
Þriðjudaginn 6. júní síðastliðinn hélt innviðaráðuneytið ráðstefnu undir yfirskriftinni Á réttri leið, ráðstefna um öryggi í samgöngum, Veröld – húsi Vigdísar. Markmiðið með ráðstefnunni var að miðla þeirri þekkingu og breytingum sem hafa átt sér stað undanfarna áratugi og hvernig hægt er að læra af reynslunni, bæði hér heima og erlendis.
Ráðstefnan var haldin til að heiðra Ragnhildi Hjaltadóttur fyrir framlag hennar til öryggis í samgöngum en Ragnhildur lét nýverið af störfum sem ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins eftir 40 ára farsælan feril hjá Stjórnarráðinu.
Á ráðstefnunni flutti Michael Kingston ráðgjafi hjá IMO um öryggi fiskiskipa og málefni norðurslóða erindi um Öryggi á sjó, dæmisagan Ísland. Kom Michael víða við í sínu frábæra erindi og var sérstaklega ánægjulegt að heyra hann fara fögrum orðum um framlag Sverris Konráðssonar, samstarfsmanni okkar hér á Samgöngustofu, til baráttunnar fyrir öryggi fiskiskipa og málefni norðurslóða. Hann sagði að störf Sverris í þágu IMO hafi alltaf verið framúrskarandi og sagði að það væri öruggt að Sverrir væri Íri í grunninn, eins og flestir Íslendingar að hans mati 🙂
Við lok ráðstefnunnar gaf Michael þremur aðilum mynd á bát sem er í hans eigu. En á bátinn hafði hann málað íslenska fánann til að sýna hversu mikils hann og IMO hafa litið á þeirra störf í þágu IMO. Hann gaf Ragnhildi eina mynd, Sigurði Inga innviðaráðherra eina og svo gaf hann Sverri Konráðssyni þá síðustu.
Er Sverri þakkað hans frábæra framlag til þessarar baráttu en Sverrir lætur af störfum í þessum mánuði, eftir farsælt starf hjá Samgöngustofu og forverum hennar.


