
Í morgun hélt Kristinn Grétarsson deildarstjóri mjög áhugaverða kynningu á sinni deild, NorType. Kynninguna má nálgast hér en í henni kom m.a. fram:
- Nafnið NorType er samsett úr orðunum „Nordic“ og „Type approval“.
- NorType er samvinnuverkefni 4 landa; Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands.
- Í deildinni eru 10 starfmenn sem búa að gríðarlega mikilli reynslu en meðalaldurinn er 13,8 ár.
- NorType sér um skráningu tækniupplýsinga ökutækja úr evrópskum gerðarviðurkenningum í gagnagrunn.
- Skráðar eru útfærslur ökutækja en ekki ökutæki.
- NorType sér um þjónustu og samskipti við Noreg , Svíþjóð , Finnland og Ísland vegna þessara gagna.
- Nokkur umbótaverkefni eru í gangi í deildinni svo sem þróun og rekstur sannreyningarkerfis (validation) fyrir rafræn skráningarvottorð ökutækja, nýtt vinnslukerfi fyrir deildina og sérsniðið kerfi sem umbreytir PDF í Exel.
Fjölmargar spurningar komu úr sal eftir kynninguna og greinilegt að það er gagnlegt fyrir okkur öll að kynnast verkefnum annarra deilda með þessum hætti.