
Það er hún Erna Guðmundsdóttir fagstjóri fjármáladeildar sem velur föstudagslagið að þessu sinni og um val sitt segir hún:
Ég hlusta mikið á tónlist og fyrir mig er tónlist nærandi og gefandi.
Á uppvaxtarárunum var ég var gramsandi í plötusafni foreldra minna og skannaði hverja einustu plötu í leit að skemmtilegu lagi. Urðu þar lög eins og In the Ghetto og Suspicious Mind með Elvis Presley á vegi mínum. Eldri bræður mínir höfðu einnig mikil áhrif á tónlistaráhuga minn og uppgötvaði ég í gegnum þá hljómsveitir eins og Modern Talking, Boney M, Foo fighters, Nirvana, Soul Asylum o.fl.
Í dag hlusta ég á alls konar tónlist en lagið sem ég valdi fyrir ykkur er Viva La Vida með Coldplay. Hljómsveitin hefur verið starfandi frá árinu 1997 með söngvarann Chris Martin í fararbroddi. Meðlimir sveitarinnar eru frá Bretlandi og eru þeir iðnir við að koma fram á tónleikum víða um heim. Myndbandið sem fylgir er upptaka frá tónleikum þeirra í Sao Paulo í Brasilíu árið 2017.
Ástæðan fyrir þessu vali er að lagið er grípandi og kemur öllum í gott skap. Lagið er hvetjandi hvort sem er í ræktinni, göngutúrnum, við heimilisstörfin eða hverju sem er.
Njótið vel og góða helgi 🙂
Ég skora á Rut Hreinsdóttur fjármálstjóra að færa okkur næsta föstudagslag.