Aukaföstudagslag Steingríms

Keith Richards, Ronnie Wood og Mick Jagger höfuðpaurar Rolling Stones.

Af því að þið hafið verið svo dugleg í vikunni bjóðum við í fyrsta skiptið uppá aukaföstudagslag og það er hann Steingrímur Hauksson sem á orðið:

Í tilefni af því að ný stúdíóplata með Rolling Stones er væntanleg  20. október n.k. þá er það viðeigandi að birta lag sem verður á plötunni og búið að gera opinbert. Lagið sem er sungið af Mick Jagger söngvara Stones og Lady Gaga heitir Sweet Sounds Of Heaven. Platan mun bera nafnið Hackney Diamonds. Fleiri listamenn eins og Elton John, Paul McCartney,  Stevie Wonder og Bill Wyman sem var í Stones frá upphafi 1962 til 1993 munu annast hljóðfæraleik í einhverjum lögum sem verða á plötunni. Þessi plata er búin að vera lengi í bígerð. Charlie Watts trommuleikari sveitarinnar sem lést 2021, trommaði t.d. í tveim lögum sem verða á plötunni. Seinasta stúdíóplata með frumsömdum lögum með Stones var gefin út fyrir 18 árum. Alls hafa verið gefnar úr frá 1962, 23 stúdíóplötur með hljómsveitinni, auk ýmissa safnplatna.

Lady Gaga

Nú er það svo að frá 1995 að ég hef sótt 11 tónleika með Stones. Ýmsir starfsmenn SGS eins og Jón heitinn Bernódusson, Helgi Jóhannesson, Kristinn Ingólfsson og Guðmundur K Thoroddsen hafa slegist í för með mér á ýmsa Stones tónleika. Auk þess hafa tveir fyrrum starfsmenn Siglingastofnunar þeir Sigurður Áss Grétarsson og Birgir T Arnar slegist með í för. Einnig má geta þess að Halldóra Ingibergsdóttir fór á tónleika með Stones í Hyde Park í London í fyrra. Eftir því sem aldurinn færist yfir, finnst mér Rolling Stones alltaf vera betri og betri. Ég er handviss um að þessir krumpukallar sem eru á níræðisaldri eða að nálgast þann aldur, slái algjörlega í gegn með nýju lögunum á Hackney Diamonds. Kenningin um að aldur sé afstæður á hér greinilega við.



Breyttar áherslur í fjármögnun vegasamgangna

Í frétt á stjórnarráðsvefnum kemur fram að breytingar eru fyrirhugaðar í fjármögnun vegasamgangna og taka eigi upp nýtt kerfi þar sem greitt er almennt kílómetragjald í stað sértækra gjalda á bensín og olíu sem nú eru í gildi. Í fréttinni segir m.a.:

„Árangur í orkuskiptum kallar á að fjármögnun vegasamgangna verði óháð jarðefnaeldsneyti. Stefnt er að innleiðingu nýs, einfaldara og sanngjarnara kerfis á næstu árum, þar sem greitt er almennt kílómetragjald í stað sértækra gjalda á bensín og olíu sem nú eru í gildi. Þannig verður kerfið sjálfbærara og styður við áframhaldandi uppbyggingu og viðhald vegakerfisins samhliða orkuskiptum til framtíðar.

Aðlögun fjármögnunar vegasamgangna að orkuskiptum fer fram í tveimur áföngum:

  • Fyrra skrefið verður stigið á næsta ári með innleiðingu kílómetragjalds fyrir notkun rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla sem hafa hingað til borið takmarkaðan kostnað af notkun vegakerfisins.
  • Seinna skrefið verður stigið í ársbyrjun 2025 þegar dísel- og bensínbílar fara einnig að greiða kílómetragjald. Samhliða er gert er ráð fyrir að eldri gjöld á borð við vörugjöld af eldsneyti muni eftir atvikum lækka eða falla niður, þó kolefnisgjald verði áfram greitt.

