Nú hefur enn eitt framfaraskrefið í stafrænni þróun Samgöngustofu verið stigið: Umsókn ökumannskorta á Ísland.is. Atvinnubílstjórar geta nú sótt um ökumannskort með rafrænni auðkenningu þar sem upplýsingar um ökuréttindi, ljósmynd og undirskrift eru sótt í gagnagrunn sýslumanns. Áður þurfti að fylla út og undirrita umsókn á pappír og skila til okkar ásamt afriti af ökuskírteini og passamynd.
Stafrænt umsóknarferli hefði ekki verið mögulegt nema með tilkomu nýs pöntunarkerfis sem tekið var í notkun í lok ágúst eftir langa bið. Nýja pöntunarkerfið, sem ber nafnið Fajitas, leysti af hólmi tvö eldri kerfi og einfaldaði þar til muna alla umsýslu hér innanhúss.
Eins og er er einungis hægt að sækja um ökumannskort með stafrænum hætti en stefnt er að því að síðar verði einnig mögulegt að sækja um fyrirtækjakort.
Á heimasíðu Virk er mikið af góðum fróðleik og ráðum. Vel-virk er verkefni þar sem markmiðið er að stuðla að jafnvægi í lífi og starfi. Virkni dagatal er verkfæri sem gott er að styðjast við í þessari vegferð. Virkni dagatal gefur jákvæðar hugmyndir fyrir hvern dag mánaðarins. Tillögurnar eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins. Tillögurnar eru bæði skemmtilegar og auðveldar í framkvæmd.
Virknidagatalið er aðgengilegt á fleiri tungumálum og einnig er hægt að skoða eldri dagatöl.
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. nóvember 2023. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2023.
Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 38.500 kr.
Gisting í einn sólarhring kr. 22.600 kr.
Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 15.900 kr.
Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 7.950 kr.
Uppfært skjal “Ferðabeiðni innanlands, frá og með 1. nóv 2023” er komið hér á innri vefinn undir Samgöngustofa – verklagsreglur
Október átak í skráningu umbóta fer senn að ljúka.
Minnum á að skráning umbótatillagna í Bendil líkur á morgun, 31. október. Við hvetjum svo auðvitað til áframhaldandi skráningu stöðugra umbóta í Bendil eftir að átakinu líkur.
Það hafa nú þegar borist margar tillögur í Bendil og við höfum til lok dags á morgun til að koma okkar ábendingum á framfæri.
Eins og áður hefur komið fram þá drögum við einn heppinn vinningshafi úr skráðum tillögum í Bendil í október. Vinningshafi fær gjafakort að verðmæti 20 þúsund krónur.
Í morgun hélt Guðbjörn Jensson kynningu á flugleiðsöguhluta sinnar deildar. Hann fór m.a. yfir verkefnin sem þau sinna, starfsfólkið, verklag, innlent samstarf og alþjóðlegt samstarf. Verkefnin eru fjölbreytt og felast m.a. í vottun og eftirlit veitenda flugleiðsöguþjónustu, eftirlit með stafrænum breytingum, grening öryggisframmistöðu, rýni flugferla, kögunarþjónustu, rekstrarstjórnun flugumferðar o.sfrv.
Nýlega fóru fram prófanir á nýju kerfi til að auka öryggi sjóferenda. Þetta kemur fram í frétt í Morgunblaðinu í gær. Í fréttinni segir m.a.:
„Um er að ræða nýsköpunarverkefni sem gengur undir heitinu AI-ARC og hefur Landhelgisgæslan tekið þátt í verkefninu undanfarin tvö ár ásamt yfir 20 samstarfsaðilum í tólf Evrópuríkjum.
