Föstudagslagið í boði Berglindar Ýrar

Það er hún Berglind Ýr sem tók áskorun nöfnu sinnar og velur föstudagslagið að þessu sinni:

Það kom ekkert annað til greina en að velja eitt lauflétt kántrý lag þennan föstudaginn. Það eru nokkur atriði sem einkenna gott kántrý lag, meðal annars eru það einfaldir hljómar og góð melódía svo ég tali nú ekki um textann. Góður kántrý texti fjallar yfirleitt um ást, ástarsorg, bíla eða áfenga drykki og stundum nær textinn að fanga þetta allt í einu lagi.

Lagið sem ég valdi, It´s Five O´clock Somewhere með Alan Jackson og Jimmy Buffett, fjallar mestmegnis um áfenga drykki en inniheldur vissulega góða lexíu og góða kántrý melódíu sem gott er að skella í græjurnar eftir vinnu á föstudegi. Þeir Jackson og Buffett kenna okkur að nýta tímabelti heimsins til þess að réttlæta dagdrykkju, því jú klukkan er vissulega orðin fimm einhverstaðar í heiminum.

Ég skora á Davíð Ásgeirsson í Flugrekstrar- og skírteinadeild fyrir næsta föstudagslag.

Kántrý kveðjur!