Með innleiðingu á nýju kerfi í tveimur skrefum nær það einungis til hluta bílaflotans á fyrra ári. Þannig verður hægt að draga lærdóma af innleiðingunni og styrkja fyrirkomulagið enn frekar til framtíðar.

Um þetta er fjallað í áformum um lagasetningu sem birt hafa verið í samráðsgátt.“

Sjá nánar í frétt á vef stjórnarráðsins


Október – Virkni dagatal

Á heimasíðu Virk er mikið af góðum fróðleik og ráðum. Vel-virk er verkefni þar sem markmiðið er að stuðla að jafnvægi í lífi og starfi. Virkni dagatal er verkfæri sem gott er að styðjast við í þessari vegferð. Virkni dagatal gefur jákvæðar hugmyndir fyrir hvern dag mánaðarins. Tillögurnar eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins. Tillögurnar eru bæði skemmtilegar og auðveldar í framkvæmd.

Virknidagatalið er aðgengilegt á fleiri tungumálum og einnig er hægt að skoða eldri dagatöl.

Hér að neðan er virkni dagatal fyrir október mánuð.  

Árshátíðin – póstkort sviðanna


Eins og frægt er orðið fórum við í fræðslu- og árshátíðarferð til Kaupmannahafnar um helgina. Þó að orðatiltækið “what happens in Copenhagen stays in Copenhagen” sé í hávegum haft er ástæða til þess að deila með öllum póstkortunum sem birt voru með hverju atriðið í Samgönguvision.

Árshátíðin var frábær og virkilega vel að öllu staðið hjá Farsýslunni, ferðanefndinni, mannauðsdeildinni og öllum þeim sem komu að undirbúningnum. 100 rokkstig fyrir þau! Svo voru veislustjórarnir þau Bjarklind og Lalli til mikillar fyrirmyndar og gerðu þetta uppá 10.

Svona til þess að gefa smá innsýn í stemninguna þá er hér ein mynd af fögrum og skemmtilegum hópi á árshátíðarkvöldinu sjálfu:

Mikil vinna var lögð í atriðin og ber að hrósa þeim sem tóku þátt í þeim og undirbjuggu. Það var Stjórnsýslusviðið sem bar sigur úr býtum með þeim Kolbeini og Erlu í farararbroddi. Hér að neðan má nálgast póstkortin sem sýnd voru fyrir hvert atriði, margir komu að gerð þeirra t.d. sá Kolbeinn um að klippa til póstkort Stjórnsýslusviðs og Einar Magnús vann að lokafrágangi og hljóðsetningu. Gísli Marteinn var að sjálfsögðu kynnir keppninnar:

Upphafskynningin


Póstkort Flugsviðsins sem birt var fyrir atriði þeirra:


Póstkort skrifstofu forstjóra:


Póstkort Umferðarsviðs:


Póstkort Stjórnsýslusviðs:


Stop voting now:


Afkynning keppninnar:


Föstudagslagið frá Köben


Áskorunarkeðjan er hvíld að þessu sinni og þess í stað setjum við tvö lög á fóninn tengd Danmörku. Hvað er danskara en Kim Larsen? Ekkert. Því skellum við laginu De smukke Unge Mennesker undir nálina, live 1988.

Svo er það ógleymanlegt lag úr kvikmyndinni Með allt á hreinu, Við erum búnir að meika það, þar sem drengirnir ætluðu að spila í Tívolí í Köben en enduðu í Osló. Nú er spurning hvort árshátíð Samgöngustofu endi í Osló í stað Köben…

Bjarklind veislustjóri velur svo lagið fyrir næstu viku og ákorunarkeðjan heldur áfram.




Okkar fólk komið á YouTube

Í júlí sögðum við frá gerð kynningarmyndar AWS Institute um stafrænt ökunám á Íslandi. Okkar frábæru Sigurjóna og Lárus voru þar meðal viðmælenda og leystu viðtölin með miklum sóma. Nú er myndin komin á vefinn svo allur heimurinn getur séð. Vel gert Sigurjóna og Lárus!