Fulltrúar samstarfsaðilanna voru hér á landi í síðustu viku í tilefni af prófunum á kerfinu sem ætlað er að bæta upplýsingaflæði. „Prófanirnar gengu vonum framar og lausnin lofar svo sannarlega góðu,“ segir Snorre Greil, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni og sérfræðingur á aðgerðasviði
„Tilgangur verkefnisins er að útbúa nýstárlegt, öflugt, skilvirkt og notendavænt upplýsingaumhverfi þangað sem unnt er að deila gögnum og upplýsingum um skipaumferð og annað sem sjónum tengist,“ útskýrir Snorre.“
Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Andra Hermannssonar eftirlitsmanns í deild Flugleiðsögu, flugvöllum og flugvernd:
Valið er einfalt. Ég vel lagið Út á stoppistöð með Stuðmönnum. Lagið er kraftmikið og við feðgar elskum að syngja þetta saman þegar við förum út á land.
Dagskráin er fjölbreytt að venju og endurspeglar það margháttaða rannsókna- og þróunarstarf sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Sextán rannsóknaverkefni verða til umfjöllunar og samhliða veggspjaldasýning með um tólf verkefnum.
Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir.
Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2022.
Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar liggur í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki er endilega einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.
Vindaðstæður við brýr – hermun til stuðnings hönnunarviðmiðum, Darri Kristmundsson, Vatnaskil.
10:00
Sigmælingar með LiDAR skanna á þyrildi, Sólveig Kristín Sigurðardóttir, Verkís.
10:15
Kaffihlé og veggspjaldasýning
10:45
Kostir hástyrkleikasteypu á brýr, Ólafur H. Wallevik, Háskólinn í Reykjavík.
11:00
Ástandsskoðun sprautusteypu í jarðgöngum með tilliti til þykktar og væntanlegs líftíma, Benedikt Ó. Steingrímsson og Guðbjartur Jón Einarsson, Mannvit.
11:15
Kolefnisfótsporsgreining á brimvarnargörðum og sjóvörnum, Majid Eskafi, EFLA (erindi á ensku).
11:30
Fyrirspurnir
11:45
Hádegismatur
13:00
Áhrif á öryggi virkra ferðamáta vegna algrænna umferðarljósa, Davíð Guðbergsson, VSÓ ráðgjöf.
13:15
Umferðaröryggisaðgerðir og áhrif á leiðarval, Berglind Hallgrímsdóttir, EFLA.
13:30
Leiðbeiningar um hönnun gatna í þéttbýli, Thijs Kreukels, VSB verkfræðistofa (erindi á ensku).
13:45
Áhrif fjarvinnu á vegakerfið, Sæunn Gísladóttir, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri.
14:00
Grímsvötn: vatnsgeymir, jökulhlaup, upphaf og rennsli, Finnur Pálsson, Jöklahópur Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.
14:15
Fyrirspurnir
14:30
Kaffihlé
15:00
Rannsóknir á tengslum veðurfarsbreytinga og hreyfinga á og við vegstæði Siglufjarðarvegar um Almenninga, Þorsteinn Sæmundsson, Halldór Geirsson og Hafdís Jónsdóttir, Háskóli Íslands og Vegagerðin.
15:15
Mælaborð úrkomuvöktunar í Almenningum, Einar Sveinbjörnsson, Veðurvaktin.
15:30
Opna fjallvegir hlið fyrir landnám innfluttra plöntutegunda á hálendi Íslands, Rannveig Thoroddsen, Náttúrufræðistofnun Íslands.
15:45
Örmengunarefni í ofanvatni af vegum, Ásta Ósk Hlöðversdóttir, VSB verkfræðistofa.
16:00
Fyrirspurnir
16:15
Ráðstefnuslit – léttar veitingar
Glærur og ágrip fyrirlestra verður hægt að finna á vef Vegagerðarinnar að ráðstefnu lokinni. Listi yfir veggspjöld verður birtur innan skamms.
Í gær stóð umferðarsvið fyrir norrænni ráðstefnu um ökutækjaskráningar og ökuskírteini, Nordic Registration Conference, sem Norðurlöndin skiptast á um að halda árlega. Kynningar Samgöngustofu fjölluðu um verkefni okkar um rafrænar forskráningar og samstarf við Starfrænt Ísland um að bæta þjónustu við viðskiptavini. Einnig var sagt frá fleiri stafrænum verkefnum á borð við ökunámsbókina og var mjög fín kynningarmynd okkar fólks og AWS Institute hluti þeirrar umfjöllunar. Ráðstefnan, sem að þessu sinni fór fram á Hótel Hilton Nordica, er hluti af mikilvægu samstarfi Norðurlandanna auk Álandseyja. Markmið hennar er að samnýta þekkingu nágrannaþjóða og fá um leið tækifæri til að segja frá góðum framfaramálum sem geta orðið öðrum að gagni.
Það stefnir í að verða árleg hefð að hafa lítinn hrekkjavöku skiptimarkað fyrir búninga hér í Ármúla 2. Það er frábært að geta nýtt áfram góða búninga, lengja líftíma flíkanna og hlutanna okkar og svo er þetta líka ein af aðgerðunum í Grænu skrefunum 🙂
Fatasláin er nú komin upp fyrir framan Vörina, litla fundarherbergið í miðrými á 2rri hæð. Kíkið endilega við, takið ykkur búning eða hengið búning á slána 🙂
Farsýslan minnir á Októberfest Samgöngustofu föstudaginn 20. október. Mæting á Samgöngustofa Bistro 1. hæð Ármúla 2, kl 16.00. Boðið verður upp á sausages, pretzels, bjór, léttvín, gosbjór og góðan félagsskap. Öllum frjálst að mæta í búning😘
Stefán Pálsson mætir til okkar með stórskemmtilega bjórkynningu og annan fróðleik.
Föstudaginn 20. október er bleiki dagurinn 2023. Á bleika deginum er fólk hvatt til að vera bleik – fyrir okkur öll, bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa upp skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.
Hjá Samgöngustofu er virk jafnréttisnefnd skipuð starfsfólki. Hlutverk nefndarinnar er að endurskoða árlega jafnréttisáætlun og fara yfir stöðu jafnréttismála innan Samgöngustofu.
Skráning umbóta í Bendil hafa farið vel af stað, og vel gert til ykkar sem hafa þegar sent inn tillögur! Við hvetjum alla starfsmenn til þátttöku í átakinu núna í október með skráningu tillagna að bættu verklagi eða öðrum umbótum sem mögulega einfalda og bæta vinnudaginn okkar! Við drögum svo vinningshafa úr skráðum tillögum að loknu átaki.
Sendið endilega fyrirspurnir eða vangaveltur á umbotahopur@samgongustofa.is
Á þriðjudaginn var boðið uppá kennslu á hjartastuðtækið sem staðsett er við innganginn Ármúlamegin. Við höfum nú sett upp síðu hér á innri vefnum með leiðbeiningum fyrir tækið góða. Leiðbeiningarsíðan góða er að finna undir Verkfærakistan – Hjartastuðtæki-leiðbeiningar.
Þar er m.a. að finna erlend kennslumyndbönd sem gott er að horfa á til þess að kynna sér hvernig tækið virkar. Á forsíðu innri vefsins er einnig komin flýtileið á leiðbeiningarsíðuna:
Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Bjarklindar í öryggis- og fræðsludeild:
Takk fyrir síðast Samgöngustofa! Rosalega gátum við skemmt okkur vel saman í Köben. Nú er ekki annað hægt en að velja sigurlag Samgönguvision 2023 sem föstudagslagið þennan ágæta föstudag. Að þessu sinni verðum við þó að sætta okkur við flutning HLH flokksins en yljum okkur við minningar um flutning stjórnsýslusviðs.
Að lokum skora ég á nýjasta starfsmann Stjórnsýslusviðs, hana Guðrúnu Ástu Ólafsdóttir, að koma með næsta föstudagslag!