
Í frétt á stjórnarráðsvefnum kemur fram að breytingar eru fyrirhugaðar í fjármögnun vegasamgangna og taka eigi upp nýtt kerfi þar sem greitt er almennt kílómetragjald í stað sértækra gjalda á bensín og olíu sem nú eru í gildi. Í fréttinni segir m.a.:
„Árangur í orkuskiptum kallar á að fjármögnun vegasamgangna verði óháð jarðefnaeldsneyti. Stefnt er að innleiðingu nýs, einfaldara og sanngjarnara kerfis á næstu árum, þar sem greitt er almennt kílómetragjald í stað sértækra gjalda á bensín og olíu sem nú eru í gildi. Þannig verður kerfið sjálfbærara og styður við áframhaldandi uppbyggingu og viðhald vegakerfisins samhliða orkuskiptum til framtíðar.
Aðlögun fjármögnunar vegasamgangna að orkuskiptum fer fram í tveimur áföngum:
- Fyrra skrefið verður stigið á næsta ári með innleiðingu kílómetragjalds fyrir notkun rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla sem hafa hingað til borið takmarkaðan kostnað af notkun vegakerfisins.
- Seinna skrefið verður stigið í ársbyrjun 2025 þegar dísel- og bensínbílar fara einnig að greiða kílómetragjald. Samhliða er gert er ráð fyrir að eldri gjöld á borð við vörugjöld af eldsneyti muni eftir atvikum lækka eða falla niður, þó kolefnisgjald verði áfram greitt.
Með innleiðingu á nýju kerfi í tveimur skrefum nær það einungis til hluta bílaflotans á fyrra ári. Þannig verður hægt að draga lærdóma af innleiðingunni og styrkja fyrirkomulagið enn frekar til framtíðar.
Um þetta er fjallað í áformum um lagasetningu sem birt hafa verið í samráðsgátt.“
Sjá nánar í frétt á vef stjórnarráðsins