Samgöngustofa hlýtur viðurkenningu fyrir stafræn skref

Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn. Jón Gunnar tók við henni fyrir hönd Samgöngustofu.

Á föstudaginn hlaut Samgöngustofa sérstaka viðurkenningu Stafræns Íslands. Viðurkenningarnar voru veittar nokkrum stofnunum á ráðstefnunni Tengjum ríkið. Samgöngustofa er ein þeirra stofnana sem tekið hafa hvað flest stafræn skref síðustu misseri. Til hamingju við öll!

Tengjum ríkið er árleg ráðstefna Stafræns Íslands og var yfirskriftin að þessu sinni Stafrænt samfélag. Var hún haldin í tengslum við fund Norrænu ráðherranefndarinnar um stafræna þróun, þar sem Ísland fer með formennsku. Ráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna voru meðal gesta og ræddu stafrænt samstarf og forystu svæðisins. Sérstakur gestur var Clare Martorana sem stýrir upplýsingatæknimálum Bandaríkjaforseta. Fleiri málefni voru til umfjöllunar á þessari fróðlegu ráðstefnu og má þar nefna kjarnaþjónustur Stafræns Íslands, þróun þeirra, innleiðingu og virkni.

Umbótaátakið hefst 1. október

Sl. föstudag var farið yfir umbótamenningu hjá Samgöngustofu. Erindi umbótahópsins má finna hér.

Góð vinnustaðamenning verður ekki til í tómarúmi, heldur er hún að stórum hluta uppskera þess sem við sjálf sáum, með viðhorfum okkar, orðum og gjörðum. Við viljum vera samferða í að skapa hér umhverfi frumkvæðis og nýsköpunar. Með því bætum við samskipti og aukum virkni, árangur og starfsánægju. Fyrsta áþreifanlega skrefið er umbótaátak sem hefst 1. október og stendur í mánuð. Hikum ekki við að senda inn góðar tillögur gegnum ábendingakerfið Bendil, því fleiri því betra!

Föstudagslagið í boði Lalla

Það er hann Lárus Long (aka Lalli) sem velur föstudagslagið í þetta skiptið:

Það er lagið Never ever let you goRollo & King. Að sjálfsögðu veljum við danskt Eurovision lag síðasta föstudaginn fyrir Köbenferðina og Samgönguvision. Það var SKANDALL að þetta lag vann ekki í Parken 2001, enn og aftur náði pólitíkin yfir í stigagjöfinn, ég hef enn ekki jafnað mig.

Það er einfaldlega ekki hægt að dilla sér ekki þegar þetta lag kemur fóninn, og það mun svo sannarlega gerast í SAS höllinni næstkomandi föstudag.

Samgöngustofa, BYRJIÐ að hlakka til NÚNA!

Ég skora á nýju bestu vinkonu mína Bjarklindi að koma með næsta föstudagslag – vonandi eitthvað legendary úr Kaupmannarhafnarferðinni 🙂

https://youtu.be/H4dhS6f1kyw?si=xT1bD69XGVLkCCl2






Gamli vefurinn aðgengilegur

Fyrir ykkur sem viljið fara í nostalgíuferðalag um lendur gamla vefsins þá er hann nú aðgengilegur með öllum skjölum á eftirfarandi slóðum:

gamli.samgongustofa.is

og

old.icetra.is

Athugið að hann er einungis aðgengilegur hér innanhúss (svo efnið googlist ekki) fyrir utan nokkrar síður eins og skoðunarhandbók ökutækja og fræðsluefni og tölfræði sem unnið er að því að flytja yfir á næstu misserum.




