið við Torghatten Nord um kaup á ferjunni Röst. Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar. Skipið tekur að óbreyttu við ferjusiglingum á Breiðafirði í haust og leysir þar með ferjuna Baldur af hólmi. Kaupin koma í kjölfar útboðs þar sem einungis fékkst eitt tilboð. Upphaflega stóð til að leggja af ferjusiglingar á Breiðafirði við lok samnings við Sæferðir vorið 2023 en ákveðið var breyta þeirri ákvörðun og  halda áfram siglingum í ljósi þess að miklar breytingar hafa orðið á atvinnustarfsemi á sunnanverðum Vestfjörðum bæði hvað varðar uppbyggingu fiskeldis og ferðaþjónustu.

Ferjan Röst er smíðuð 1991, tekur 250 farþega, rúmar fimm stóra flutningabíla. Í útboði Vegagerðarinnar um rekstur Breiðafjarðarferju 2023-2026 er miðað við að Röst sigli sömu áætlun og Baldur á ferjuleiðinni Stykkishólmur – Flatey – Brjánslækur – Flatey – Stykkishólmur.

Sjá nánar í frétt á vef Vegagerðarinnar





Tilboð frá Linsunni á Skólavörðustíg

Linsan Skólavörðustíg 41 býður starfsfólki og fjölskyldu 25-50% afslátt af umgjörðum til 19. júlí.´Auk þess er boið uppá fría sjónmælingu og auka sjóngler. Upplýsingar um þetta tilboð og tilboð á árskorti í WorldClass er að finna á tilboðssíðunni hér á innri vefnum.

Okkar kona á jafnréttisráðstefnu

Í vikunni hefur Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) staðið fyrir jafnréttisráðstefnu í Madrid. Ísland átti fulltrúa á þessari ráðstefnu sem voru Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir fulltrúi okkar í aðalráði ICAO, sem stjórnaði umræðum um reynslu þjóða við að hraða þróun í jafnréttisátt og Birna Katrín Gunnlaugsdóttir flugmaður hjá Icelandair sem tók þátt í umræðum um sýn næstu kynslóðar. Stóðu þær sig mjög vel í umræðum um þetta mikilvæga málefni. Nefnt var á fundinum að það sé ekki nóg að ryðja hindrunum úr vegi heldur þurfi einnig að skapa hvatningu til jafnréttis og jafnra tækifæra.

Hér má horfa á umræðurnar á ráðstefnunni.