Nýr og betri vefur Samgöngustofu á Ísland.is

Við höfum nú flutt vefinn okkar yfir á Ísland.is þar sem þarfir notenda eru hafðar í öndvegi. Markmiðið er að nýi vefurinn greiði götu fólks enn frekar, þar verði upplýsingum miðlað með skýrum hætti og þjónusta verði aðgengilegri.

Við fögnum þessum mikilvæga áfanga og þökkum fyrir frábæra samvinnu hér innanhúss og við samstarfsaðila hjá Stafrænu Íslandi og Stefnu. Nú væri frábært ef þið mynduð sem flest skoða ykkur um á nýja vefnum og senda okkur ábendingar á vefur@samgongustofa.is um það sem betur mætti fara.

Til hamingju með nýja vefinn!

Vefurinn á Ísland.is á morgun miðvikudag


Á morgun, miðvikudaginn, 20. september, ætlum við að opna nýja vefinn okkar á Ísland.is. Markmiðið er að nýi vefurinn greiði götu fólks enn frekar, þar verði upplýsingum miðlað með skýrum hætti og þjónusta verði aðgengilegri.

Það sem gerist á morgun er að www.samgongustofa.is mun beinast á island.is/s/samgongustofa og www.icetra.is mun beinast á island.is/en/o/transport-authority Gamli vefurinn verður áfram aðgengilegur um sinn og hægt að sækja þangað efni sem hugsanlega gæti vantað á slóðinni www.gamli.samgongustofa.is.

Með ákvörðun um flutning vefsins var um leið horft til samvinnu um miðlægt vefsvæði ríkisstofnana og hagkvæmri samnýtingu opinberra innviða. Efnið hefur verið endurskoðað og áhersla lögð á greiða og gagnlega miðlun. Verkefnið var unnið í mikilli samvinnu hér innanhúss og við Stafrænt Ísland sem hefur það hlutverk að styðja við stafræna vegferð opinberra stofnana.

Ef þið sjáið eitthvað sem betur má fara eða finnið ekki efni á nýja vefnum þá sendið okkur endilega ábendingar á vefur@samgongustofa.is. Við munum við bregðast við eins fljótt og auðið er.





Föstudagslagið í boði Haralds

Það er hann Haraldur Kristinsson Thorlacius sem velur föstudagslagið að þessu sinni:

Ég vel lagið Together in Electric Dreams með Phil Oakey & Giorgio Moroder. Þar sem ég er mikill 80‘s fantur kemur ekkert annað til greina ein 80‘s lag. Lagið sameinar einn af mínum uppáhalds lagahöfundum, uppháhalds hljómsveit og stafræna vegferð Samgöngustofu.

Ég skora á Lárus Long fyrir næstu viku.

Gulur september – geðveikur mannauður – Silja Björk

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka um að auka meðvitund um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. Í föstudagskaffinu í morgun fengum við heimsókn frá Silju Björk, geðsjúkum rithöfundi, fyrirlesara og femínista. Silja Björk ræddi við okkur um andlega heilsu, geðrækt og mikilvægi þess að opna á samtalið um geðheilbrigði.

Hér að neðan (smellið á hlekkinn) eru upplýsingar um Silju Björk, erindið og margir góðir og hagnýtir tenglar.

Geðveikur mannauður

Skilaboð frá Silju Björk: fólki er alltaf frjálst að senda mér tölvupóst eða hafa samband á Facebook fyrir frekara samtal.

Föstudaglagið í boði Björns Vilbergs


Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Björns Vilbergs í flugrekstrardeild:

Takk fyrir áskorunina Marteinn, mitt föstudagslag er fullkomið fyrir stofnunina og svona flugnörda eins og mig. Það er Learn to Fly með Foo Fighters. Frábært lag og frábært myndband með stórstjörnum í fararbroddi!

Ég skora svo á kollega minn og nágranna hann Garðar Árnason að koma með næsta lag. 

Góða helgi!





Gulur september

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.

7. september er gulur dagur.

Öll sem geta eru hvött til að taka þátt og sýna þannig stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir.

Á gulum degi klæðumst við gulu, skreytum með gulu, lýsum með gulu, borðum gular veitingar og tökum myndir af gulri stemmingu. Myndin getur verið sjálfa eða af vinum, fjölskyldu, samstarfsfólki, skreytingum eða gulum hlutum.

Til að vekja athygli sem víðast er lagt til að deila myndum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember.

Einnig er bent á gular geðræktargöngur þennan dag, sjá dagskrá.

Frekari upplýsingar um verkefnið “gulur september” er að finna á heimasíðunni gulurseptember.is

Föstudagslagið í boði Marteins


Það er hann Marteinn Guðjónsson sem velur föstudagslagið að þessu sinni og um val sitt skrifar hann:

Föstudagslagið að þessu sinni er með meistara Mugison. Mugison er í miklu uppáhaldi og eru mörg lög sem koma til greina en þó er eitt sem stendur uppúr og er ekkert lag betra á föstudegi til að koma sér í gírinn fyrir helgina. Lagið Murr Murr samdi Mugison árið 2004 og varð það fljótlega gríðarlega vinsælt og er líklega hans vinsælasta lag. Hann hefur flutt það í hinum ýmsu útgáfum og persónulega finnst mér hráa live útgáfan flottust en hljómgæðin koma ekkert alltof vel út í gegnum netið þannig að ég færi ykkur bara þessa venjulegu, sem er reyndar líka hrikalega flott. Gerið svo vel og takk fyrir mig 🙂

Ég skora á kollega minn Hilmar Baldursson að koma með næsta föstudagslag.

Döðlupestó Bjössa

Hér kemur uppskrift frá Bjössa að einstaklega ljúffengu döðlupestói sem boðið var upp á í mötuneytinu í dag. Fer vel sem meðlæti með allskyns mat, nú eða bara beint á hrökkbrauðið:

Döðlu- og ólífupestó

Ein krukka af rauðu pestói (t.d. frá Sacla)
Hálf krukka fetaostur og smá af olíunni líka
1 1/2 dl. svartar ólífur, gróft saxaðar
1 1/2 dl. döðlur, smátt saxaðar
1 1/2 dl. steinselja, smátt söxuð
1 1/2 dl. brotnar kasjúhnetur
Tvö hvítlauksrif, smátt skorin eða pressuð

Öllu blandað saman í skál. Verði ykkur að góðu!

Kveðjuboð fyrir Sverri

Í gær var haldið kveðjuboð fyrir Sverri Konráðsson, en hann hætti störfum nú í sumar vegna aldurs eftir langan og farsælan feril. Sverrir starfaði óslitið í þágu sjófarenda frá árinu 1998, fyrst hjá Siglingastofnun Íslands og síðar Samgöngustofu. Hjá Samgöngustofu var hann sérfræðingur um verkefni tengd siglingaöryggi og upplýsingagjöf um siglingamál, einkum á alþjóðavettvangi. Við þökkum Sverri fyrir gott og árangursríkt samstarf og óskum honum gæfu og gengis.





Þengill í flugvarpinu

Rætt er við Þengil okkar í þætti #61 í Flugvarpinu og í kynningu á viðtalinu segir:
….hann á að baki magnaðan áratuga feril í bæði flugi og lækningum og er sá sem leitað er til þegar upp koma vafamál varðandi heilbrigðisvottorð fyrir flugáhafnir. Þengill sinnir alþjóðlegu samstarfi fyrir hönd Íslands og þekkir vel hvaða mál eru þar helst til umræðu og hefur frá ýmsu áhugaverðu að segja enda hefur hann um árabil verið forystumaður í fluglækningum á Íslandi og starfaði lengi sem héraðslæknir á Vopnafirði og síðar sem fluglæknir hjá Landhelgisgæslunni.

Skemmtilegar myndir af Þengli má sjá á Instagram reikningi Flugvarpsins og viðtalið má nálgast á Spotify sjá tengil hér: